Fréttablaðið - 07.03.2003, Page 12

Fréttablaðið - 07.03.2003, Page 12
12 7. mars 2003 FÖSTUDAGUR EVRÓPA Skráningarsími 561 8585 Yogaspuni Gauja litla 8 vikna aðhald í World Class, aðeins 14.500 kr. www.gauilitli.is Ný námskeið hefjast 10. mars FJÁRMÁL Erlend verðbréfaeign sjóð- anna rýrnaði um 31 milljarð króna milli ára. Um síðustu áramót nam hún rúmum 103 milljörðum miðað við 234 milljarða í árslok 2001. Hrafn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka líf- eyrissjóða, segir að rýrnunin í er- lendri verðbréfaeign sjóðanna eigi sér fyrst og fremst skýringar í lækkun á erlendum mörkuðum. Þá hafi mikil styrking krónunnar einnig haft neikvæð áhrif hvað þetta snerti. Samkvæmt efnahagsyfirliti Seðlabanka Íslands námu eignir líf- eyrissjóðanna 677 milljörðum króna um síðustu áramót, sem er aukning um rúmlega 32 milljarða króna milli ára eða um 5%. Efna- hagsyfirlitið byggir á úrtaki 25 stærstu lífeyrissjóðanna, sem áttu um 93% af hreinni eign allra lífeyr- issjóða í árslok 2001. Erlend verðbréf eru nú um 15,3% af heildareignum sjóðanna en voru um 20,9% í árslok 2001 og 22,6% í árslok 2000. Húsbréfaeign sjóðanna nam um 199 milljörðum króna í árslok 2002, sem er aukning um rúm 18% milli ára. Sjóðsfélaga- lán jukust um 18% milli ára eða úr 71 milljarði króna í 84 milljarða. ■ SJÓMENN SÁTTIR Breytinguna má rekja til innleiðingar EES-ákvæða. Lagabreyting um hvíldartíma vegna EES: Sátt um hvíldartíma SJÓMENN Samgönguráðherra hefur lagt fram á þingi frumvarp um breytingar á lögum um hvíldar- tíma sjómanna. Tilgangur frum- varpsins er að gera breytingar á sjómannalögum vegna innleiðing- ar EES-ákvæða sem varða vinnu- og hvíldartíma skipverja, á fiski- skipum annars vegar og á far- þega- og flutningaskipum hins vegar. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins, segir al- gjöran frið um frumvarpið. Í raun og veru breyti það mjög litlu fyrir sjómenn og að sama skapi er ekki gert ráð fyrir að það hafi í för með sér kostnaðarauka fyrir útgerð- ina. „Við fórum grannt yfir þetta og vorum mjög varkárir en í grundvallaratriðum varð um þessar breytingar algjör sátt,“ segir Sævar. Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður ekki heldur séð að það hafi kostnaðarauka í för með sér fyrir ríkissjóð. ■ KÓLUMBÍA, AP Á síðustu dögum hafa hundruð bænda snúið aftur heim í fjallahéruð Kólumbíu eftir þriggja mánaða herþjálfun á veg- um ríkisstjórnar landsins. Ein- kennisklæddum og vopnuðum hríðskotarifflum er þeim ætlað að aðstoða öryggissveitir ríkisstjórn- arinnar við að verja heimabæi sína fyrir árásum skæruliða. Um árabil hefur óbreyttum borgurum í afskekktum þorpum í suðurhluta Kólumbíu staðið gífur- leg ógn af herskáum uppreisnar- mönnum sem hafast við í fjallendi og frumskógum á svæðinu. Ör- yggissveitir ríkisstjórnarinnar hafa reynst of fámennar til þess að gæta öryggis íbúanna á þessu svæði og því hafa hundruð þús- unda manna á undanförnum árum yfirgefið heimili sín og lagt á flótta af ótta við árásir skærulið- anna. Nú hafa yfirvöld gripið til þess ráðs að virkja þorpsbúana sjálfa í tilraun til að veita skæruliðunum mótstöðu. Sjálfboðaliðum úr röð- um heimamanna er boðið upp á þriggja mánaða þjálfun á vegum kólumbíska hersins og að henni lokinni eru þeir sendir aftur heim til að verja þorp sín. Bændurnir hljóta svipaða þjálfun og almennir hermenn, klæðast sömu einkenn- isbúningum og bera sams konar vopn. Þeir skuldbinda sig til þess að gæta heimabæjar síns í tvö ár í senn og fyrir það fá þeir greitt sem svarar um 1.300 íslenskum krónum á mánuði. Nú þegar hafa um 5.000 bænd- ur gefið kost á sér til starfans og fer þeim stöðugt fjölgandi. „Starf sjálfboðaliðanna er mjög ánægjulegt,“ segir Gilberto Rocha, sem stjórnar verkefninu fyrir hönd yfirvalda. „Hlutverk þeirra er að halda verndarhendi yfir fjölskyldu sinni, vinum, kunningjum og nágrönnum.“ En ekki eru allir sammála um ágæti þessa framtaks. FARC, stærstu skæruliðasamtök Kólumbíu, hafa þegar fordæmt átakið á þeim forsendum að þetta muni gera óháðum vígasveitum kleift að halda skæruliðaveiðum sínum áfram undir verndarvæng laganna. ■ VERSLUNARSKÓLINN Nýtt, forvitnilegt skólablað á leiðinni. Skólablað Verslunarskólans: Nær allir með síma SKÓLAHALD Í niðurstöðum skoðana- könnunar sem birt verður í nýju Skólablaði Verslunarskóla Íslands sem út kemur á morgun kemur fram að nær allir nemendur skól- ans eru með farsíma: „Þegar sambærileg spurning var lögð fyrir nemendur 1997 voru 8 prósent nemenda með far- síma. Nú eru 98,8 prósent með slíka síma eða næstum því allir,“ segir Jóhannes Kjartansson, rit- stjóri Skólablaðsins, en í skoðana- könnun blaðsins er einnig spurt um bílaeign og fjármál nemenda svo fátt eitt sé nefnt. Í blaðinu er einnig viðtal við sálfræðing um átröskun en talið er að lystarstol og lotugræðgi séu ört vaxandi vandamál í fram- haldsskólum landsins. Er Verslun- arskólinn þar engin undantekning en í fyrra kvörtuðu ræstitæknar skólans yfir óvenjumiklum ælum á kvennasalerni skólans. Þykir ekki ólíklegt að það megi rekja til námsmeyja með lotugræðgi en sjúkdómurinn lýsir sér einmitt í því að fólk borðar yfir sig og kast- ar síðan upp. Að sögn Eiríku Ásgrímsdóttur, forvarnarfulltrúa Verslunarskól- ans, er hér um viðkvæmt mál að ræða sem vissulega hafi verið rætt innan skólans svo og á fund- um forvarnarfulltrúa allra fram- haldsskóla, sem haldnir eru tvisvar á ári. ■ Barnaheill gegn barnaklámi: Um 1.000 ábendingar KLÁM Samtökin Barnaheill fengu á síðasta ári í kringum eitt þúsund ábendingar um vefslóðir þar sem barnaklám væri að finna. Kristín Jónsdóttir, framkvæmdarstjóri Barnaheilla, segir að meðaltali 60- 65 ábendingar berast í hverjum mánuði. Enn sé ekkert sem bendi til að barnaklám sé vistað á vef- þjónum hér á landi. Kristín segir Barnaheill í al- þjóðlegu samstarfi til að koma í veg fyrir barnaklám á Netinu. Frá því í október árið 2001 hafi staðið yfir verkefnið Stöðvum barna- klám á Netinu. Einn liður í því hafi verið að gera almenningi kleift að senda inn nafnlausar ábendingar um barnklám. Kristín vill hvetja almenning til að loka ekki augunum fyrir barnaklámi. Barnaklám sé stað- reynd. ■ Eignir lífeyrissjóðanna nema 677 milljörðum: Erlend verðbréfaeign rýrnað um 31 milljarð LÆKKUN Á ERLENDUM MÖRKUÐUM Skilar sér í rýrnum á erlendri verðbréfaeign lífeyrissjóðanna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI Bændur berja á uppreisnarmönnum Yfirvöld í Kólumbíu hafa ákveðið að veita þúsundum óbreyttra bænda herþjálfun til þess að þeir geti aðstoðað öryggissveitir landsins við að verja afskekkt fjallaþorp fyrir árásum herskárra uppreisnarmanna. HEIMAVARNARLIÐIÐ Börnin í þorpinu San Carlos de Guaroa horfðu forviða á nágranna sína og fjöl- skyldumeðlimi þegar þeir sneru heim aft- ur í fullum herklæðnaði eftir þriggja mán- aða þjálfun á vegum kólumbíska hersins. FRIÐARSINNAR Í PÁFAGARÐI Friðarsinnar í ítölsku samtökunum „Fermiamo La Guerra“, eða „Stöðvum stríðið“ eins og það útleggst á íslensku, breiddu út gríðarstóran fána á Péturstorg- inu í Páfagarði í Róm á meðan Jóhannes Páll páfi predikaði yfir mannfjöldanum í árlegri öskudagsmessu. Saksóknari stríðsglæpadómstólsins: Krefst aðgerða BRUSSEL, AP „Ég vil sjá árangur núna, ég er orðin þreytt á því að biðja,“ sagði Carla Del Ponte, aðalsaksóknari stríðsglæpadóm- stólsins í Haag, eftir að hafa kraf- ið framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins um að beita Serbíu, Svartfjallaland og Króatíu þrýst- ingi til að framselja grunaða stríðsglæpamenn. Eftir fundinn sagði Javier Sol- ana, yfirmaður varnarmála hjá Evrópusambandinu, að ríkin yrðu beitt þrýstingi en vildi ekki segja hvort þau yrðu þvinguð til sam- starfs. ■ HANDTAKA Í KJÖLFAR SVIÐSETN- INGAR Lögreglan í Lundúnum hefur handtekið nítján ára karl- mann sem grunað- ur er um aðild að morði á banda- rískri myndlistar- konu sem stungin var til bana í ein- um af almenn- ingsgörðum borgarinnar í síðasta mánuði. Fyrir fáeinum dögum fékk lögreglan yfir 300 manns til liðs við sig til þess að endurskapa vettvang morðsins í von um að komast á spor morðingjans. KVEIKTI Í SJÁLFUM SÉR 19 ára Tékki kveikti í sér í miðborg Prag. Hann vildi mótmæla slæmu ástandi siðmenningar, sérstak- lega í Tékklandi. Hann lést af sárum sínum meðan verið var að flytja hann á sjúkrahús.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.