Fréttablaðið - 07.03.2003, Síða 4
4 7. mars 2003 FÖSTUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Hvernig ferðu leiðar þinnar til
vinnu?
Spurning dagsins í dag:
Ertu flughrædd(ur)?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
16,1%
9,1%Með strætó
57,4%
ÞARFASTI
ÞJÓNNINN
Flestir fara í
vinnu á bíl.
Á hjóli
17,4%Gangandi
Í bíl
DÓMSMÁL Ríkisendurskoðun má
láta fjármálaráðuneytið hafa
gögn frá hjónunum Jóni Baldvini
Hannibalssyni og Bryndísi
Schram um áfengiskaup vegna
fimmtugsafmælis Bryndísar.
Þetta er niðurstaða Héraðsdóms
Reykjavíkur.
Fimmtugsveislan var haldin á
Hótel Íslandi í júlí 1988. Þá var
Jón Baldvin fjármálaráðherra.
Hjónin búa nú í Finnlandi þar sem
Jón er sendiherra.
Rúmu ári eftir veisluna komu
fram ásakanir um að Jón Baldvin
hefði misnotað ríkissjóð til að
greiða áfengi í veisluna. Jón, sem
þá var orðinn utanríkisráðherra,
bað Ríkisendurskoðun að ganga
úr skugga um sannleiksgildi
þessa. Ríkisendurskoðun taldi allt
með felldu.
Næst gerðist það í ágúst 2001
að Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður óskaði eftir
því við Ríkisendurskoðun að fá
afrit af gögnum Jóns Baldvins.
Eftir að málið hafði velkst á
milli ríkisendurskoðunar, utanrík-
isráðuneytis, fjármálaráðuneytis
og úrskurðarnefndar um upplýs-
ingamál ákvað Ríkisendurskoðun
að afhenda fjármálaráðuneytinu
gögnin. Þetta kærði Jón Baldvin
þá til forseta Alþingis, sem vísaði
málinu frá.
Áfrýi Jón Baldvin dómi héraðs-
dóms ekki til Hæstaréttar mun
fjármálaráðuneytið fá margum-
rædd gögn frá Ríkisendurskoðun
og meta á grundvelli upplýsinga-
laga hvort það veitir Jóni Steinari
aðgang að þeim.
Kenning þeirra sem telja Jón
Baldvin hafa misnotað aðstöðu
sína er sú að ráðherrann hafi í
raun látið ríkissjóð greiða afmæl-
isvínið með úttektum í gegnum
veisluþjónustuna Borgartún ehf.,
Rúgbrauðsgerðina svokölluðu. ■
BRETAR MEÐ MÁLAMIÐLUN Bret-
ar vinna að því að ná samkomu-
lagi um málamiðlunartillögu sem
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
getur fallist á. Tillagan gengur út
á að Írakar fái nokkrar vikur til
að ganga algjörlega að kröfum
Sameinuðu þjóðanna vilji þeir
koma í veg fyrir stríð.
MUN MEIRI SAMVINNA Hans
Blix, yfirmaður
vopnaeftirlits-
ins, segir Íraka
sýna vopnaeft-
irlitinu mun
meiri samvinnu
en áður og
leggja fram
gögn um vopnaeign sína og áætl-
anir. Blix segist myndu fagna
lengri tíma til eftirlits.
REKA SENDIMENN ÚR LANDI
Bandaríkjamenn hafa rekið tvo
starfsmenn íraska sendiráðsins í
Washington úr landi. Þeir hafa
líka farið þess á leit við 60 lönd
að þau reki um 300 sendimenn
Íraka úr landi þar sem ástæða sé
til að ætla að þeir ráðist gegn
bandarískum hagsmunum ef til
stríðs kemur.
TYRKIR BÍÐA ÁTEKTA Tyrkneska
ríkisstjórnin bíður eftir niður-
stöðu öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna á fundi þess í dag áður
en stjórnin ákveður hvort hún
fari þess aftur á leit við þingið að
heimila Bandaríkjunum afnot af
tyrknesku landsvæði til árása á
Írak.
HIRÐUM OLÍUNA EKKI Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, lýsti
því yfir í gær að Bretar og Banda-
ríkjamenn myndu ekki yfirtaka
olíulindir Íraka. Hann sagði rétt-
ast að Sameinuðu þjóðirnar tækju
að sér yfirstjórn þeirra.
STJÓRNMÁL Kristján Pálsson al-
þingismaður sækir ekki lengur
þingflokksfundi sjálfstæðimanna
í Alþingishúsinu. Þar er hann
einn á báti og notar
h l i ð a r h e r b e r g i
þinghússins þegar
hann þarf að ræða
við kjósendur. Seg-
ist ekki kunna því
illa þó upp sé komin staða sem
hann hafi ekki óskað sér sjálfur:
„Maður hittir fólk alls staðar
og hefur ekki tíma til að sitja inni
á kaffistofu Alþingis að tala um
allt og ekkert. Ég er á fullu í und-
irbúningi fyrir kosningarnar,“
segir Kristján, sem á enn tölu-
vert í land. Hann þarf að leggja
fram framboðslista með nöfnum
20 frambjóðenda og tryggja sér
3-400 meðmælendur að framboð-
inu. Þegar því er öllu lokið þarf
hann einnig að sannfæra 2.000
kjósendur um eigið ágæti og er-
indi til framtíðar í Suðurkjör-
dæmi, sem teygir sig víða. Þetta
á eftir að kosta peninga. Nokkrar
milljónir í það minnsta:
„Þetta er töff. Ég er nú í spor-
um Davíðs að kljást við Golíat.
En það er verið að safna pening-
um frá stuðningsaðilum. Og þó ég
sjálfur eigi enga peninga verð ég
að leggja fram eitthvað sjálfur.
Fólk leyfir sér að fara í sumar-
leyfi sem getur kostað 400 þús-
und krónur og því sleppi ég
næsta sumar. Legg peningana
frekar í framboðið,“ segir Krist-
ján, sem telur að hann geti orðið
sterkur á þingi ef sérframboð
hans nær því fylgi sem til þarf:
„Gæti orðið sterkari eftir en
áður,“ segir hann.
Kristján Pálsson segir sér-
framboð sitt sprottið af óánægju
með vinnubrögð í stjórnmálum
og nái hann kjöri verði það fyrst
og síðast aðvörun til forystu-
manna í stjórnmálum og vísbend-
ing til þeirra um að vara sig:
„Temja sér ekki vinnubrögð sem
fólk kærir sig ekki um,“ eins og
hann orðar það.
Kristján Pálsson útilokar ekki
að hann gangi til liðs við þing-
flokk Sjálfstæðisflokksins eftir
kosningar nái hann kjöri. Allir
viti hvaðan hann kom og einnig
hitt „...að hver vegur að heiman
er vegurinn heim.“
eir@frettabladid.is
Smáauglýsingar:
Auglýsir
eftir föður
AUGLÝSINGAR Móðir barns, sem var
getið um vornótt fyrir tæpum níu
árum, hefur auglýst eftir föður
barns síns í smáauglýsingum DV.
Hvetur hún þann sem þekkir til
málsins að gefa sig fram og senda
sér tölvupóst, svo hægt sé að
feðra barnið. Auglýsingin hljóðar
svona: „Hvar varst þú 28. maí
1994? Varst þú kannski að halda
upp á að R-listinn vann borgina,
hittir drukkna stúlku sem lenti í
því að detta og fá skurð á auga-
brún, fylgdir henni heim, svafst
hjá henni en fórst áður en hún
vaknaði? Úr þessu var barn sem
langar til að vita hver pabbi þess
er.“
Móðirin gefur upp netfang og
vonast til að barnsfaðir hennar
sendi tölvupóst og gefi sig fram.
Fátítt mun að mæður auglýsi í
smáauglýsingum dagblaða með
þessum hætti. ■
Fimm barna móðir:
Gleymdi
börnunum
LUNDÚNIR, AP Lögreglan í Lundún-
um hefur til rannsóknar mál
breskrar konu á fimmtugsaldri
sem gefið er það að sök að hafa
skilið fimm ung börn sín ein eft-
ir heima á meðan hún fór í frí til
Kanaríeyja. Upp komst um mál-
ið þegar einn sonurinn tilkynnti
kennaranum sínum að hann yrði
að taka sér frí í skólanum til
þess að vera heima að gæta
systkina sinna.
Konan var handtekin á
Gatwick-flugvelli þegar hún
sneri heim úr fríinu og á nú yfir
höfði sér ákæru fyrir van-
rækslu. Börnunum, sem eru á
aldrinum fimm til þrettán ára,
hefur verið komið í fóstur á
meðan á rannsókn málsins
stendur. ■
VIÐSKIPTI Tölvufyrirtækið Opin
kerfi hefur í gegnum dótturfélag í
Danmörku undirritað viljayfirlýs-
ingu um kaup á þarlendum tölvu-
fyrirtækjum. Fyrirtækin eru syst-
urfélög og heita Delta Teamco og
Delta Consulting. Frosti Bergsson,
stjórnarformaður Opinna kerfa,
segir fyrirtækin smellpassa við
starfsemi Enterprise Solution,
sem er fyrirtæki Opinna kerfa í
Danmörku. Hann segir kaupverð-
ið verða gefið upp þegar gengið
verði frá kaupunum. Næsta mán-
uðinn verði unnið að áreiðanleika-
könnun.
Fyrirtækin veltu á síðasta ári
250 milljónum íslenskra króna og
var hagnaður fyrir afskriftir, skat-
ta og fjármagnsliði um 40 milljón-
ir. Gert er ráð fyrir svipuðum rek-
stri áfram.
Frosti segir fyrirtækið ekki
mjög stórt, en menn hafi þekkt vel
til fyrirtækisins. „Hugsunin er að
styrkja okkur á arðsaman hátt.“
Hann segir stefnuna vera að leita
kaupa á fyrirtækjum sem séu að
skila góðri afkomu. Markaðurinn
hafi verið erfiður. Datapoint,
dótturfyrirtæki Opinna kerfa,
skilaði góðum rekstri á síðasta ári.
Frosti segir það hafa vakið athygli
og ýmsir aðilar sett sig í samband
við fyrirtækið í kjölfarið. ■
Þetta er töff – er
í sporum Davíðs
Kristján Pálsson er einn á báti í Alþingishúsinu. Leitar að 20 frambjóð-
endum á lista, 3-400 meðmælendum, 2.000 atkvæðum og nokkrum
milljónum í kosningasjóð. Ætlar að sleppa sumarfríinu.
KRISTJÁN PÁLSSON
Hefur ekki tíma til að sitja á kaffistofu Alþingis og tala um allt og ekkert.
Fundar frekar í hliðarherbergjum þinghússins.
„Gæti orðið
sterkari eftir
en áður.“
Fjármálaráðuneytið fær gögn um áfengiskaup Jóns Baldvins Hannibalssonar:
Afmælisveislan verði opinberuð
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON
Ríkisendurskoðun rannsakaði skjöl varð-
andi afmælisveislu Bryndísar Schram og
taldi að allt hefði verið með felldu. Jón
Baldvin Hannibalsson hefði ekki misnotað
stöðu sína sem fjármálaráðherra til að fá
ókeypis áfengi á kostnað ríkissjóðs.
Opin kerfi í Danmörku:
Kaupa fyrirtæki
í góðum rekstri
ÁFRAM ÚTRÁS
Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna
kerfa, segir fyrirtækið stefna að kaupum á
tölvufyrirtækjum sem skili góðri afkomu.
Kaupin í Danmörku eru liður í þeirri
stefnu.
ÍRAKSDEILAN
Mannskætt flugslys:
Einn lifði af
ALSÍR, AP Boeing 737 flugvél frá
flugfélaginu Air Algerie fórst
skömmu eftir flugtak í suðurhluta
Alsír í gær. Um borð voru 97 far-
þegar og sex manna áhöfn en að-
eins einn maður lifði slysið af.
Flugvélin var á leið frá Taman-
rasset, við rætur Hoggar-fjalla, til
Algeirsborgar og hafa yfirvöld
komið á fót áfallahjálp á flugvöll-
um beggja borga. Ekki liggur fyrir
af hvaða þjóðernum farþegarnir
voru en Tamanrasset er viðkomu-
staður fjölmargra ferðamanna
sem koma til að heimsækja forn-
minjar í Sahara-eyðimörkinni.
Orsakir slyssins eru enn ókunn-
ar en ekkert bendir til þess að um
hryðjuverk hafi verið að ræða. ■