Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.03.2003, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 06.03.2003, Qupperneq 22
Fred Durst, söngvari Limp Bizkit,segir að hann sé búinn að ná sátt- um við poppsöng- konuna Britney Spears. Hann ætlar því ekki að tjá sig oftar um meint ást- arsamband þeirra. Þau stungu víst stuttlega saman nefjum þegar Durst vann að lög- um fyrir væntanlega breiðskífu Britney. Eitt lag á væntanlegri breiðskífu Limp Bizkit heitir „Just Drop Dead“ og hefur Durst viður- kennt að Britney hafi gefið sér inn- blásturinn til þess að semja lagið. Massive Attack hefur aflýst fyrir-hugaðri tónleikaferð um heim- inn. Ástæðan er sú að höfuðpaur sveitarinnar, Robert del Naja eða 3D eins og hann er kallaður, sem hefur verið sakaður um að eiga barna- klám, segist vilja hreinsa nafn sitt áður en hann ferðast út úr heima- landinu. Sveitin átti að koma fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi í næstu viku til þess að kynna nýju breið- skífuna sína „100th Window“. 3D segist hafa alla trú á því að réttar- kerfið leiði fram sakleysi sitt. Aðdáendur leikkonunnar ChristinuRicci eiga von á glaðningi því stúlkan kemur fram allsnakin í væntanlegri kvikmynd, „Monster“. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum og fjallar um fjöldamorðingjann Ai- leen Wournos. Hún var vændiskona í Flórída sem kom sjö viðskiptavinum sínum fyrir katta- rnef. Wuornos verður leikin af Charlize Theron en Ricci leikur ástkonu hennar. Wuornos var tekin af lífi af yfirvöld- um Flórída í fyrra fyrir glæpi sína. 22 6. mars 2003 FIMMTUDAGUR LORD OF THE RINGS 4, 8/ 5.30 í lúxusSPY KIDS 2 kl. 3.45 og 5.50 GANGS OF NEW YORK kl. 9 í Lúxus GANGS OF NEW YORK b.i.16 4.30, 8, 10.10 I SPY b.i. 12 ára kl. 8 DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN JUWANNA MANN kl. 4 og 6 GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 4CATCH ME IF YOU CAN kl. 8 og 10.15 JACKASS b.i.14.ára kl. 8 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 og 6 TWO WEEKS NOTICE 5.50, 8, 10.10 Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.20 b.i.16.ára kl. 10CATCH ME IF YOU CAN Forsýnd kl. 9ADAPTATION kl. 6STELLA Í FRAMBOÐI kl. 8 og 10.10LILJA 4-EVER Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 b.i.16.ára kl. 6 og 8TWO WEEKS NOTICE Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 b.i.16.ára Sýnd í lúxus kl. 5.45, 8 og 10.15 kl. 4 ■ KVIKMYNDIR KVIKMYNDIR Norrænir bíódagar fóru af stað í fyrra sem hluti af nám- skeiði í Háskóla Íslands þar sem farið er í kvikmyndagerð á Norður- löndum. Öllum gefst þó kostur á að berja þær fimm myndir sem sýnd- ar verða í Háskólabíói næstu fimm daga augum. Myndirnar eru inn- byrðis ólíkar eins og þjóðirnar. Finnska myndin „Maður án for- tíðar“ (Mies vailla menneisyyttä) er frá því í fyrra. Myndin er önnur mynd Finnlandsþríleiks leikstjór- ans Aki Kaurismäki. Hún hefur sópað til sín verðlaunum og fékk í síðasta mánuði tilnefningu til Ósk- arsverðlauna sem „besta erlenda myndin“. Fyrsta myndin í þríleikn- um var „Svífandi ský“ (Kauas pil- vet karkaavat) frá árinu 1996 og fjallaði um atvinnuleysi í Finn- landi. Önnur myndin fjallar um heimilislaust fólk á götum Helsinki. Kaurismäki þykir nálgast viðfangsefni sín með gamansemi og hlýju. Myndin segir frá M, manni sem missir minnið og verður að byggja sig upp frá grunni í þjóðfélaginu á ný án kennitölu, persónuskilríkja eða eldri visku. Hann verður ást- fanginn af konu í Hjálpræðishern- um og kynnist litríkum persónum á götum Helsinki. Leikstjóri sænsku myndarinnar „Lilya 4-ever“, Lukas Moodyson, ætti að vera íslenskum kvikmynda- áhugamönnum kunnur. Fyrri myndir hans „Fucking Åmål“ og „Tillsammans“ hafa verið vinsælar hér á landi. Nýja myndin gerist í fá- tækrahverfi í gömlu Sovétríkjun- um og fjallar um 16 ára gamla stúlku, Lilyu, sem er yfirgefin af móður sinni. Eini vinur hennar er 11 ára gamall drengur og hana dreymir um betra líf. Hún hoppar því á fyrsta tækifærið sem hún fær þegar hún hittir Andrej, sem er á leiðinni til Svíþjóðar. Færeyska kvikmyndin „Bye Bye Bluebird“ gekk afar vel í dönskum kvikmyndahúsum enda talin með betri myndum eyjanna frá upphafi. Hún fjallar um tvær færeyskar stúlkur sem snúa aftur heim eftir langa dvöl erlendis til þess að leysa erfið fjölskyldumál. Danska kvikmyndin „Okay“ skartar leikkonunni Papriku Steen í aðalhlutverki. Myndin er gaman- söm með alvarlegum undirtón og fjallar um það þegar fjölskylda tek- ur pabba húsmóðurinnar inn á heimilið. Frá Noregi kemur gamanmynd- in „Detektor“ sem fjallar um ósjálfbjarga karlmann sem flytur loks að heiman eftir áralanga og þægilega vist á Hótel Mömmu. Norræna húsið stendur að Nor- rænum bíódögum í samstarfi við norræna sendikennara við Háskóla Íslands, kvikmyndaklúbbinn Film- Undur og Íslensku kvikmyndasam- steypuna. biggi@frettabladid.is Norrænir bíó- dagar hefjast í dag Í dag hefjast norrænir bíódagar í Háskólabíói. Þar verða sýndar fimm athyglisverð- ar kvikmyndir: „Maður án fortíðar“ frá Finnlandi, „Okay“ frá Danmörku, „Lilya 4-ever“ frá Svíþjóð, „Bye Bye Bluebird“ frá Færeyjum og „Detektor“ frá Noregi. Skráningarsími 561 8585 Yogaspuni Gauja litla www.gauilitli.is 8 vikna aðhald í World Class aðeins 14.500 kr. Ný námskeið hefjast 10. mars MAÐUR ÁN FORTÍÐAR Finnska myndin „Maður án fortíðar“ er talin eitt besta verk leikstjórans Aki Kaurismäki. Myndin er tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár sem „besta erlenda myndin“. Fréttiraf fólki Heimsendingar og sótt! A f g r e i ð s l u t í m i : 1 1 - 2 4 v i r k a d a g a o g 1 1 - 0 3 u m h e l g a r Grensásvegur 12 533 2200 SPRENGITILBOÐ! 12“ pizza m/3 áleggstegundum 690 kr. 16“ pizza m/3 áleggstegundum 990 kr. 18“ pizza m/3 áleggstegundum 1.190 kr. EF SÓTT EF SÓTT EF SÓTT gildir 28. feb - 9. mars þegar sótt er

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.