Fréttablaðið - 06.03.2003, Qupperneq 23
23FIMMTUDAGUR 6. mars 2003
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 Sýnd kl. 6 og 9 bi. 16 ára
ABOUT SCHMIDT kl. 5.30, 8 og 10.30 KALLI Á ÞAKINU m/ísl.tali kl. 4
THE HOT CHICK kl. 4 og 8
SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 og 6
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5.50 FRIDA kl. 5.30, 8 og 10.30 bi. 12 ára ABOUT SCHMIDT kl. 5.30, 8, 10.30
CHICAGO kl. 5.30, 8 og 10.30Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 bi. 16 ára
Önnur plata Calexico var meist-araverk, sú þriðja vonbrigði
sem framhaldsplata. Nú lítur sú
fjórða dagsins ljós með einu hræði-
legasta plötuumslagi sem sögur
fara af. Ég var því nokkuð skjálf-
hentur þegar ég setti þessa á fón-
inn.
Maður á víst ekki að dæma
menn af bindum þeirra eða bækur
af kápum. Guði sé lof fyrir það að
þessi gamla lumma skuli annað
slagið standast. Og það gerist bless-
unarlega í þetta skiptið. „Feast of
Wire“ heldur manni auðveldlega í
jafnvægi í ójafnvægi heimsmála
því félagarnir í Calexico hífa aldeil-
is upp um sig buxurnar.
Rammi tónlistarinnar er sá
sami, sveimandi brimtónum er
blandað saman við mexíkóska
mariachi-tóna sem minna á köflum
á spagettívestratóna Morricone.
Það er þó eins og Calexico hafi orð-
ið fyrir nýrri andagift. Tónarnir
eru melódískari og samleikur bassa
og trommu myndi sóma sér betur á
reykfylltri djassbúllu í Amsterdam
en áður. Lögin eru þó engar síð-
þreytu-rokks langlokur og fæst yfir
3 mínútur að lengd.
Framúrskarandi plata, og lög á
borð við „Quatro“, „Black Heart“
og „Not Even Stevie Nicks“ enda í
flokki bestu laga sveitarinnar.
Birgir Örn Steinarsson
CALEXICO: Feast of Wire
Umfjölluntónlist
Ljótt umslag,
ljúft innihald
Blaðamenn breska tónlistartíma-ritsins NME hafa valið fyrstu
breiðskífu The Stone Roses „bestu
plötu allra tíma“. Platan, sem hét
nafni sveitarinnar, var hljóðrituð á
einni nóttu til þess að spara upp-
tökukostnað. Hún var gefin út árið
1989. Blaðið birti hundrað bestu
plötur allra tíma og vakti athygli
að hæsta plata Bítlanna, sem yfir-
leitt hafa trónað á toppnum, var
ekki nema í fimmta sæti. Topp 5
var sem hér segir: 1. The Stone
Roses - „The Stone Roses“, 2. Pix-
ies - „Doolittle“, 3. The Beach
Boys - „Pet Sounds“, 4. Television -
„Marquee Moon“ og 5. The Beatles
- „Revolver“.
Útgáfudagurnýrrar
breiðskífu
Madonnu,
„American
Life“, verður
21. apríl. Á
plötunni verður að finna tíu ný lög
auk þess sem James Bond-lagið,
„Die Another Day“, verður á plöt-
unni.