Fréttablaðið - 12.02.2003, Síða 8
12. febrúar 2003 MIÐVKUDAGUR
DÓMSMÁL Hjón sem eiga svokallað
Heklusetur á jörðinni Leiru-
bakka í Landsveit hafa verið
dæmd til að greiða húsasmíða-
meistara nokkrum 3,4 milljónir
króna.
Smiðurinn vann sem bygging-
arstjóri Íslenskra aðalverktaka
(ÍAV) við fyrri áfanga Hekluset-
ursins. Þegar töf varð á samning-
um um seinni áfangann sömdu
hjónin við byggingarmeistarann
persónulega að halda verkinu
áfram. Hjónunum tókst síðan að
semja við ÍAV, sem tóku við verk-
inu.
Þegar húsasmíðameistarinn
hugðist innheimta greiðslu fyrir
sitt starf sögðust hjónin enga
ábyrgð bera. Smiðurinn hefði í
raun samið við tiltekið einka-
hlutafélag sem þau eiga og eru í
forsvari fyrir. Fráleitt væri að
þau bæru persónulega ábyrgð á
skuldbindingum félagsins.
Héraðsdómur Reykjaness seg-
ir ekkert annað liggja fyrir en að
húsasmíðameistarann hafi samið
við hjónin sem slík og þau þannig
verið verkkaupar. Auk greiðsl-
unnar fyrir verkið eiga þau að
greiða smiðnum 300 þúsund
krónur í málskostnað. ■
FLUG „Ég var búinn að vinna þetta
eins vel og ég gat. Bókanir voru
með ólíkindum góðar og útlitið
bjart. Þetta er því mikið sjokk og
slæmar fréttir fyrir mig. Ég stend
bara hér og stari út í loftið,“ segir
Steinþór Jónsson, hótelhaldari í
Keflavík og umboðsmaður
kanadíska flugfélagsins HMY-
Airways, sem fyrirvaralaust sló af
skipulagt Íslandsflug í fyrrinótt og
bar við ótta við hermdarverk í
tengslum við atburðina 11. septem-
ber. Ákvörðunin var tekin einhliða
af eiganda flugfélagsins, sem er
kínverskur auðmaður sem sagður
er hafa efnast á rekstri spilavíta í
Hong Kong.
„Starfsmenn flugfélagsins eru
ekki allir sammála ákvörðun eig-
andans en hann á síðasta orðið.
Það er spurning hvað hann veit
sem við hin vitum ekki. Hann
hlýtur að byggja mat sit og
ákvörðun á slíkum upplýsing-
um,“ segir Steinþór, sem sér nú
áralangt undirbúningsstarf sitt
verða að engu. HMY-flugfélagið
flaug sitt fyrsta flug hér á landi 22.
janúar síðastliðinn og ætlar að
halda flugi áfram til 5. mars en svo
ekki söguna meir: „Á þessum tíma
ættum við að ná að fljúga sex flug
hvora leið með um 200 farþega.
Annar eins fjöldi var svo á biðlista
hjá okkur og sá hópur fer hvergi,“
segir Steinþór Jónsson.
Kanadíska flugfélagið flaug frá
Vancouver á vesturströnd Kanada
og til Manchester í Englandi með
viðkomu á Keflavíkurflugvelli.
Steinþór er þó ekki af baki dottinn
þrátt fyrir þetta áfall. Hann er
þegar kominn í samningaviðræðir
við annað kanadískt flugfélag,
Canada West, en vill ekki tjá sig
frekar um þá samninga fyrr en
þeir eru í höfn.
eir@frettabladid.is
FANGELSI „Aðstandendur geðsjúkra
afbrotamanna, sem og forsvars-
menn Geðhjálpar og Samhjálpar,
hafa margoft bent á alvöru þess-
ara mála og þau vandræði sem
steðja að þessum hópi,“ segir í
greinargerð með þingsályktunar-
tillögu Ísólfs Gylfa Pálmasonar,
Framsóknarflokki.
Hann vill að dómsmálaráð-
herra, í samráði við heilbrigðis-
ráðherra, hefji þegar í stað undir-
búning að uppbyggingu meðferð-
ardeildar við fangelsi fyrir sak-
hæfa geðsjúka afbrotamenn í
tengslum við starfsemi Heilbrigð-
isstofnunar Selfoss, fangelsið á
Litla-Hrauni og réttargeðdeild að
Sogni. Talið er að um sé að ræða
tuttugu einstaklinga.
Flutningsmaður vill að ákvörð-
un um úrræði fyrir þennan hóp
sjúkra afbrotamanna liggi fyrir
eigi síðar en 1. maí 2003. Hann
segir jákvæða reynslu af starf-
semi réttargeðdeildarinnar að
Sogni sem og fangelsisins að
Litla-Hrauni við Eyrarbakka.
Hvorug þessara stofnana sé þó
ætluð til að hýsa sakhæfa geð-
sjúka afbrotamenn. Því sé brýnt
að byggja eða kaupa húsnæði í
grennd við þessa staði þar sem
þeir geti átt athvarf. ■
Reiður ökumaður:
Dýrkeypt
æðiskast
SINGAPORE, AP Dómstólar í
Singapore hafa dæmt fertugan
Breta í tíu vikna fangelsi fyrir að
veita leigubílstjóra hnefahögg og
hóta honum lífláti. Að sögn
mannsins hafði leigubílstjórinn
svínað á hann í umferðinni og var
hann ekki alls kostar sáttur við þá
einskæru ósvífni. Dró hann því
bílstjórann út úr leigubílnum, tók
hann hálstaki, hristi hann til og
kýldi hann síðan í andlitið.
Hinn dæmdi er einstæður
þriggja barna faðir sem starfar í
Singapore. Auk fangelsisvistar-
innar þarf hann að greiða sem
nemur um 22.000 krónum í sekt. ■
Kristilegir demókratar:
Verða að
greiða sektir
BERLÍN, AP Kristilegir demókratar
verða að greiða andvirði 1.750
milljóna króna í sektir fyrir að
hafa þegið ólögleg fjárframlög í
sjóði sína. Flokkurinn hafði kært
ákvörðun Wolfgang Thierse, for-
seta þýska þingsins, til dómstóla
en sektin var staðfest á tveimur
dómsstigum.
Sektirnar eru til komnar vegna
fjárframlaga sem flokkurinn þáði
á síðasta áratug, í stjórnartíð
Helmut Kohl, fyrrum Þýska-
landskanslara. Hann viðurkenndi
að hafa þegið tvær milljónir
marka, tæpar 80 milljónir króna, í
nafnlausum framlögum, sem eru
ólögleg í Þýskalandi. Að auki
höfðu kristilegir demókratar í
Hesse falsað bókhald sitt en það
ræður miklu um hversu háa
styrki flokkar fá úr ríkissjóði. ■
ÍSLENSKAR KÝR
Eiga öfluga bandamenn á Alþingi sem
leggja nú til í annað sinn að landbúnaðar-
ráðherra leggi fram sérstaka áætlun til
verndar íslenskum kúm.
Verndun íslensku
mjólkurkýrinnar:
Fágætur
dýrastofn
LANDBÚNAÐUR Umræðunni um inn-
flutning norska fósturvísa virð-
ist ekki lokið og því er nauðsyn-
legt að grípa til aðgerða til
verndar íslenska kúastofninum,
sem verið hefur hér frá því land
var numið. Þetta er mat Þuríðar
Backman, Vinstri hreyfingunni –
grænu framboði, Drífu Hjartar-
dóttur og Katrínar Fjeldsted,
Sjálfstæðisflokki, Sigríðar Jó-
hannesdóttur, Samfylkingunni,
og Sverris Hermannssonar,
Frjálslynda flokknum. Þau eru
andstæðingar innflutnings
norskra fósturvísa og vilja að
landbúnaðarráðherra komi þeg-
ar í stað á fót sérstakri áætlun
um vernd íslensku mjólkurkýr-
innar. Þingmennirnir segja kosti
íslensku kýrinnar til mjólkur-
framleiðslu einstæða og að ís-
lenski kúastofninn sé fágætur
dýrastofn sem beri að vernda. ■
Brýnt að byggja meðferðardeild fyrir sakhæfa geðsjúka afbrotamenn:
Tuttugu manns í tómarúmi
ÍSÓLFUR GYLFI PÁLMASON
Segir brýnt að finna úrræði fyrir allt að 20
sakhæfa geðsjúka afbrotamenn. Þingmað-
urinn vill að ákvörðun liggi fyrir eftir rúma
tvo mánuði.
Láðist að segja að einkahlutafélag væri verkkaupi:
Hjón á Heklusetri
borgi unnið verk
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS
Hjón sem réðu húsasmíðameistara til star-
fa bera ábyrgð á greiðslum til hans en ekki
einkahlutafélag í þeirra eigu sem þau
nefndu ekki til sögunnar þegar samið var
um verkið í upphafi.
Mikið sjokk –
slæmar fréttir
Kanadíska flugfélagið HMY-Airways slær fyrirvaralaust af flug til Ís-
lands. Bókanir með ólíkindum góðar. Fátt um skýringar annað en ótti
eiganda við yfirvofandi hermdarverk í tengslum við 11. september.
MEÐAN ALLT LÉK Í LYNDI
Steinþór Jónsson ásamt Brent Stratton, forstjóra kanadíska
flugfélagsins HMY-Airways.
HMY-AIRWAYS HÆTTA VIÐ SKIPULAGT ÍSLANDSFLUG
Íslenskur umboðsmaður segir áralangan undirbúning að engu orðinn eftir að eigandinn ákvað að hætta við áætlunarflug.Su
m
ar
Pl
ús
Ver›dæmi SpariPlús
Krít
Portúgal
Mallorca
Benidorm
53.980 kr.
47.267 kr.
43.140 kr.
44.340 kr.
* á mann m. v. að 2 fullorðnir og
2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting, íslensk
fararstjórn, ferðir til og frá
flugvelli erlendis og allir
flugvallarskattar.
*
*
*
*
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Bóka›u strax
- fla› margborgar sig!
2003
ver›læk
kun8-15%
Ef tveir ferðast saman, 67.970 kr. á mann.
Ef tveir ferðast saman, 69.355 kr. á mann.
Ef tveir ferðast saman, 54.530 kr. á mann.
Ef tveir ferðast saman, 63.730 kr. á mann.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
T