Fréttablaðið - 07.03.2003, Síða 18

Fréttablaðið - 07.03.2003, Síða 18
18 7. mars 2003 FÖSTUDAGURSKAUTAR Stórhöfða 17, v. Gullinbrú · 577 5555 · 577 556 6 byrjar 10. mars. Verð kr. 13.900,- Kennari Guðrún Tómasdóttir Nánari upplýsingar og skráning í afgreiðslu Veggsports sími: 577-5555 8 VIKNA lokað heilsuátak FÓTBOLTI Diego Maradona yngri, sonur ítalska knattspyrnugoðs- ins Diego Maradona, gæti verið á leið til Clyde, sem leikur í skosku 1. deildinni. Guttinn, sem er 16 ára, er samningsbundinn ítalska 2. deildar liðinu Napólí, en þar lék faðir hans um tíma og varð goðsögn á níunda áratugn- um. „Ég ákvað að hringja og at- huga hvort það væri möguleiki á að sonur Diego Maradona kæmi til okkar,“ sagði Alan Kernagh- an, knattspyrnustjóri Clyde. „Hann er enn of ungur til að leika með aðalliði Napólí og stjórn liðsins vill lána hann á næsta tímabili. Þeir vilja samt ekki lána hann til annars liðs á Ítalíu þar sem fjölmiðlafárið í kringum hann yrði of mikið.“ Kernaghan segist ekki vera bú- inn að ganga frá neinum samn- ingum en vonast til að málið nái í gegn í sumar. Maradona hefur aldrei gengist við barninu en ítalskir dómstólar staðfestu að strákurinn væri son- ur hans eftir að þeir gengust und- ir DNA-próf árið 1993. ■ Eftirvænting hjá skoska liðinu Clyde: Leikur Maradona á Bretlandi? DIEGO ARMANDO MARADONA Hefur alla tíð neitað að vera faðir drengs- ins. Dómstólar úrskurðuðu þó annað eftir DNA-próf. FÓTBOLTI Þótt Manchester United hafi minnkað forskot Arsenal niður í fimm stig með því að leggja Leeds að velli, 2-1, er hætt við að baráttan fram undan eigi eftir að reynast lið- inu um megn. Roy Keane, fyrirliði United, meiddist í leiknum og verður frá í þrjár vikur hið minnsta. Mikael Silvestre og Juan Sebastian Veron meiddust einnig í leiknum og talið að sá síðastnefndi hafi orðið verst úti með ökklameiðsli. Auk þeirra hafa Wes Brown og Diego Forlan verið tæpir vegna meiðsla. „Við fáum nú tíu daga frí og leik- menn fá tækifæri til að jafna sig,“ sagði Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri United, kokhraustur að leik loknum. Þótt margir leikmenn liðs- ins eigi við meiðsli að stríða telur Ferguson alla von ekki úti. „Arsenal þarf að tapa stigum og við þurfum að skila okkar verki. Við ætlum okkur að gera loka- sprettinn skemmtilegan,“ sagði Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United. ■ Manchester United: Margir leik- menn meiddir ALEX FERGUSON Næstu vikur verða erfiðar fyrir knattspyrnu- stjórann enda hefur Manchester United ekki enn unnið titil. HNEFALEIKAR Áður en Íslendingar og Danir eigast við í alls átta bar- dögum verða háðir tveir til þrír upphitunarbardagar þar sem Ís- lendingar keppa hvor við annan. Eftir upphitunina eigast síðan við í fyrsta bardaga Marta Jóns- dóttir og danska stúlkan Rikke Tuxen Svendsen. Viðureignin er söguleg fyrir þær sakir að hún telst vera sú fyrsta sem skráð er hér á landi þar sem kona stígur inn í hringinn. Síðan taka viður- eignirnar við hver af annarri eft- ir þyngdarflokkum og lokabar- dagi kvöldsins verður á milli Ing- ólfs Snorrasonar og Nicolaj Thoegersen í þungavigt. Þess má geta að um kvöldið verða einnig háðar fyrstu opin- beru viðureignirnar hér á landi í bardagaíþróttunum Muay Thai og frjálsum bardaga. Salvar Halldór Björnsson, framkvæmdastjóra keppninnar, telur möguleika íslensku kepp- endanna vera mjög góða. „Við erum búnir að setja stefnuna á að vinna fleiri bardaga en Danirnir og það verður ekkert gefið eftir í því. Við erum með stráka eins og Valþór Valdimarsson sem hefur keppt í Bandaríkjunum og þrír af þessum strákum fóru með okkur til Bandaríkjanna og kepptu þar. Auk þess er Helgi Jakobsen búinn að æfa hnefaleika í 8 til 9 ár. Í þungavigt erum við með Íslands- meistarann í karate, Ingólf Snorrason, sem er búinn að vinna allt sem hægt er þar. Hann var á karatemóti um síðustu helgi og keppir nú í boxi. Hann er virki- lega vel þjálfaður og öflugur strákur. Það verður mjög spenn- andi að fylgjast með því hvernig honum tekst að færa sig úr karatestílnum yfir í boxið.“ Hnefaleikasamband Íslands fékk nýverið inngöngu inn í Al- þjóðahnefaleikasambandið og því geta Íslendingar nú loks fengið bardaga sína skráða á ferilskrá og fengið þá viðurkennda. „Allir bardagar hingað til hafa verið sýningarbardagar og ekki farið á ferilskrá,“ segir Salvar. „Núna erum við komin inn í þessa al- þjóðaboxhreyfingu og okkar menn líta flestir frekar illa út á blaðinu. En margir þeirra eru búnir að keppa mikið þótt bardag- arnir hafi ekki verið skráðir og ég tel að okkar keppendur séu miklu sterkari heldur en blaðið gefur til kynna.“ freyr@frettabladid.is Danir teknir í bakaríið Íslendingar mæta Dönum í hnefaleikakeppni í Laugardalshöll annað kvöld. Síðast var keppt í hnefaleikum hérlendis árið 1956. VALÞÓR VALDIMARSSON Valþór slær þungt högg á æfingu. Hann verður á meðal keppenda í kvöld. Spennandi hlutir eru fram undan hjá íslenskum hnefaleikaköppum. Íslandsmeistaramótið í hnefaleik- um verður haldið í haust auk þess sem verið er að skipuleggja ferð til Kúbu. Einnig hafa Danir boðið Íslendingum að keppa á sínum heimavelli. MARTA Marta Jónsdóttir keppir við dönsku stúlk- una Rikke Tuxen Svendsen. Giancarlo Fisichella: Vill Ítala í stað Schumacher KAPPAKSTUR Giancarlo Fisichella, sem ekur fyrir Jordan í Formúlu 1 kappakstrinum, segir ítalskan al- menning vilja að Ferrari vinni keppnina með ítalskan ökumann undir stýri. Hann sjálfur komi þar sterklega til greina. „Núna held ég að rétti tíminn sé kominn fyrir Ferrari að fá til sín ítalska ökumenn,“ sagði Fisichella. „Þeir eiga besta bílinn, hafa unnið þrjá meistaratitla með Michael Schumacher, sem er frá- bær ökumaður, en ég held að ítalska þjóðin vilji núna sigra með ítalskan ökumann.“ ■ SKAUTAMÆR Japanska skautamærin Shizuka Arakawa sýndi góð tilþrif á Grand Prix-móti sem haldið var í St. Pétursborg í Rússlandi á dögunum. AP /M YN D

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.