Fréttablaðið - 06.03.2003, Side 4
ÁSAKANIR Aðsókn að fréttavefjum
var í sögulegu hámarki á mánudag
og þriðjudag að því er fram kemur
í frétt á Teljara.is sem mælir að-
sókn á vefi. Þar kemur fram átt-
föld hlutfallsleg heildaraukning á
notkun fréttavefjanna Mbl.is, Vís-
is.is og DV.is miðað við venjulega
mánudaga og þriðjudaga. Geta að-
standendur Teljara.is sér þess til
að mikil aðsókn stafi af ásókn í
fréttir af máli Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra og Baugs.
Þegar aðsókn
á Mbl.is er borin saman við að-
sóknina þegar ráðist var á tvíbura-
turnana í New York kemur í ljós að
aðsóknin var meiri í vikubyrjun en
11. og 12. september 2001.
Málið hefur vakið nokkra at-
hygli erlendis. Í gær bættist
breska blaðið Daily Telegraph í
hóp þeirra sem hafa fjallað um
það. ■
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
Meint tal hans um
mútugreiðslur og
eftirmálar þess voru
aðalfréttaefnið und-
anfarið.
4 6. mars 2003 FIMMTUDAGUR
ÍRAKSDEILAN
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Finnst þér að bera eigi fleiri mál
undir þjóðaratkvæðagreiðslu?
Spurning dagsins í dag:
Hvernig ferðu leiðar þinnar til vinnu?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
8,7%
54,1%Nei
37,2%
EKKI ÞJÓÐAR-
ATKVÆÐI
Meirihluti vill
ekki fleiri
þjóðaratkvæða-
greiðslur.
Veit ekki
Já
DÓMSMÁL Tveir bræður hafa verið
dæmdir í fimm mánaða fangelsi
fyrir að hafa ræktað 582 kannabis-
plöntur og haft 673 grömm af
marijúana í fórum sínu auk ann-
arra fíkniefna.
Mennirnir ræktuðu kannabis-
plönturnar í iðnaðarhúsi á Hval-
eyrarbraut í Hafnarfirði. Plönturn-
ar fundust þar í nóvember 2001. Að
auki var þar að finna fjölda af
ljósalömpum, vatnsdælum og öðr-
um búnaði.
Lögreglu barst ábending í júlí
2001 um að bræðurnir væru að
rækta og selja kannabis. Í fram-
haldinu upphófust símhleranir sem
staðfestu grun lögreglunnar.
Annar bróðirinn viðurkenndi að
hafa selt nokkuð af kannabisefni en
hinn neitaði. Efnið hafi verið ætlað
til eigin nota. Báðir hafi þeir verið
lengi í fíkniefnaneyslu og reykt tíu
grömm af efninu á hverjum degi.
Sérfræðingur taldi að hægt hafi
verið að fá um 1800 skammta úr
plöntunum 582.
Yngri bróðirinn hefur 28 sinn-
um áður hlotið refsingu fyrir af-
brot sín en sá eldri tíu sinnum. Þeir
eru 43 og 38 ára gamlir. ■
Vísitala neysluverðs:
Meiri hækkun
milli mánaða
VERBÓLGA Greiningardeildir fjár-
málafyrirtækjanna telja að vísi-
tala neysluverðs í mars hækki um
0,4-0,6% frá fyrra mánuði. Grein-
ingardeild Kaupþings sker sig úr
og spáir 0,4% hækkun meðan
önnur fjármálafyrirtæki spá
0,6% hækkun. Helstu ástæður
meiri hækkunar nú en að undan-
förnu eru þær að útsölum hefur
fækkað. Þá má búast við áfram-
haldandi hækkun fasteigna og
eldsneytis. Bent er á að mars hafi
undanfarin ár verið mikill verð-
bólgumánuður. Ekki sé því sér-
stakt áhyggjuefni þótt vísitala
neysluverðs hækki meira nú en
að undanförnu. ■
LEYFA EKKI STRÍÐ Utanríkisráð-
herrar Frakklands, Rússlands og
Þýskalands lýstu því yfir eftir
fund sinn í París í gær að þeir
myndu ekki leyfa það að Öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti ályktun sem heimilaði inn-
rás í Írak. Þetta er sterkasta vís-
bendingin enn sem komið er um
að Rússar eða Frakkar beiti neit-
unarvaldi sínu þegar ályktunin
kemur til atkvæðagreiðslu. Igor
Ivanov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, hafði áður gefið til kynna
að Rússar myndu beita neitunar-
valdi.
INNRÁS ÁN SAMEINUÐU ÞJÓÐ-
ANNA Bandaríkin eru reiðubúin
að vera í fararbroddi innrásar í
Írak þrátt fyrir
að Sameinuðu
þjóðirnar styðji
innrásina ekki,
sagði Colin Pow-
ell, utanríkisráð-
herra Bandaríkj-
anna, í viðtali við
rússneska sjón-
varpsstöð. Heimildir innan
bandaríska stjórnkerfisins herma
að ekki verði farið fram á at-
kvæðagreiðslu um ályktun Breta
og Bandaríkjamanna. Þá mun
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti veita Saddam Hussein loka-
frest áður en ráðist verður til at-
lögu.
BERST FYRIR
MÁLAMIÐLUN
Kofi Annan, aðal-
ritari Sameinuðu
þjóðanna, rær að
því öllum árum að
fá deiluaðila í ör-
yggisráðinu til að
samþykkja málamiðlunartillögu
um aðgerðir gagnvart Írökum.
EFTIRLEIKURINN UNDIRBÚINN
Nefnd á vegum Sameinuðu þjóð-
anna hefur tekið saman skýrslu
um hvert hlutverk samtakanna
skuli vera í Írak eftir að stjórn
Saddams Husseins hefur verið
hrakin frá völdum. Þetta hefur
verið gert þrátt fyrir að ákvörð-
un um innrás hafi ekki verið tek-
in. Bandaríkjamenn hyggjast
taka völdin um skeið eftir innrás
en óljóst er hvort Sameinuðu
þjóðirnar komi þar við sögu.
SÖGULEGT SPRENGJUREGN
Bandarískir embættismenn segja
að ef innrás verði gerð í Írak
verði sprengjuregnið fyrstu dag-
ana tífalt meira en allt sprengju-
regnið í Persaflóastríðinu fyrir
rúmum áratug. Þetta ásamt land-
árásum á að koma í veg fyrir að
Írakar bregðist við innrás með
notkun gjöreyðingarvopna.
EUROVISION Enn ríkir óvissa um af-
drif íslenska Eurovisionlagsins,
sem verið hefur til skoðunar hjá
matsnefnd STEF vegna gruns um
að það líkist um of heimþekktu
bandarísku lagi til að geta talist
fullveðja fulltrúi Íslands á er-
lendri grund. Hljómsveitin Botn-
leðja, sem lenti í öðru sæti í und-
ankeppninni hér á landi, hefur lýst
sig reiðubúna til að hlaupa í skarð-
ið fyrir Birgittu Haukdal og henn-
ar fólk og troða upp í Eurovision-
keppninni í Riga í lok maímánað-
ar:
„Við sitjum á varamanna-
bekknum og tilbúnir til að hlaupa
inn á völlinn,“ segir Haraldur
Freyr Gíslason, trommuleikari
Botnleðju. „Ég hef enga skoðun á
þessu íslenska Eurovisionlagi.
Mér finnst það leiðinlegt hvort
sem það er stolið eða ekki,“ segir
hann.
Magnús Kjartansson, formaður
Félags tónskálda og textahöfunda,
hefur lýst því yfir að vart sé for-
svaranlegt að senda íslenska sig-
urlagið í úrslitakeppnina, sjálfur
myndi hann ekki ráðleggja nein-
um að gera það.
Ríkisútvarpið hefur sent frá
sér tilkynningu í samráði við Hall-
grím Óskarsson, höfund Segðu
mér allt, sem Birgitta Haukdal
söng til sigurs í Háskólabíói fyrir
skemmtu. Þar segir meðal annars
um úrskurð matsnefndar STEF
sem fjallaði um meintan lagastuld
höfundarins:
„Draga má þá ályktun út frá
niðurstöðu úrskurðarmanna að
ekki sé hægt með óyggjandi hætti
að sýna fram á að um lagastuld
eða brot á höfundarrétti sé að
ræða. Þó er bent á í úrskurði mats-
manna að laglínur séu í einstökum
töktum í viðlagi svipaðar en einnig
er það ljóst að höfundur íslenska
lagsins hefur ekki brotið þá reglu
sem segir að fjórir taktar verði að
vera eins eigi klárlega að vera
hægt að sýna fram á brot á höf-
undarrétti.“
Hallgrímur Óskarsson, verk-
fræðingur og höfundur
Eurovisionlagsins, segir að nú sé
ákveðið að senda lagið til Dan-
merkur og fela þar sérstakri mats-
nefnd Eurovisionkeppninnar að
úrskurða hvort lagið sé stolið eða
ekki. Þorvaldur Bjarni Þorvalds-
son, útsetjari lagsins, er þó ekki í
vafa: „Það þarf ekkert að breyta
þessu lagi. Það er ekki stolið.“
eir@frettabladid.is
Óður maður í hjólastól:
Ók á hjúkr-
unarkonu
NOREGUR Vegfarendum á Kolbotn-
torginu í Oppegård í Noregi brá
heldur en ekki í brún þegar þeir
urðu vitni að því að miðaldra mað-
ur í hjólastól ók á ofsahraða á
roskna konu og barði hana því
næst með hækju. Vitnin komu
konunni til bjargar og hringdu
síðan í neyðarlínuna, sem sendi
lögreglu og sjúkrabíl á vettvang.
Konan reyndist vera hjúkrun-
arfræðingur á leið til vinnu og var
árásarmaðurinn einn af sjúkling-
um hennar, að því er fram kemur
í Aftenposten. Lögreglumenn
færðu manninn til yfirheyrslu og
gerðu hjólastólinn upptækan.
Óvíst er hvort maðurinn fær stól-
inn aftur í hendurnar. ■
KYNDA UNDIR OFBELDI Jack
Straw, utanríkisráðherra Bret-
lands, segir að ísraelski herinn
kyndi undir ofbeldi með aðgerð-
um sínum, sem taki ekki nægjan-
legt mið af aðstæðum óbreyttra
borgara. „Ég hef miklar áhyggjur
af þeim fjölda óbreyttra borgara
sem hefur látið lífið, þeirra á
meðal ófrísk kona í Bureij-flótta-
mannabúðunum.“
Gallup:
Aukið traust
til lögreglu
VIÐHORF Ríkislögreglustjóri hefur
vakið sérstaka athygli á því að
samkvæmt Þjóðarpúls Gallups
um traust almennings til stofnana
í febrúar 2003 hefur traust til lög-
reglunnar aukist úr 71% í 73% á
tæpu ári.
Að frátöldum Háskóla Íslands
er lögreglan sú stofnun sem mests
trausts nýtur um þessar mundir.
Á árinu 1997 sögðust 64% treysta
lögreglunni. Traust almennings á
lögreglunni hefur því aukist um
níu prósentustig á sex árum. ■
HVALEYRARBRAUT
Bræður um fertugt ráku kannabisverk-
smiðju í þessu iðnaðarhúsnæði í Hafnar-
firði. Endi var bundinn á starfsemina með
áhlaupi lögreglunnar í nóvember 2001.
Umfangsmikil kannabisrækt í Hafnarfirði:
Bræður dæmdir í fangelsi
MIÐAUSTURLÖND
Sótt í fréttir af Davíðs- og Baugsmáli:
Aðsókn í sögulegu hámarki
DAVÍÐ ODDSSON
Aðsókn á fréttavefi
jókst verulega eftir
orð hans um að
Jón Ásgeir hefði tal-
að um að múta sér.
BOTNLEÐJA
Sitja á varamannabekknum, tilbúnir að hlaupa inn á Eurovisionvöllinn í Riga 24. maí.
Botnleðja vill hlaupa í
skarðið fyrir Birgittu
Enn óvissa um íslenska Eurovisionlagið. Ríkisútvarpið sendi frá sér
yfirlýsingu í samráði við lagahöfundinn. Tónverkið sent til Danmerkur
til frekari skoðunar.