Fréttablaðið - 07.03.2003, Qupperneq 14
14 7. mars 2003 FÖSTUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Þjónustu-
gjöld
bankanna
Jónína skrifar:
Undanfarið hafa birst fréttir ífjölmiðlum af stórfelldum
gróða bankanna af hvers kyns þjón-
ustugjöldum. Í Morgunblaðinu 20.
febrúar er greint frá enn einu gjald-
inu sem Spron og Landsbanki Ís-
lands innheimta af viðskiptavinum
sínum. Viðskiptavinir þessara
banka sem hringja í þjónustuver og
óska eftir stöðu á reikningi sínum
þurfa að greiða fyrir þessa þjónustu
75 krónur hjá Spron og 60 krónur
hjá Landsbankanum. Fram kom í
fréttinni að þessi gjaldtaka hafi við-
gengist lengi hjá Spron en sé nýtil-
komin hjá Landsbankanum. Ís-
landsbanki og Búnaðarbanki hafa
enn ekki tekið upp þessa gjaldtöku
en kannski verður þess ekki langt
að bíða, enda samkeppni bankanna
óveruleg hér á landi eins og flestir
vita.
Talsmenn bankanna benda á að
þessar upplýsingar geti fólk nálgast
sér að kostnaðarlausu með því að
nota heimabanka, þjónustusíma
Reiknistofu bankanna og hrað-
banka. En hvað um alla þá sem ekki
hafa aðgang að tölvum og eiga ekki
debetkort? Hvað um gamla fólkið?
Skyldi þetta ekki vera enn eitt
dæmið um að níðst sé á þeim sem
síst skyldi?
Fjöldinn allur er af eftirlitsstofn-
unum í landinu. Hafa slíkar stofnan-
ir engu hlutverki að gegna varðandi
síauknar sjálftökur banka og ann-
arra lánastofnana? En burtséð frá
því er augljóst að virkasta eftirlitið
verður ávallt hjá almenningi sjálf-
um og því er brýnt að hvetja fólk til
að vera vel á varðbergi í þessum
málum öllum. ■
Ámánudaginn síðasta stillti Dav-íð Oddsson forsætisráðherra
þjóðinni upp frammi fyrir vali.
Öðru megin var hann og hinum
megin Baugur, Norðurljós, Sam-
fylkingin, Fréttablaðið, R-listinn,
Jón Ásgeir Jóhannesson, Hreinn
Loftsson, Jón Ólafsson, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir og fleira fólk.
Davíð gaf sjálfum sér góða ein-
kunn; bæði fyrir karakter og árang-
ur í starfi. Hitt liðið fékk bága eink-
unn – eiginlega falleinkunn – bæði
fyrir störf sín og karakter.
Nú er það almennt mat í samfé-
laginu að þjóðin hefur kunnað
ágætlega við Davíð. Hann varð
kornungur vinsæll útvarpsmaður
og spaugari, borgarstjóri þegar
hann var ungur maður, síðar for-
maður Sjálfstæðisflokksins og for-
sætisráðherra. Í störfum sínum
sem borgarstjóri og forsætisráð-
herra hefur hann notið vinsælda
þótt hann og orð hans og athafnir
hafi oft verið umdeild. Davíð á því
stóra inneign hjá þjóð sinni. Hún er
ekki tilbúin að trúa því í skyndingu
að hann fari með ósannindi eða hafi
beitt völdum sínum og áhrifum af
illum vilja.
Það er því nokkur þungi sem
Davíð leggur öðru megin markalín-
unnar; hann sjálfur – hvorki meira
né minna. Þetta er því ekki léttvægt
val; snýst ekki um Wham eða Dur-
an Duran. Eftir því sem Davíð still-
ir þessu upp snýst valið um það að
ef fólk trúir einhverju sem fólkið í
hinu liðinu segir er fólk jafnframt
að hafna honum sem forsætisráð-
herra og karakter. Allt sem einhver
úr liði raunverulegra og ímyndaðra
andstæðinga Davíðs leggur fram
um Davíð og störf hans er tilraun til
að koma honum frá völdum svo
eyðileggja megi allt sem hann hef-
ur byggt upp fyrir þjóð sína – þar
með talin hagsæld.
Ég get ekki ímyndað mér að
fólki líði vel undir þessu vali. Ef
fólk samþykkir ekki Davíð sem
heild – öll störf hans, stjórnunarað-
ferðir og þær makalausu ásakanir
sem hann bar fyrir þjóðina á mánu-
daginn – þá er fólk jafnframt að
hafna honum alfarið og öllu því sem
hann hefur nokkru sinni snert eða
komið nálægt. Og ekki nóg með
það. Með því að velja ekki Davíð er
fólk að veita samþykki sitt öllu því
sem fólkið á andstæðingalistanum
hefur gert eða sagt – þar með talin
skattaskil Jóns Ólafssonar.
Eftir því sem á vikuna hefur lið-
ið held ég að æ fleiri átti sig á að
þeir þurfa ekki að taka þátt í þessu
vali Davíðs Oddssonar. Fólki er
fullkomlega frjálst að hafna ásök-
unum Davíðs um illt innræti þeirra
sem hann leggur fæð á án þess að
vera með því gengið til liðs við
Samfylkinguna eða hafa lagt bless-
un sína yfir fjármál ólíklegustu
manna. ■
Hvers vegna líður þjóðinni illa?
skrifar um áhrif undanfarinna
daga á sálartetur þjóðarinnar.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
RAFTÆKJAVERSLUNIN SUÐURVERI
LOKADAGAR
STÓRÚTSÖLUNNAR
Mikill afsláttur
- góð kaup
– Leikur í ljósum –
Stigahlíð 45, 105 Reykjavík. Sími 553-7637, fax 568-9456.
ÍTR:
Styrkir
fyrir 26
milljónir
STYRKIR Afreks- og styrktarsjóð-
ur Reykjavíkur fær 5 milljóna
króna styrk frá Íþrótta- og tóm-
stundaráði Reykjavíkur. Sjóður-
inn er í vörslu ÍTR og hefur m.a.
það markmið að styrkja reyk-
vísk íþróttafélög.
Íþrótta- og tómstundaráð út-
hlutar styrkjum að upphæð rúm-
ar 26 milljónir króna í ár. KFUM
og KFUK fá 4,3 milljónir, sem og
Skátasamband Reykjavíkur.
Taflfélag Reykjavíkur og Taflfé-
lagið Hellir fá 2 milljónir hvort
og þá fær Reiðskólinn Þyrill 1,2
milljónir. Þá voru veittir 29
styrkir að upphæð frá 100 upp í
500 þúsund krónur. ■
LÍFEYRIR Fyrirtækið Lánstraust
stefnir að því að fleiri fyrirtæki
sem ávaxta séreignasparnað fólks
sendi upplýsingar um ávöxtun til
fyrirtækisins. Séreignasjóðir
Búnaðarbankans, Almenni lífeyr-
issjóðurinn í vörslu Íslandsbanka
og Samlíf senda upplýsingar um
sjóði sína til birtingar hjá Láns-
trausti. Á vef fyrirtækisins er svo
hægt að bera saman árangur
sjóða eftir eignasamsetningu og
fjárfestingarstefnu. Jenný Bára
Jensdóttir hjá Lánstrausti segir
að búast megi við því að fleiri
fjármálafyrirtæki taki þátt í þess-
um samanburði. „Ég er að fara að
tala við Kaupþing í næstu viku og
ég veit að Landsbankinn ætlar að
fylgja í kjölfarið,“ segir Jenný.
Sjóðirnir eru flokkaðir eftir
hlutfalli hlutabréfa í safni þeirra.
Hlutabréf eru áhættusamasta
fjárfestingin og mestar sveiflur í
ávöxtun þeirra. Þau henta betur
ungu fólki sem er að spara til
langs tíma. Jenný segir mikla
fjármuni fara í séreignasparnað
hér á landi. Slíkar upplýsingar séu
því mjög gagnlegar fyrir fólk sem
vill fylgjast með árangri síns
sjóðs í samanburði við aðra sem
eru með sambærilega fjárfesting-
arstefnu. Vilhjálmur Bjarnason,
formaður Félags fjárfesta, hvetur
fólk til að fylgjast með sparnaði
sínum og færa hann til séu menn
ekki sáttir við árangur síns sjóðs.
Jenný segir að auk upplýsinga um
ávöxtun undanfarinna ára sé
hægt að skoða hlutfall eigna í
skuldabréfum og hlutabréfum hjá
sjóðunum.
Jenný segir að auk þess sem
upplýsingavefurinn sé gagnlegur
fyrir neytendur notfæri fjármála-
fyrirtækin sér vefinn til að kynna
árangur af fjárfestingu sinni. „Við
verðum vör við aukinn áhuga fyr-
irtækjanna á að vera með.“ Hún
segir að almennt treysti fólk bet-
ur upplýsingum óháðra aðila um
ávöxtun. Fyrirtækin sjái sér því
hag í því að vera með. Neytendur
hafi tilhneigingu til að leita frekar
til fyrirtækja um ávöxtun fjár-
muna sinna sem birti slíkar upp-
lýsingar með samanburðarhæfum
hætti.
haflidi@frettabladid.is
Hún er oft sérkennileg sóknstjórnmálamanna í hið póli-
tíska draumaland. Hjá þeim flest-
um er miðpunktur draumalands-
ins jú stóll forsætisráðherraemb-
ættisins, þar sem Davíð Oddsson
hefur setið síðastliðin þrjú kjör-
tímabil og er orðin heimaríkur.
Margir renna nú hýru auga til
stólsins, eins og sést best á því að
aðrir flokkar, með Samfylkinguna
í fararbroddi, eru þegar farnir að
útnefna fólk úr sínum röðum til að
setjast í stólinn.
Kosningabaráttan er vegurinn
til draumalandsins, og er þessi
slóð ekki síður grýtt og hættuleg
en sá frægi Þjóðvegur 66 hjá
Steinbeck forðum, þegar þúsund-
ir gengu í von burt úr kreppunni í
Oklahoma áleiðis til hinnar fyrir-
heitnu Kaliforníu. Íslendingar
hafa einmitt á seinni árum – fyrst
hjá Leikfélagi Reykjavíkur og nú
fyrir örfáum vikum hjá Leikfélagi
Húsavíkur – fengið tækifæri til að
fylgjast með dramatískum leik-
húsuppfærslum af Þrúgum reið-
innar og hvernig Steinbeck tókst
að draga fram misbresti og þver-
stæður í mannlegu eðli, mannlegu
samfélagi og mannlegum sam-
skiptum á erfiðum umbyltinga-
tímum og það hvernig hversdags-
hetjur ná að viðhalda mennsku
sinni og manngildi við þjakandi
kringumstæður allsleysisins.
Í dag hefur þjóðin þó orðið
vitni að nýrri og séríslenskri upp-
færslu af Þrúgum reiðinnar, sem
tekur þeirri gömlu fram bæði
hvað varðar drama og dapurleika
þó formerkin í hinni nýju upp-
færslu séu öfug við það sem var
hjá Steinbeck. Leiksviðið er
þannig ekki Þjóðvegur 66, heldur
framabraut íslenskra stjórnmála.
Á þeirri leið hafa óvenju bein-
skeyttir og nánast persónulegir
árekstrar tveggja mikilhæfra
stjórnmálaleiðtoga í bland við
gráglettni örlaganna hagað mál-
um þannig að einn vinsælasti for-
sætisráðherra síðari tíma treður
heiftúðugar illsakir við einhverja
vinsælustu athafnamenn síðari
tíma. Ásakanir um óheiðarleika
og mútutilraunir eru meðal þess
sem finnst í þessum dótakassa, og
inn í málið tengjast fjölmargir að-
ilar, bæði úr pólitík, viðskiptalífi
og embættismannastétt. Rétt eins
og á Þjóðvegi 66 kemur hér í ljós
að lengi má manninn reyna. Sá
reginmunur er þó á að hjá Stein-
beck voru fátækt og allsleysi í
hlutverki hreyfiaflsins, en nú eru
það allsnægtir, auður og óhóf sem
drífa framvinduna.
Örlögin hafa hagað því svo að
græn steinalaus vínber eru lent í
miðri þessari umræðu allri. Það
gerðist eftir að forsætisráðherra
lýsti ferð sinni til ávaxtasala í
Lundúnum í spjallþætti fyrr í vik-
unni. Vínberin áttu í málatilbún-
aði forsætisráðherra að vera hinn
táknræni ávöxtur, sem bar vitni
einokunarstöðu og okurálagning-
ar Baugsveldisins. Eins konar
reiðiþrúga hins almenna manns.
Baugsmenn buðu að bragði þessar
grænu steinalausu reiðiþrúgur á
tilboðsverði og létu fylgja með í
auglýsingu langan lista yfir þá
sjúkdóma sem þessar þrúgur
gætu hugsanlega læknað. Engum
duldist háðið og skilaboðin til for-
sætisráðherra um að þarna væru
komnar fyrir hann þrúgur á við-
ráðanlegu verði, sem auk þess
gætu hugsanlega veitt honum ein-
hverja líkn með þraut sinni. Og
þjóðin hló.
Vissulega veitti ekki af einu
spaugilegu atriði inn í þennan
pólitíska harmleik allan – en
spurning er hversu langt slíkt
nær þegar undir kraumar svo
gríðarleg heift og hatur.
Fyrir örfáum vikum hélt sá er
þetta ritar því fram hér á þessum
vettvangi að úr því stjórnmálin
væru að greinast upp í slag milli
tveggja turna mætti búast við
aukinni persónulegri hörku og að
aðrir þátttakendur í stjórnmálun-
um hyrfu í skuggann. Það sem nú
hefur gerst er hins vegar marg-
falt á við það sem nokkrum gat
dottið í hug. Allar stærðir og hug-
myndir í þessum farsa eru líka
þannig að við meðalmennirnir
eigum erfitt með að meðtaka þær.
Það er ef til vill lýsandi fyrir
framandleika málsins að manni
finnst auðveldara að skilja og
samsama sig eymdinni og alls-
leysinu í reiðiþrúgum Steinbecks
heldur en taumlausum allsnægt-
um og gnægtasiðferðinu í reiði-
þrúgum stjórnmála dagsins.
Skiptir þá engu þótt þrúgunar
sjálfar séu komnar grænar og
steinalausar á tilboð í Bónusi!
Í þessari pólitík eru því ein-
faldlega þeir einir líklegir sigur-
vegarar, sem hvergi koma nærri.
Þetta virðast stjórnmálamenn nú
vera að skynja, og þeir sem á ann-
að borð geta þagað í málinu þegja
sem mest þeir mega. Og fyrir þá
sem trjóna nú í toppum hinna
tveggja fylgisturna skoðanakann-
ana er vert að hafa hugfast að í
stjórnmálum er ekkert eilíft. Við
virðumst lifa á tímum hins ólík-
lega eins og dæmi síðustu daga
sanna. Hinir ólíklegu eru því
orðnir líklegir. Skyldi tími hinna
pólitísku hobbita vera nær en
menn grunar? ■
Mikilvægt að fylgj-
ast með eign sinni
Upplýsingar um árangur þriggja fyrirtækja
sem ávaxta séreignalífeyri eru birtar á vefnum
sjodir.is. Vefurinn er í umsjá Lánstrausts.
ÁHYGGJULAUST ÆVIKVÖLD
Hver prósenta í ávöxtun getur ráðið miklu um afkomu á efri árum. Hægt er að bera
saman árangur séreignarlífeyrissjóða á vefnum sjodir.is.
stjórnmálafræðingur
skrifar um veginn til
draumalandsins.
BIRGIR
GUÐMUNDSSON
Um daginn
og veginn
Þrúgur reiðinnar