Fréttablaðið - 07.03.2003, Page 8

Fréttablaðið - 07.03.2003, Page 8
8 7. mars 2003 FÖSTUDAGUR Skilaboð með dansbanni Reykjanesbær ætlar að banna einkadans. Bæjarstjórnin segir bannið vera siðferðisskilaboð og til þess ætlað að túlka allan vafa þeim í hag sem telja að ólögleg starfsemi tengist nektardansstöðum. SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn Reykjanesbæjar mun breyta lög- reglusamþykkt og banna einkadans í næturklúbbum. Í greinargerð meirihluta bæjar- stjórnar segir að þó lög leyfi nektar- dans sé heimilt að setja starfseminni skorður í samræmi við nýjan dóm Hæstaréttar um einkadans í Reykja- vík. Yfirvöld verði að geta fylgst með nektardansi til að ganga úr skugga um að allsherjar- reglu og velsæmis sé gætt og að ekki fari fram refsiverð háttsemi í næturklúbbum. „Það er skylda stjórnmálamanna að taka þátt í upplýstri umræðu um þessi málefni og bregðast við ef nýj- ar upplýsingar koma fram. Þrjú af þeim fjórum bæjarfélögum sem leyfa starfsemi nektarstaða hafa þegar brugðist við og þrengt að starfsemi staðanna með því að banna einkadans, m.a. í þeim til- gangi að sporna við óæskilegum áhrifum þessara staða,“ segir bæj- arstjórnin. Bæjarstjórnin í Reykjanesbæ segir enn fremur að í ársskýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar um mansal árið 2002 komi fram að stúlkur hafi verið seldar mansali frá Eistlandi til Íslands í þeim til- gangi að misnota þær kynferðis- lega. „Þó svo að sönnur hafi ekki verið færðar á þessar fullyrðingar bandarísku utanríkisþjónustunnar ber að taka þær alvarlega. Skýrsla dómsmálaráðuneytisins um vændi á Íslandi, sem út kom 2001, styrkti mjög grun um að á sumum nektar- stöðum væri stundað vændi,“ segir bæjarstjórnin. Talið er að á árinu 2001 hafi að minnsta kosti eitt þúsund útlendar konur komið til Íslands til að starfa á nektarstöðum: „Eftir að bannið við einkadansi tók gildi er talið að fjöldi ,,dansara“ hafi farið niður í 150 á síðasta ári. Þetta eru athyglisverðar upplýsing- ar sem hljóta að vekja alla til um- hugsunar,“ segir bæjarstjórnin, sem telur það skyldu sína að bregð- ast við á sama hátt og önnur bæjar- félög hafi gert: „Með því er ekki verið að fella neinn dóm yfir þeirri starfsemi sem hér er í Reykjanesbæ, heldur vilj- um við senda ákveðin siðferðis- skilaboð, ekki síst til æsku Reykja- nesbæjar, en um leið túlka allan vafa þeim í hag sem telja að ólögleg starfsemi tengist þessum stöðum.“ Fjórir af ellefu bæjarfulltrúum sátu hjá; tveir frá Samfylkingu og tveir frá Sjálfstæðisflokki. Ekki náðist samband í gær við nektardansstaðinn Casino í Kefla- vík, sem er sá eini sinnar tegundar í Reykjanesbæ. gar@frettabladid.is Bob Dole og Bill Clinton: Eigast við á nýjan leik NEW YORK, AP Bill Clinton, fyrrum forseti Bandaríkjanna, og Bob Dole, mótframbjóðandi hans í for- setakosningunum 1996, munu eig- ast við á nýjan leik þó með öðrum hætti sé. Þeir hafa samið við CBS- sjónvarpsstöðina um að eigast við í stuttum kappræðum um afmörk- uð þjóðmál sem sýndar verða í fréttaþættinum 60 Minutes. Dole og Clinton munu eigast við í tíu einvígjum sem verða send út í jafnmörgum þáttum. Þeir munu skiptast á um að hefja um- ræðu sem hinn verður að svara. Hvor um sig fær 45 sekúndur í fyrstu og síðan 15 sekúndur til að svara málflutningi hins. Byggt er á gamalli hugmynd úr þáttunum sem var aflögð árið 1979. Þá hétu þáttarbútarnir Point-Counter- point. Nú nefnast þeir til skiptis Clinton/Dole og Dole/Clinton. 60 Minutes hefur löngum verið meðal vinsælustu sjónvarpsþátta vestanhafs. Undanfarið hefur dregið úr áhorfi. Stjórnendur þáttarins vonast til að einvígi þessara fyrrum stjórnmálaleið- toga verði til að auka áhorf á nýj- an leik. ■ Ríkissjóður: Samherji fær ekki meira DÓMSMÁL Ríkið hefur verið sýknað af kröfum útgerðarfélagsins Sam- herja um endurgreiðslu tæplega 51 milljónar króna. Ríkisskattstjóri endurákvarðaði opinber gjöld Samherja í desem- ber 1997 og lækkaði yfirfæran- legt tap vegna sameiningar á Mat- vælaiðjunni Strýtu hf. og Kirkju- sandi hf. um 71 milljón króna. Dómstólar hrundu síðar þeim úr- skurði. Samherji taldi sig enn eiga inni of- angreinda upphæð í vexti af of- greiddum sköttum. Héraðsdómur telur yfirvöld hafa endurgreitt að fullu. ■ ORÐRÉTT KJARNI MÁLSINS Má ég koma að í einni setningu um hvað mál- ið snýst: Davíð er gull af manni. Hannes Hólmsteinn Gissur- arson. Útvarp saga, 6. mars. ANNAR KJARNI Að stunda sundlaugar er gulls ígildi. Sonja B. Helgason. Morgunblaðið, 6. mars. HANDHAFAR SANNLEIKANS Það er einfaldlega til fólk sem er tilbúið að ljúga fram í rauðan dauðann. Jakob F. Ásgeirsson. Morgunblaðið, 6. mars. BILL CLINTON Lagði Dole að velli í forsetakosningunum 1996 og etur nú kappi við hann á ný. ÁRNI SIGFÚSSON BÆJARSTJÓRI Stúlkur voru seldar mansali frá Eistlandi til Íslands til að misnota þær kynferðislega, segir í bandarískri skýrslu. „Þó svo að sönnur hafi ekki verið færðar á þessar full- yrðingar bandarísku utanríkisþjónustunnar ber að taka þær alvarlega,“ segir bæjar- stjórnin. Talið er að á árinu 2001 hafi að minns- ta kosti eitt þúsund út- lendar konur komið til Ís- lands til að starfa á nekt- arstöðum. FRÁ REYKJANESBÆ „Það er skylda stjórnmálamanna að taka þátt í upplýstri umræðu um þessi málefni og bregðast við ef nýjar upplýsingar koma fram,“ segir bæjarstjórn Reykjanesbæjar og ætlar að þrengja að nektardansstöðum með banni við einkadansi. GAZA, AP Ellefu Palestínumenn lágu í valnum og á annað hundrað þurf- tu að leita læknishjálpar vegna sára eftir að Ísraelsher notaði skriðdreka og árásarþyrlur til að ráðast inn í flóttamannabúðirnar í Jabalaya á Gaza-strönd. Palest- ínskir sjónarvottar segja ísraelska hermenn hafa skotið á óvopnaða borgara þar sem þeir fylgdust með slökkviliði reyna að ráða niðurlög- um elda í nálægum húsum. Átta eru sagðir hafa látist í þeirri árás. Yfirmenn ísraelska hersins neita því að hafa skotið á óvopnaða borgara. Palestínskir læknar sem gerðu að sárum sjúklinga sögðu hins vegar að sár margra bæru þess merki að skotið hefði verið úr fallbyssum skriðdreka á fólkið. Innrás Ísraela í flóttamanna- búðirnar kom í kjölfar þess að palestínskur maður sprengdi sig í loft upp í strætisvagni með þeim afleiðingum að 15 Ísraelar létust. ■ Ellefu í valnum: Skotið á óvopnað fólk ÍBÚÐAHVERFI Í RÚSTUM Ísraelar hafa haldið uppi árásum á bæi og flóttamannabúðir Palestínumanna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.