Fréttablaðið - 06.03.2003, Side 18
18 6. mars 2003 FIMMTUDAGURKAPPHLAUP
PÖNNUKÖKUHLAUP
Juliette Minter bar sigur úr býtum á hinu
árlega Olney-pönnukökuhlaupi sem haldið
var á Englandi á dögunum. Hún hljóp 380
metrana á 63 sekúndum. Á sama tíma var
pönnukökuhlaup haldið í borginni Liberal í
Kansas í Bandaríkjunum. Þar vann Cheri
Bevis á tímanum 61,52 sekúndum.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
16.45 Sjónvarpið
Handboltakvöld. Endursýndur
þáttur frá miðvikudagskvöldi.
18.00 Sýn
Sportið með Olís. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
18.25 Sjónvarpið
Snjókross. Þáttaröð um
kappakstursmótaröð vélsleða-
manna.
18.30 Sýn
Western World Soccer Show.
Heimsfótbolti West World.
19.15 Ásvellir
Haukar og KR eigast við í Inter-
sport-deildinni í körfubolta.
19.15 Hveragerði
Hamar tekur á móti Grindavík í
Intersport-deildinni í körfu-
bolta. Grindvíkingar eru ný-
krýndir deildarmeistarar en
Hamar berst um sæti í úrslita-
keppninni.
19.15 Keflavík
Bikarmeistarar Keflavíkur
mæta Snæfelli í Intersport-
deildinni í körfubolta.
19.15 Njarðvík
Njarðvík og Breiðablik eigast
við í Intersport-deildinni í
körfubolta. Breiðablik er í
harðri baráttu um sæti í úr-
slitakeppninni.
19.15 Seljaskóli
ÍR-ingar taka á móti Tindastóls-
mönnum í Intersport-deildinni í
körfubolta. ÍR er í sjöunda sæti
deildarinnar en Tindastóll í
sætinu fyrir neðan.
19.15 Valsheimili
Valur mætir Skallagrími í Inter-
sport-deildinni í körfubolta.
20.00 Sýn
Sýnt frá Nissan-mótinu í
bandarísku PGA-mótaröðinni í
golfi.
21.00 Sýn
Sýnt frá Suður-Afríkumótinu í
evrópsku PGA-mótaröðinni í
golfi.
22.00 Sýn
Sýnt frá bandarísku PGA-móta-
röðinni í golfi.
22.30 Sýn
Sportið með Olís. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
23.00 Sýn
Football Week UK. Nýjustu
fréttirnar úr enska boltanum.
23.20 Sjónvarpið
Formúla 1 –
upphitun. Í
þættinum verð-
ur hitað upp
fyrir Formúlu 1
kappaksturinn
sem hefst um helgina. Ýmsar
breytingar hafa átt sér stað síð-
an í fyrra og verða þær skýrðar
í þættinum.
23.30 Sýn
HM 2002. Sýnt frá leik Brasilíu
og Kína á HM í fótbolta síðasta
sumar.
AP/M
YN
D
FÓTBOLTI Roy Keane, fyrirliði
Manchester United, hefur áhuga á
því að gerast knattspyrnustjóri
liðsins í framtíðinni.
„Þetta er eitthvað sem ég hef
hugsað um og það er svo sannar-
lega eitthvað sem höfðar til mín,“
sagði Keane, sem er 31 árs. „Ég
hef verið svo heppinn að leika
undir stjórn tveggja af bestu
knattspyrnustjórum fótboltans,
Brian Clough [fyrrverandi stjóra
Nottingham Forest], og Alex
Ferguson [stjóra United]. Sú til-
hugsun að verða stjóri Manchest-
er United er frábær. Það er áskor-
un sem ég myndi vilja takast á við
en ég held samt að núverandi
stjóri verði hér næstu árin.“
Keane segist vera ósáttur við
frammistöðu sína með United síð-
an hann sneri aftur eftir meiðsli.
Hann telur þó að leikur sinn sé að
batna með hverjum leik. „Fólk
hefur afskrifað bæði mig og liðið.
Það hentar okkur vegna þess að
ég held að liðið eigi fyrir höndum
góða mánuði,“ sagði Keane. „Ég
veit hversu óánægðir aðdáendur
liðsins voru eftir síðustu leiktíð og
við viljum ekki ganga í gegnum
það aftur.“ ■
Ernie Els í
Miðausturlöndum:
Hafði efa-
semdir um
þátttöku
GOLF Kylfingurinn Ernie Els játar
að hafa haft efasemdir um að
fljúga til Miðausturlanda til að
taka þátt í Dubai Desert Classic-
mótinu í Evrópsku mótaröðinni í
golfi sem hefst í dag.
Tiger Woods og Colin
Montgomerie eru meðal þeirra
sem ákváðu að taka ekki þátt í
mótinu vegna stjórnmálaástands-
ins á svæðinu.
„Ástandið þarna er alvarlegt
og það kom mér ekki á óvart þeg-
ar þeir drógu sig út úr mótinu.
Það er ekkert rétt eða rangt í
þessu en ég er mjög ánægður með
að vera kominn hingað,“ sagði Els,
sem vann mótið í fyrra. ■
FÓTBOLTI Dion Dublin, framherji
Aston Villa, gæti átt yfir höfði sér
lögregluákæru eftir að hann skall-
aði Robbie Savage, leikmann
Birmingham, í nágrannaslag lið-
anna á mánudag.
Eins og kunnugt er var Jóhann-
es Karl Guðjónsson, leikmaður
Villa, einnig rekinn út af fyrir
grófa tæklingu auk þess sem átök
brutust út á meðal stuðnings-
manna liðanna. Tveir lögreglu-
þjónar voru fluttir á sjúkrahús og
40 fótboltabullur voru handteknar.
Þrátt fyrr að Dublin hafi beðist
afsökunar á framferði sínu hefur
lögreglan á Bretlandseyjum ekki
útilokað að leikmaðurinn verði
ákærður. „Við eigum eftir að skoða
myndir frá leiknum og síðan mun-
um við taka ákvörðun í málinu,“
sagði talsmaður lögreglunnar.
Dublin segist algjörlega hafa
misst stjórn á skapi sínu í leiknum.
„Ef þeir vilja grípa til einhverra
aðgerða er það þeirra ákvörðun.
Það sem ég gerði var rangt.“ Talið
er að Dublin eigi einnig yfir höfði
sér að minnsta kosti þriggja leikja
bann hjá enska knattspyrnusam-
bandinu fyrir athæfið.
Graham Taylor, knattspyrnu-
stjóri Villa, hefur þegar sektað
Dublin um tveggja vikna laun.
Hann hefur ekki reynt að verja
hegðun leikmanna sinna. „Það sem
Dublin og Jóhannes gerðu var
óverjandi. Ég get ekki og mun ekki
reyna að afsaka hegðunina fyrir
þeirra hönd.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
knattspyrnumenn skalla andstæð-
ing sinn í leik. Craig Bellamy, leik-
maður Newcastle, var dæmdur í
þriggja leikja bann fyrir að skalla
Tiberiu Ghioane, leikmann Dyna-
mo Kiev, í leik í Meistaradeild Evr-
ópu í desember á síðasta ári. Auk
þess var Zinedine Zidane, þáver-
andi leikmaður Juventus, dæmdur
í leikbann fyrir að skalla Jochen
Kuntz, leikmann Hamburger, í leik
í Meistaradeildinni árið 2000.
Þrátt fyrir að öll ofantalin atvik
teljist alvarleg er Duncan
Ferguson, leikmaður Everton, eini
breski leikmaðurinn sem hefur
fengið ákæru fyrir að skalla and-
stæðing. Ferguson sat í fangelsi í
sex vikur 1995 fyrir slíkt brot í leik
með Glasgow Rangers. Á næstu
dögum mun koma í ljós hvort
Dublin sleppi með skrekkinn. ■
Verður Dublin
ákærður af lögreglu?
Lögreglan á Englandi rannsakar atvik í leik Aston Villa og Birmingham
City á mánudag þegar Dion Dublin, leikmaður Villa, skallaði andstæð-
ing sinn. Dublin hefur verið sektaður og á leikbann yfir höfði sér.
DUBLIN
Dion Dublin, til vinstri, á
yfir höfði sér leikbann
fyrir fólskulegt brot sitt
á mánudaginn.
BELLAMY
Craig Bellamy var á sínum tíma dæmdur í
þriggja leikja bann fyrir að skalla andstæð-
ing sinn í höfuðið.
Roy Keane:
Vill verða
stjóri United
KEANE
Roy Keane ætlar að snúa sér að þjálfun þegar leikmannaferlinum lýkur.
Vandaðar heimilis- & gjafavörur
Kringlan 4-12 • s. 533 1322
Sex
kristalsglös í kassa
kr. 1990
Heima-
kynningar
&
Fegurð
þægindi
Undirföt.is
Sími 821 4244