Fréttablaðið - 06.03.2003, Side 30
30 6. mars 2003 FIMMTUDAGUR
HVAR? AFMÆLI
FORSTÖÐUMAÐUR „Ég verð að játa
það að ég fer ekki mjög oft í bíó
enda hef ég mun meiri áhuga á for-
tíðinni og þá um leið eldri perlum
kvikmyndasögunnar“, segir Þórar-
inn Guðnason, nýskipaður forstöðu-
maður Kvikmyndasafns Íslands.
„Þessi áhugi kemur víða fram, ekki
síst hvað varðar fornsögurnar, en
ég hef setið mörg námskeið hjá
Jóni Böðvarssyni. Það segir sína
sögu og ég er eiginlega orðinn hálf-
gerður safngripur sjálfur.“
Kvikmyndasafnið hefur aðsetur
í Hafnarfirði en Þórarinn er einmitt
fæddur þar. „Ég er Hafnfirðingur,
ólst upp í bænum og mitt fólk bjó
hér. Ég gekk í Lækjaskóla og Flens-
borg en fór síðan í loftskeyta-
mannsnám og í símvirkjun upp úr
því. Það má segja að ég sé rafeinda-
virki að upplagi. Það stóð alltaf til
að ég færi á sjóinn sem loftskeyta-
maður en það gekk hins vegar ekki
þar sem ég var allaf sjóveikur. Ég
lagði því rafeindavirkjunina fyrir
mig og þegar Sjónvarpið byrjaði
var ég einn þeirra tíu tæknimanna
sem voru ráðnir þangað í upphafi.“
Þórarinn var deildarstjóri kvik-
myndadeildar Sjónvarpsins í nokk-
ur ár en hún var þá tæknilegt bak-
bein stöðvarinnar þar sem allt efni
var tekið upp á filmu. „Árið 1981
fór ég í prívatbransann í kvik-
myndagerðinni þegar ég stofnaði
Lifandi myndir ásamt þeim Sigurði
Sverri Pálssyni og Erlendi Sveins-
syni. Við fórum í gegnum kvik-
myndavorið svokallaða en ákváð-
um að hætta í þessari nettu kreppu
sem byrjaði 1995, en þá lagðist
heimildarmyndagerð, sem við höfð-
um aðallega verið í, nokkurn veg-
inn af. Þá fór ég til Kvikmynda-
safnsins og hef unnið þar síðan,
fyrst sem safnvörður frá 1995 og
síðan sem forstöðumaður frá 2001.“
Þórarinn býr í Mosfellsbæ
ásamt eiginkonu sinni. Börnin eru
sjö og eitt þeirra býr enn í foreldra-
húsum. Þórarinn verður sextugur í
sumar. Hann er mikill áhugamaður
um útivist og ferðalög. „Ég hef
komið á flesta staði á landinu enda
var ég kvikmyndatökumaður hjá
Sjónvarpinu í tólf ár og fór þá oft
með Ómari Ragnarssyni í litlu flug-
vélinni hans við misjafnar aðstæð-
ur. Ég á margar góðar minningar
frá þeim ferðalögum.“ ■
Þórarinn Guðnason hefur verið skipaður
forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands.
Hann er mikill útivistarmaður og segist hafa
gaman af því að grúska í fortíðinni þar sem
gamlar kvikmyndaperlur og fornsögur heilla.
Stöðuveiting
Orðinn hálfgerður safngripur
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
ÞÓRARINN GUÐNASON
„Ég hef átt þess kost að fara víða um
heiminn og hef komið við í flestum
heimshornum. Ætli það megi ekki segja
að ferðirnar í kringum hnöttinn séu orðn-
ar nokkrar.“
Hvernig bjargar þú Hafnfirð-ingi frá drukknun?
Lætur honum bregða svo hann
hrökkvi í kút.
Sigurjón Gunnsteinsson.
19 ára.
James Gandolfini.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
Að gefnu tilefni skal tekið fram að stjórn-
málaumræðan þarfnast hreins lofts.
Leiðrétting1.
2.
3.
Ég er enn við sama heygarðs-hornið,“ segir Bjarni Friðriks-
son júdókappi, sem vann til brons-
verðlauna á Ólympíuleikunum í Los
Angeles árið 1984. „Ef eitthvað er
hef ég aukið við júdóið. Ég er að
kenna öllum aldurshópum hjá Júdó-
félagi Reykjavíkur.“
Bjarni hætti að keppa árið 1993
en „gamalt bros“ tók sig upp þrem-
ur árum seinna. „Þá keppti ég í þrjá
mánuði upp á grínið.“
Bjarni starfar einnig sem lands-
liðsþjálfari í júdó. „Stundum lang-
ar mig að vera með en þegar ég sé
lætin og hamaganginn snýst mér
hugur.“ ■
JARÐARFARIR
13.30 Björn Ragnarsson, Lindargötu 20,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju.
13.30 Elín Guðmundsdóttir, Skólagerði
15, Kópavogi, verður jarðsungin
frá Kópavogskirkju.
13.30 Sveinn Guðfinnur Ragnarsson,
Fannborg 1, Kópavogi, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju.
ANDLÁT
Guðmundur Kristinsson frá Nýhöfn lést
föstudaginn 28. febrúar.
Haraldur Sigþór Bergmann lést 14.
febrúar og var jarðsettur 4. mars.
AFMÆLI
Tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugs-
synir eru þrítugir.
TÍMAMÓT FRÉTTIR AF FÓLKI
30 ÁRA „Nú er ekki aftur snúið,“
segir Bjarki Gunnlaugsson en
þeir tvíburabræður, Arnar og
hann, eru þrítugir í dag. Bjarki er
búsettur hér á landi og rekur
tískuvöruverslunina Retro í
Kringlunni og á Laugavegi ásamt
því að æfa knattspyrnu með KR.
Hann vonast til að geta leikið með
Íslandsmeisturunum í sumar en
hann hefur átt við meiðsli að
stríða. Hann ætlar að bjóða nán-
ustu ættingjum heim í kvöld.
Arnar býr aftur á móti í
Skotlandi og lék um tíma með
Dundee. Hann hefur verið að
þreifa fyrir sér hjá öðrum liðum
en kemst hvergi þar sem leik-
mannamarkaðurinn er lokaður.
Arnar æfði í viku tíma hjá Pusan
í Suður-Kóreu en segist ekki ætla
að fara þangað vegna ástandsins
í Norður-Kóreu. „Eins og ástand-
ið er þar núna er ekki spennandi
kostur að draga fjölskylduna
þangað,“ segir Arnar. Í dag ætlar
hann í golf með vini sínum og í
kvöld býður hann í smá partí.
Bræðurnir eru ekki vanir að
halda saman upp á afmælið, eins
og þeir gerðu á yngri árum, enda
hafa þeir leikið knattspyrnu hvor
í sínu landi á síðustu árum. Þeir
ætla þó að bregða út af vananum
og blása til heljarinnar veislu í
næstu viku þegar Arnar kemur
heim frá Skotlandi. Bjarki segir
að þeir hafi verið neyddir til að
halda veislu og fagna árunum
þrjátíu.
Þegar bræðurnir voru yngri
fengu þeir eins gjafir. Á síðustu
árum hafa þeir verið í keppni sín
á milli um hvor gefur flottari gjöf.
„Þetta er nú komið út í hálfgert
rugl,“ segir Bjarki en vill þó ekki
gefa upp hvað felist í því. „Það má
ekki segja.“
Arnar er þegar búinn að kaupa
gjöfina handa Bjarka. Hann tekur
samt ekki undir að afmælisgjafa-
keppnin sé komin út í eitthvert
rugl.
„Bjarki er orðinn 30 ára og þá á
hann skilið eitthvað meira en
kerti og spil,“ segir hann og bætir
við. „Ég get lofað því að hann
verður ekki fyrir vonbrigðum.“
kristjan@frettabladid.is
ARNAR GUNNLAUGSSON
Býr í Skotlandi og vonast til að komast að
hjá liði í útlöndum.
BJARKI GUNNLAUGSSON
Býr hér á landi og leikur væntanlega með
KR í sumar.
Bregða út af
vananum og
bjóða í veislu
Tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunn-
laugssynir, knattspyrnumenn, eru þrítugir í
dag. Þeir eru hvor í sínu landinu en ætla að
halda saman upp á afmælið í næstu viku.
Fréttir þess efnis að DavíðOddsson forsætisráðherra sé
ekki falur fyrir 300 milljónir hafa
gefið ritstjórn hins mjög svo
vinstrisinnaða
vefrits Múrinn.is
tilefni til að velta
fyrir sér hinu og
þessu sem kaupa
má fyrir fyrr-
greinda upphæð.
Þar á meðal
nefna þeir að
með þessari upp-
hæð megi „fjár-
magna átak Framsóknarflokksins
gegn fíkniefnum í 110 daga“,
halda Þórarni V. Þórarinssyni
uppi í „þeim stíl sem hann hefur
tamið sér í 25 ár í viðbót“. Þá má
einnig kaupa tvö Stjörnubíó og
„kumbalda“ fyrir peningana.