Fréttablaðið - 06.03.2003, Qupperneq 6
6 6. mars 2003 FIMMTUDAGUR
ASÍA
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 30
1.
2.
3.
Hnefaleikakeppni verður haldin
á laugardag. Stöð 2 hefur neit-
að að birta auglýsingar um
keppnina. Formaður Hnefa-
leikasambands Reykjavíkur er
undrandi. Hvað heitir hann?
Næstelsti köttur landsins er all-
ur. Hvaða aldri náði hann?
Hann leikur mafíósa í sjón-
varpsþáttunum Sopranos og
hefur farið fram á 50% hækkun
fyrir væntanlega fimmtu seríu.
Hvað heitir leikarinn?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 77.03 -0.35%
Sterlingspund 122.67 0.38%
Dönsk króna 11.37 0.09%
Evra 84.45 0.06%
Gengisvístala krónu 121,38 0,07%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 762
Velta 4.824 milljónir
ICEX-15 1.377 -0,29%
Mestu viðskipti
Landsbanki Íslands hf. 252.079.135
Fjárfestingarf. Straumur hf. 224.907.356
Íslandsbanki hf. 112.458.462
Mesta hækkun
SR-Mjöl hf. 7,94%
Skýrr hf. 7,21%
Íslenska járnblendifélagið hf. 4,55%
Mesta lækkun
Jarðboranir hf. -6,25%
SÍF hf. -2,13%
Grandi hf. -1,74%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 7727,2 0,3%
Nasdaq*: 1309,6 0,1%
FTSE: 3563,5 -1,7%
DAX: 2526,9 1,0%
Nikkei: 8491,1 0,1%
S&P*: 825,4 0,4%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Fyrsta sjálfsmorðsárásin í tvo mánuði:
Strætisvagn sprengdur í loft upp
JERÚSALEM, AP Að minnsta kosti 15
létu lífið og tugir slösuðust þegar
maður sprengdi sig í loft upp í
strætisvagni í borginni Haifa í norð-
urhluta Ísrael. Að sögn sjónarvotta
rifnaði þak vagnsins af og brak og
líkamshlutar þeyttust langar leiðir.
Bílar í nágrenninu urðu fyrir
skemmdum og á meðal hinna slös-
uðu voru nokkrir vegfarendur sem
áttu leið hjá.
Enn hefur enginn lýst ábyrgð á
tilræðinu á hendur sér en talsmaður
Hamas-samtakanna hefur þó látið í
ljósi velþóknun sína á ódæðinu.
Árásin kemur í kjölfar myndunar
nýrrar ríkisstjórnar hægrimanna í
Ísrael og ítrekaðra áhlaupa ísra-
elska hersins á vígi Hamas-samtak-
anna á Gaza-ströndinni. Fimmtíu
Palestínumenn hafa fallið í átökum
við ísraelska herinn á síðustu tveim-
ur vikum og fyrir fáeinum dögum
var einn af stofnendum Hamas-
samtakanna handtekinn. Þetta er
fyrsta hryðjuverkaárásin í Ísrael
síðan 5. janúar, þegar 23 létu lífið í
sjálfsmorðsárás í Tel Aviv. Að sögn
talsmanns ísraelska utanríkisráðu-
neytisins hefur her og lögreglu tek-
ist að koma í veg fyrir um 100 árás-
ir palestínskra öfgamanna á yfir-
ráðasvæði Ísraelsmanna á síðustu
tveimur mánuðum. ■
Augum beint að
forsetastólnum
Hillary Clinton hefur náð hröðum frama í öldungadeildinni, sem er þekkt fyrir að láta
menn bíða eftir áhrifum og völdum. Margir samherjar hennar telja líklegt að hún fari í
forsetaframboð árið 2008.
BANDARÍKIN Öldungadeild Banda-
ríkjaþings er þekkt fyrir íhalds-
semi og það að starfsaldur ræður
talsverðu um
hversu mikil áhrif
einstakir þing-
menn hafa. Það
getur tekið nokkur
kjörtímabil fyrir
þingmenn að kom-
ast í fremstu röð.
Það á þó ekki við
um fyrrum for-
setafrú Bandaríkj-
anna, Hillary Clint-
on, sem er að kom-
ast í fremstu röð
meðal þingmanna demókrata áður
en hennar fyrsta kjörtímabil er
hálfnað.
Clinton hafði hægt um sig fram-
an af eftir að hafa unnið sér sæti í
öldungadeildinni. Það hefur breyst
mikið undanfarið að sögn banda-
ríska dagblaðsins Washington
Post. Hún hefur tekið að sér for-
ystuhlutverk við að breiða út mál-
stað demókrata í öldungadeildinni.
Áhrif hennar meðal málsmetandi
stuðningsmanna flokksins hafa
aukist og hún er farin að fá sæti í
valdamestu nefndum öldunga-
deildarinnar. Frami hennar hefur
verið það hraður að sumum sam-
herjum hennar er brugðið.
Þrátt fyrir að Clinton hafi lýst
því yfir þegar hún barðist fyrir
þingsæti sínu árið 2000 að hún
myndi ekki sækjast eftir forseta-
embættinu 2004 sýnir nýleg skoð-
anakönnun að ef hún gæfi kost á
sér sem forsetaefni Demókrata-
flokksins nyti hún yfirburða gagn-
vart þeim sem hafa tilkynnt fram-
boð. Sama könnun sýnir reyndar
að George W. Bush Bandaríkjafor-
seti myndi sigra hana auðveldlega
í sjálfum forsetakosningunum.
Þingmenn Demókrataflokksins
og aðrir innanbúðarmenn í öld-
ungadeildinni sem Washington
Post ræddi við telja sig sjá merki
þess að Clinton sé að íhuga fram-
boð 2008 ef Bush heldur velli í for-
setakosningunum á næsta ári.
Sjálf hefur hún sagt að hún hafi
engar áætlanir uppi um að sækjast
eftir forsetaembættinu sem eigin-
maður hennar skildi við í ársbyrj-
un 2001. Aðrir þykjast þó sjá
merki þess að fyrrum starfsmenn
Hvíta hússins, í forsetatíð Bill
Clinton, undirbúi framboð hennar.
Það þykir styrkja þessa hugmynd
að sumir þeirra hafa tekið að sér
fjáröflun og skipulagningu fyrir
forseta- og þingkosningarnar á
næsta ári. ■
GENGIÐ Í RÉTTARSALINN
Réttarhöldin yfir meintum meðlimum
samtakanna 17. nóvember fara fram í
rammgerðasta fangelsi Grikklands.
Réttarhöld yfir meðlim-
um 17. nóvember:
Deilt um
beinar út-
sendingar
GRIKKLAND, AP Hlé hefur verið gert
á réttarhöldum yfir nítján meintum
meðlimum hryðjuverkahópsins 17.
nóvember í Grikklandi á meðan
dómarar reyna að komast að niður-
stöðu um það hvort leyfa eigi beinar
útsendingar frá réttarsalnum.
Margir sakborninganna hafa
óskað eftir því að sjónvarpað og út-
varpað verði frá réttarhöldunum en
þó krafist þess að allar útsendingar
verði beinar svo ekki verði hægt að
klippa niður upptökurnar og slíta
þær úr samhengi. Saksóknarar og
yfirvöld hafa lagst gegn því að orð-
ið verði við ósk mannanna, m.a. á
þeim forsendum að þetta geti ýtt
undir látalæti og sýndarmennsku af
hálfu sakborninganna. ■
SKATTAR HÆKKA Fyrirtæki, lág-
launafólk og þeir sem veðja horfa
fram á að borga hærri skatta en
áður eftir að fjármálaráðherra
Hong Kong sagði nauðsynlegt að
hækka skatta til að draga úr fjár-
lagahalla. Tekjuskattar fyrir-
tækja hækka úr 16% í 17,5% og
90.000 lægst launuðu íbúar Hong
Kong verða ekki lengur undan-
þegnir skatti.
SKARTGRIPARÁN Skartgripum að
verðmæti um 160 milljónir
króna var stolið á opnunardegi
stórrar skartgripasýningar í
Hong Kong. Í ránsfengnum var
meðal annars demantshálsfesti
sem ein og sér er metin á um 80
milljónir króna.
Hraðbanki stal peningum:
Fékk bara hálfa
úttektina
PENINGAÚTTEKT „Ég tók út tíu þús-
und en fékk bara fimm þúsund,“
segir Elísa Magnúsdóttir, sem
ekki er sátt við hraðbankann sem
hún tók pening út úr í Smáranum í
Kópavogi. Bankinn er á vegum
SPRON. Elísa segist hafa leitað til
SPRON, en finnst að henni hafi
ekki verið trúað.
Ólafur Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri hjá SPRON, kann-
ast við málið og segir slíkt afar
sjaldgæft. Vandinn sé sá að upp-
gjörið úr hraðbankanum hafi ver-
ið rétt og því þurfi að kanna alla
möguleika. „Við efumst ekki um
að hún segir satt,“ segir Ólafur.
Hann segir að áður en hægt sé að
leysa málið verði að fara í gegn-
um það hvað hugsanlega kunni að
hafa farið úrskeiðis. „Við munum
ljúka málinu þannig að hún verði
sátt,“ segir Ólafur.
Elísa segist hafa heyrt af því
að bankinn sé gamall og að í fleiri
tilvikum hafi fólk ekki fengið rétt-
ar upphæðir. Ólafur segir bank-
ann tveggja til þriggja ára gaml-
an. Svona tilvik komi upp, en þá
komi villan fram við uppgjör. Al-
mennt eigi að vera hægt að
treysta hraðbönkunum. ■
Internetnotkun:
Herferð
gegn ósæmi-
legri hegðun
SINGAPORE, AP Yfirvöld í Singapore
hafa ákveðið að reyna að hafa áhrif
á hegðun almennings á Netinu.
Hrinda á af stað herferð þar sem
fólk verður hvatt til þess að senda
ekki ruslpóst, skoða ekki vefsíður
sem innihalda klám og nota sitt
rétta nafn í stað dulnefnis.
Þetta er langt því frá í fyrsta
sinn sem yfirvöld í Singapore reyna
að leggja landsmönnum lífsregl-
urnar. Áður hefur verið hrint af
stað herferðum til þess að fá fólk til
að brosa meira, vinka samferða-
mönnum sínum í umferðinni og
sturta niður svo dæmi séu tekin. ■
HRIKALEG AÐKOMA
Aðkoman á vettvangi var vægast sagt ófögur en brak og líkamshlutar lágu á víð og dreif í
kringum flak strætisvagnsins.
HILLARY CLINTON
Menn velta því enn fyrir sér hvort forsetafrúin fyrrverandi eigi eftir að verða fyrsta konan í
sögu Bandaríkjanna til að feta í fótspor eiginmanns síns og taka við embætti forseta
Bandaríkjanna.
Ef hún gæfi
kost á sér sem
forsetaefni
Demókrata-
flokksins nyti
hún yfirburða
gagnvart þeim
sem hafa til-
kynnt fram-
boð.
ÞJÓFÓTTUR HRAÐBANKI
Elísa Magnúsdóttir lenti í þjófóttum hrað-
banka sem var lúmskur í þokkabót. Upp-
gjörið úr bankanum stemmdi. SPRON seg-
ist munu leysa málið í sátt.
Gjafakot
Strandgötu 29, Hafnarfirði
VERSLUNIN HÆTTIR!
Allt á að seljast. Síðasta útsöluvika.
Opið fimmtud. - föstud. 12 -18 laug. 10 -16 sunnud. 13 -16
ÁTTA FLUTNINGABÍLAR Í
ÁREKSTRI Að minnsta kosti 5
manns létust og 16 slösuðust þegar
8 flutningabílar og þrettán fólks-
bílar lentu í hörðum árekstri á
hraðbraut í Rússlandi. Þegar hefur
verið hafin rannsókn á tildrögum
slyssins en umferðarlögreglan tel-
ur að mikilli þoku sé um að kenna.
EVRÓPA