Fréttablaðið - 06.03.2003, Page 13
FIMMTUDAGUR 6. mars 2003
19. maí - 2. júní
Fararstjóri: fióra Valsteinsdóttir
Skemmtisigling á öldum Eyjahafsins
ber flig til ótrúlegra áfangasta›a.
Töfrandi grískar eyjar,
tyrknesk menning og dvöl á
eyjunni Krít sem heillar alla.
Fer›atilhögun:
Morgunflugi me› Icelandair
til Krítar og gist flar í eina nótt.
Eki› til Heraklion og fla›an fari› í
vikusiglingu til Rhodos, Patmos,
Mykonos, Aflenu, Thessaloniki,
Istanbul, Kusadasi og Santorini.
Eftir siglinguna er dvalist á
4ra stjörnu hóteli á Krít í 6 nætur.
Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting me› hálfu fæ›i
á Krít í 7 nætur, vikusigling me› fullu fæ›i og allri
afflreyingu um bor›. Akstur milli flugvalla, hótela og
skips, hafnargjöld og íslensk fararstjórn.
Ekki innifali›: Áfengir drykkir,
kynnisfer›ir og fljórfé.
Nánar á www. urvalutsyn.is og
www.royalolympiccruises.com
á mann í innri klefa
178.840 kr. stgr.
á mann í ytri klefa
188.370 kr. stgr.
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 og hjá umbo›smönnum um land allt.
www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
04
57
03
/2
00
3
ATVINNA Mikil aðsókn hefur verið
hjá Vinnumiðlun skólafólks eftir
að hún opnaði á mánudag. Á
rúmum sólahring höfðu 290 ung-
menni sótt um. Auður Kristín
Welding, verkefnastjóri Vinnu-
miðlunar, segir mun fleiri um-
sóknir berast nú á fyrstu dögum
opnunar, sem beri vott um að
þörfin sé mikil.
Þeir sem sækja um vinnu hjá
Vinnumiðlun skólafólks eiga von
á að svör berist þeim í apríl.
Auður Kristín segist ekki geta
lofað því að þau verði öll já-
kvæð. Þá segist hún ekki geta
gefið upp hversu mörg störf eru
í boði, enn séu að berast inn at-
vinnutilboð. Þrátt fyrir það gat
hún fullyrt að til væru störf fyr-
ir þau 290 ungmenni sem þegar
hefðu sótt um.
Þeir sem eru fæddir 1986 eða
fyrr, hafa sótt skóla á árinu og
eru með lögheimili í Reykjavík
geta sótt um hjá Vinnumiðlun
skólafólks. Umsóknarfrestur er
til 30. apríl. ■
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík segir aðstandendur fórnar-
lamba úr Skerjafjarðarslysinu
verða að sýna fram á að þeir hafi
lögvarða hagsmuni af því að fá af-
hent afrit rannsóknargagna lög-
reglunnar.
Lögreglan hafnaði fyrr í vetur
ósk ættingjanna um aðgang að
gögnunum og afrit af þeim. Þess-
ari ákvörðun skutu aðstandend-
urnir til ríkissaksóknara, sem gaf
lögreglunni fyrirmæli um að veita
aðgang að gögnunum að uppfylltu
áðurnefndu skilyrði.
Hallvarður Einvarðsson, rétt-
argæslumaður dánarbús eins
fórnarlambs flugslyssins, hefur
þegar fengið að blaða í gegnum
gögnin. Hallvarður hefur hins
vegar ekki enn fengið afrit af
þeim öllum eins og krafist hefur
verið. Lögreglan segist fyrst
þurfa að fá vitneskju um það til
hvers nota eigi gögnin:
„Teljið þér eftir skoðun gagn-
anna nauðsynlegt að fá afrit gagn-
anna í heild eða að hluta er óskað
skriflegrar beiðni yðar þar að lút-
andi þar sem tilgreint yrði í hvaða
skyni fyrirhugað er að nota þau
gögn sem óskað er leyfis að af-
rita,“ segir í bréfi til réttargæslu-
mannsins. ■
Afrit rannsóknargagna Skerjafjarðarslyssins enn ekki afhent:
Upplýsi tilgang
gagnaöflunar
LÖGREGLAN Í REYKJAVÍK
Lögreglan vill fá að vita til hvers ættingjar
fórnarlamba Skerjafjarðarslyssins vilja fá
afrit rannsóknargagna.
Hátt í 300 hafa sótt um hjá Vinnumiðlun skólafólks:
Þörfin fyrir
atvinnu mikil
UNGMENNI AÐ STÖRFUM
Sú nýbreytni er að einungis er hægt að
sækja um vinnu á heimasíðu Hins Húss-
ins. Ef umsækjendur hafa ekki aðgang að
netinu geta þeir komið í Vinnumiðlunina
en þar eru tölvur með netaðgangi. Slóðin
er www.hitthusid.is/vinnumidlun.