Fréttablaðið - 07.03.2003, Qupperneq 1
ÍÞRÓTTIR
Danir teknir
í bakaríið
bls. 18
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 7. mars 2003
Tónlist 20
Leikhús 20
Myndlist 20
Bíó 22
Íþróttir 18
Sjónvarp 24
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
FUNDUR Launajafnrétti – hvernig
gengur? er yfirskrift fundar sem
haldinn verður á Setrinu, Grand
Hótel, í tilefni af alþjóðlegum bar-
áttudegi kvenna. Ingólfur V. Gísla-
son, Þorgerður Einarsdóttir, Gunn-
ar Páll Pálsson, Hildur Jónsdóttir
og Ragnhildur Helgadóttir flytja
framsöguerindi. Fundurinn hefst
klukkan tólf.
Launajafnrétti –
hvernig gengur?
ÍRAKSDEILA Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna – vopnaeftirlitsmenn gefa
skýrslu um gang mála í Írak.
Skýrsla um Írak
TÓNLEIKAR Hljómsveitin Singapore
Sling og Rafgashaus rokka á
Grandrokk á sama tíma og
diskódúettinn Þú og ég verður í
banastuði á Kringlukránni.
Rokk og diskó
VIÐSKIPTI Sala ríkisins á bréfum
sínum í Búnaðarbankanum hefst
við opnun markaða klukkan tíu.
Nafnvirði þess sem selt verður er
493 milljónir og verða bréfin seld í
gegnum kerfi Kauphallar Íslands.
Bréf í Búnaðar-
banka
AFMÆLI
Íhaldssamur
anarkisti
FÖSTUDAGUR
56. tölublað – 3. árgangur
bls. 8
REYKJANESBÆR
Skilaboð með
dansbanni
bls. 30
ÞETTA HELST
KVIKMYNDIR
bls. 4
Stór
bíóhelgi
STJÓRNMÁL
Í sporum
Davíðs
bls. 22
REYKJAVÍK Austlæg átt, 13-18
m/s og dálítil rigning eða
slydda undir kvöld. Hiti 3 til
7 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 13-20 Él 0
Akureyri 5-10 Él 2
Egilsstaðir 5-10 Él 3
Vestmannaeyjar 0-15 Rigning 3
➜
➜
➜
➜
+
+
+
+
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
24%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
föstudögum?
66%
71%
DEILUR Hreinn Loftsson, stjórnar-
formaður Baugs, vill ekki ræða
frekar um samskipti sín og Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra í fjöl-
miðlum.
Skömmu eftir komu sína til
landsins frá London í gær veitti
hann Ríkisútvarpinu viðtal þar
sem hann sagði umfjöllunina síð-
ustu daga hafa verið óheppilega.
Hann sagði álit sitt á forsætisráð-
herra óbreytt þrátt fyrir deilur
þeirra í fjölmiðlum að undanförnu
og að það þurfi mun meira en deil-
ur þeirra á milli til að hann segi
skilið við Sjálfstæðisflokkinn. Þá
sagðist hann ekki ætla að segja sig
úr stjórn Baugs.
Hreinn hafði lofað að mæta í
spjallþættina Ísland í dag á Stöð 2
og Kastljósið í Sjónvarpinu í gær-
kvöld en klukkan rúmlega sex
sendi hann frá sér yfirlýsingu þar
sem hann afboðaði komu sína í
þættina. Í yfirlýsingunni segist
hann ekki hafa neinu við það að
bæta sem hann hefði þegar sagt
fjölmiðlum.
„Um var að ræða tveggja
manna tal og vandséð er hvernig
hægt er að teygja lopann frekar
um það í tuttugu mínútur á hvor-
ri stöð,“ segir í yfirlýsingunni. „Í
fyrsta lagi þjónar það alls ekki
hagsmunum Baugs. Í öðru lagi
fæ ég ekki séð að það þjóni mín-
um persónulegu hagsmunum að
taka frekari þátt í þeirri orra-
hríð sem verið hefur. Að lokum
leyfi ég mér að taka fram að
stjórnmálaskoðanir mínar hafa
ekki breyst.“ ■
Stjórnarformaður Baugs hætti við að tjá sig á elleftu stundu:
Hreinn Loftsson þegir
AP
/A
N
D
R
EW
M
IL
LI
G
AN
ALÞINGI Stjórnvöld stóðu að baki
sex milljarða króna fjárfestingu
þriggja banka í DeCode þegar fyr-
irtækið var að komast á legg. Þetta
kom fram í máli Kristins H. Gunn-
arssonar, þingflokksformanns
Framsóknarflokksins, í umræðu
um fjáraukalög vegna aðgerða í at-
vinnu- og byggðamálum á Alþingi í
gær.
Kristinn vakti athygli á að gríð-
arlegum fjármunum hefði verið
varið til atvinnuuppbyggingar á
höfuðborgarsvæðinu fyrir atbeina
ríkisstjórnarinnar og stjórnvalda.
„Þar vil ég í fyrsta lagi minna á
DeCode,“ sagði Kristinn á Alþingi í
gær. „Þrír bankar sem þá voru í
eigu ríkisins keyptu hlutabréf í
DeCode fyrir 6 milljarða króna,
herra forseti, segi og skrifa 6 millj-
arða. Það er hærri upphæð en sam-
anlagt hefur farið til atvinnumála á
landsbyggðinni í áraraðir og þetta
var gert til að byggja upp atvinnu-
fyrirtæki hér á höfuðborgarsvæð-
inu og því til viðbótar voru sett sér-
stök lög til að tryggja grundvöllinn
undir starfsemi þessa fyrirtækis.“
Svanfríður Jónasdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði
þetta stórtíðindi og til marks um
það hefði hún beðið Kristin um að
endurtaka þessi orð sín í ræðustól.
Það hefði hann gert og staðfest að
um stjórnvaldsákvörðun hefði
verið að ræða.
„Mér finnst alveg ótrúlegt ef
ríkisstjórnin tekur svona ákvarð-
anir og engum finnst neitt merki-
legt við það,“ sagði Svanfríður.
„Þarna er um að ræða bein afskipti
ríkisstjórnarinnar inn í þróun at-
vinnulífsins, þar sem hún beitir sér
fyrir því að tiltekið fyrirtæki nái
fótfestu á markaðnum. Svona sér-
tækar aðgerðir finnst mér vera
fullkomlega óeðlilegar.“
Þegar Fréttablaðið hafði sam-
band við Kristin í gærkvöld sagði
hann að það lægi ljóst fyrir að
kaupin hefðu verið gerð með vilja
og vitund eigandans. Hann vildi
ekki skýra mál sitt frekar og að-
spurður um það hvort boðin hefðu
komið beint frá ríkisstjórninni
sagði hann: „Ja, það er spurningin,
það liggur í augum uppi að eigand-
inn hefur viljað þetta.“
trausti@frettabladid.is
MÓTMÆLI GEGN STRÍÐI Andstæðingar stríðs gegn Írak komu saman í Edinborg í Skotlandi í gær. Eins og sjá má höfðu þeir mál-
að hauskúpu á fána Bandaríkjanna sem blakti með kastalann í bakgrunni.
Segir stjórnvöld hafa
ákveðið kaup í DeCode
Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir sex milljarða króna hlutabréfakaup í
DeCode hafa verið gerð fyrir atbeina stjórnvalda. Fullkomlega óeðlileg aðgerð, að
mati þingmanns Samfylkingarinnar.
Þingmenn eru á einu máli umað flutningar fjármagns í því
skyni að skjóta sér undan skatt-
greiðslum hér á landi beri að for-
dæma. bls. 2
Kristján Pálsson leitar að 20frambjóðendum á lista, 3-400
meðmælendum, 2.000 atkvæðum
og nokkrum milljónum í kosn-
ingasjóð. bls. 4
Árni Johnsen hringdi sjálfur ogleitaði tilboða í ný rúm fyrir
fangelsið á Kvíabryggju. bls. 2
Ríkisendurskoðun má láta fjár-málaráðuneytið hafa gögn frá
hjónunum Jóni Baldvini Hanni-
balssyni og Bryndísi Schram um
áfengiskaup vegna fimmtugsaf-
mælis Bryndísar. bls. 4