Fréttablaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 28
30 6. mars 2003 FIMMTUDAGUR BÓKMENNTIR Lesendur fréttavefjar BBC hafa ákveðið að lesa saman skáldsöguna Heart of Darkness, eða Innstu myrkur, eftir Joseph Conrad, í tilefni af alþjóðlegum degi bókarinnar 6. mars. Conrad skrifaði bókina árið 1899 þegar stórveldi Evrópu ráku hina hörðu nýlendustefnu sína af miklum ákafa. Bókin er einna þekktust í dag fyrir það að Francis Ford Coppola byggði hina umtöluðu Víetnam- mynd sína frá 1979, Apocalypse Now, á henni. Coppola færði sögu- sviðið að vísu frá Afríku til Asíu en hélt annars þræði Conrads í veiga- miklum atriðum. ■ TÍSKA Tískuvikan í Mílanó þótti fara höktandi af stað en í tísku- heimum er umtalað að Roberto Cavalli hafi slegið í gegn með sýn- ingu sinni á mánudag. Donatella Versace þykir hafa sett nýjan stað- al fyrir smekkleysu. Tískugagnrýnendur voru harð- orðir og virkuðu margir hverjir pirraðir yfir því hversu fáir hönn- uðir þorðu að taka áhættu. Sá sem lenti einna verst í klóm tískulög- reglunnar var Graeme Black, sem hannar fyrir Salvatore Ferragamo. Sýning hans þótti líflaus og dauf. Sýning Cavalli þótti afar fjöl- breytt, hann fór yfir allt litrófið og var alls ekki feiminn við skæru neonlitina þrátt fyrir að þeir væru á engan hátt þema hjá honum. Kjólar voru flestir litríkir og flest fötin voru þess eðlis að þau myndu draga að sér athygli út á götu. Aðrir hönnuðir sem fengu mik- ið hrós voru Milan Vukmirovic, sem hannar föt eftir tónlistarstefnum fyrir Jil Sander, Moschino-tísku- húsið þótti smekklegt og Missoni, sem tók reyndar ekki þátt í ýktri lita- gleðinni, en þótti hanna ein- staklega kyn- þ o k k a f u l l a kjóla. ■ Tískuvika í Mílanó: Haltraði af stað en náði svo flugi RAUÐUR LOÐHAUS Sýning Moschino þótti glæsileg á sama tíma og hún var frumleg. Þessi rauði loðhattur, ef betra orð finnst ekki, kæmi sér örugglega vel í vetrarkuldanum næsta haust. SMEKKLEYSA Donatella Versace þótti setja nýja línu fyrir smekkleysu. Söngkonan Christina Aguilera mætti á sýningu hennar og þótti, ótrúlega en satt, bara nokkuð glæsileg til fara mið- að við það sem var á sýningarpöllunum. GLÆSILEGUR KJÓLL Sýning Cavelli var afar fjölbreytt. Þessi kjóll gefur reyndar ekki rétta mynd af sýning- unni sjálfri en lokkaði auga ljósmyndara af augljósum ástæðum. Flest föt Cavelli voru í litríkari kantinum. Dagur bókarinnar: Skyggnst í innstu myrkur MARTIN SHEEN Lék aðalhlutverkið í Apocalypse Now, sem var byggð á Heart of Darkness. TÁLKVENDI Stúlkan myndi líklega fella marga pilta í þessum kjól. Rauður kvöld- kjóll úr silki með æpandi mynstri . Pinna- hælarnir virðast svo ætla að verða langlífir. Þessi kjóll var sýndur á sýningu Missoni á þriðjudag.GULLGALLI Þessi gyllti galli eftir Roberto Cavalli myndi lífga upp á hvaða gleðskap sem er.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.