Fréttablaðið - 06.03.2003, Side 32

Fréttablaðið - 06.03.2003, Side 32
Láttu erfiða viðskiptavini ekki koma þér úr jafnvægi! Söluskóli Crestcom, einn virtasti skóli heims í söluþjálfun, kynnir nýtt þriggja vikna námskeið sem hefst miðvikudaginn 19. mars. Þátttakendur öðlast m.a. þjálfun í: • Að greina merki um kaupáhuga og gera stöðuathuganir • Að snúa hörðum mótbárum í jákvæð viðskipti • Að eiga við erfiða viðskiptavini • Að semja á árangursríkan hátt • Að ljúka sölu af öryggi. Nýtt nám skeið í sölu- og sam ningatæ kni hefst 19. m ars Crestcom er alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki sem er starfandi í yfir 50 löndum. AT&T, Coca Cola, Kodak, Microsoft, Oracle, Shell, Sony og Toyota eru á meðal margra heimsþekktra fyrirtækja sem hafa notað Crestcom til að þjálfa starfsmenn sína.Skráning og upplýsingar: crestcom@crestcom.is og í símum 561 5800 og 896 6960. Leiðbeinandi: Þorsteinn Garðarsson viðskiptafræðingur SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar Steinunnar Stefánsdóttur Varðhundar og villikettir Afstaða ráðherra til málaflokkasinna er afar mismunandi. Flestir líta á sig sem nokkurs konar varðhunda síns málaflokks, standa með honum og verja hann fram í rauðan dauðann, jafnvel út yfir öll skynsemismörk. Þetta finnst mér samt nokkuð virðingarverð afstaða. Maður sem skipaður hefur verið ráðherra ákveðins málaflokks á að verja hann. Auðvitað snúast stjórn- mál um málamiðlanir en hver og einn ráðherra verður þó að bera þá virðingu fyrir sínum málaflokki að hann sé tilbúinn til að berjast hressilega fyrir honum. LANDBÚNAÐARRÁÐHERR- ANN er fallegt dæmi um ráðherra sem vaktar sinn málaflokk. Hann stendur vörð um landbúnaðinn, hvað sem tautar og raular, kyssir jafnvel kýr og klæðist afkáralegum lopahúfum, allt til að sýna samhug sinn með málaflokknum. Sömuleiðis verður ekki annað sagt um iðnaðar- ráðherrann en að hún standi vörð um sitt. Hún hafnar öllum rökum þegar rætt er um virkjanir og stór- iðju, lítur á andstæðinga slíkra áforma sem hreinræktaða hryðju- verkamenn og dóna og skammast sín ekkert fyrir að segja það. Þarna er iðnaðurinn ofar öllu. Í ÞEIM ANDA hefur iðnaðarráð- herrann gengið fram fyrir skjöldu og sagt, alveg undrandi, að ef líta eigi á friðað land sem friðað land um aldur og ævi þá þurfi heldur betur að endurskoða þau mál. Hitt er undarlegra þegar umhverfisráð- herrann tekur undir. Þá hefur hún heldur betur sagt skilið við varð- hundshlutverkið. Hún er svo sann- arlega ekki varðhundur umhverfis- ins heldur má segja að hún bregði sér í líki kattar og smeygi sér þang- að sem þægilegast er að vera. LJÓST er að við sem lifum á okkar dögum ráðum ákaflega litlu um það hvaða ákvarðanir niðjar okkar kunna að taka og því minna því lengra sem við förum inn í framtíð- ina. En er það ekki lágmarkskrafa að umhverfisráðherra líti á friðun sem friðun en ekki einhverja mátt- litla yfirlýsingu um að tiltekið land verði látið ósnert að minnsta kosti í ár og næsta ár? Ef umhverfisráð- herrann ver ekki umhverfið, hver gerir það þá? ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.