Fréttablaðið - 12.02.2003, Síða 24

Fréttablaðið - 12.02.2003, Síða 24
Forsætisráðherraefni og fram-bjóðandi Samfylkingarinnar í fimmta sæti í Reykjavík norður ger- ir nú harða hríð að kommúnista- prestinum Davíð Oddssyni og hans fylgifiskum fyrir ríkisforsjárhyggju og afskiptasemi á hinu heilaga mark- aðstorgi Mammons. En það er grundvallarréttur allra landsins barna að fá að þjóna Mammoni án gerræðislegra afskipta æðstuklerk- anna sem svo lengi hafa hreiðrað um sig í ríkishofinu. Ný siðaskipti eru í nánd. Manni verður hugsað aftur til ársins 1550 þegar síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi, landsfaðirinn mikli Jón Arason, var handtekinn ásamt sonum sínum og leiddur undir öxina á gráum nóvembermorgni. FORSÆTISRÁÐHERRAEFNIÐ boðar nýja siðbót og píetisma meðal Mammonsdýrkenda. Aflátssölur í formi starfslokasamninga skulu aflagðar svo og frjáls og ókeypis að- gangur sægreifa að Himnaríki og landsfaðirinn mikli Davíð Oddsson skal leiddur undir lýðræðisöxina. Frægt er hversu óhönduglega tókst til forðum tíð við hin fyrri siðaskipti þegar mörg axarhögg þurfi til að losa höfuð gamla biskupsins frá bolnum, og ekki er laust við að mað- ur hafi áhyggjur af því að eitthvað kunni að fara úrskeiðis við fyrirhug- aða aftöku 10. maí næstkomandi þegar vígamaðurinn Össur kreppir sína vönu fingur um hið pólitíska ax- arskaft og reiðir hátt til höggs. FORSÆTISRÁÐHERRAEFNI og frambjóðandi Samfylkingarinnar í fimmta sæti í Reykjavík norður boð- ar hina Nýju siðbót sem farið hefur sem eldur í sinu um gjörvalla Evr- ópu og sameinað hin gömlu kóngs- ríki og furstadæmi í eitt alsherjar- bandalag frjálsra viðskipta sem hafnar óskeikulleika og forystu Patríarkans í Washington. BOÐBERAR hinnar Nýju siðbótar tala tungum og mæla spádómsorð: „Sjá, vér boðum yður mikinn fögn- uð. Hinir síðustu munu nú verða fyrstir. Nýir peningar skulu koma í stað hinna gömlu. Baugur Norður- ljósa mun lýsa yfir land og þjóð, án afskipta Ríkislögreglustjóra eða skattheimtumanna. Hölt fyrirtæki munu ganga og blindir fá ókeypis aðgang að Sýn. Vér boðum yður nýja frjálshyggju fyrir gamla.“ Sagt er að 45% landsmanna styðji hina Nýju siðbót. Ó, hvílíkir tímar, hvílíkir siðir! ■ SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar Þráins Bertelssonar Ný siðbót Sporléttir sölumenn www.eignanaust.is Sími 551 8000 • Fax 551 1160 Vitastíg 12 • 101 Reykjavík

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.