Fréttablaðið - 07.03.2003, Side 20
7. mars 2003 FÖSTUDAGUR20
hvað?hvar?hvenær?
4 5 6 7 8 9 10
MARS
Föstudagur
Verð frá
68.500.- m. grind
Queen 153x203
Tilboð
Amerískar lúxus
heilsudýnur
Opið virka daga kl. 11-18, laugardag kl. 11-15 og sunnudag kl. 13-16.
Sigurstjarnan, Bláu húsin Fákafeni, s. 588-4545
Hver einasti hlutur í búðinni á hálfvirði - tveir fyrir einn meðan birgðir endast.
Húsgögn, púðaver, rúmteppi, ljós, fatnaður, gjafavara, perlutoppar og jakkar.
Gerið ótrúleg kaup
Okkar árlega rýmingarsala
■ ■ FUNDIR
8.30 Félag íslenskra uppeldis- og
meðferðarstofnana fyrir börn og ung-
linga býður til málþings á Hótel KEA á
Akureyri. Spurt verður hvort langtíma-
meðferð unglinga geti skilað betri ár-
angri. Einnig verður velt upp þeirri
spurningu hvort verkaskipting ríkis og
sveitarfélaga hindri hámarksárangur í
langtímameðferð.
12.00 Launajafnrétti – hvernig
gengur? er yfirskrift fundar sem haldinn
verður á Setrinu, Grand Hótel, í tilefni af
alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Ingólf-
ur V. Gíslason, Þorgerður Einarsdóttir,
Gunnar Páll Pálsson, Hildur Jónsdóttir
og Ragnhildur Helgadóttir flytja fram-
söguerindi.
12.00 Dóra S. Bjarnason, dósent
við Kennaraháskóla Íslands, flytur erind-
ið Fötlun og fullorðinshlutverk í stofu
101 í Odda, Háskóla Íslands. Fyrirlestur-
inn er hluti af fyrirlestraröð um fötlunar-
rannsóknir sem Uppeldis- og menntun-
arfræðiskor við Félagsvísindadeild Há-
skóla Íslands gengst fyrir.
20.00 Á alþjóðlegum bænadegi
kvenna ætla kristnar konur á Íslandi að
koma saman víða um land til að biðja
fyrir konum í Líbanon. Á höfuðborgar-
svæðinu er haldin samkoma í Aðvent-
kirkjunni við Ingólfsstræti.
■ ■ TÓNLEIKAR
17.30 Tónlistarmaðurinn Mugison
verður með tónleika í verslun 12 Tóna
við Skólavörðustíg. Að venju verða veit-
ingar í boði hússins. Allir velkomnir.
21.00 Ljóðskáld og tónlistarfólk frá
Kentucky og íslenskir gestir verða með
hljómorðtónleika í Nýlistasafninu í
kvöld og annað kvöld. Hópurinn hefur
haft samstarf um árabil og kennir sig við
The Viking Hillbilly Apocalypse Revue
& Friends. Að þessu sinni eru í hópnum
Ron Whitehead, Bragi Ólafsson, Michael
og Danny Pollock, Sarah Elizabeth, In-
spector 99, Frank Mezzina, LBH Krew,
Thordeez og Megas.
■ ■ KVIKMYND
19.00 Á undan hljómorðtónleikun-
um í Nýlistasafninu verður frumsýnd
hér á landi ný heimildarmynd um beat-
rithöfundinn Jack Kerouac og deilur af-
komenda hans um arfleifðina.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir gamanleikritið Forsetinn
kemur í heimsókn í Ásgarði, Glæsibæ.
20.00 Leikfélag Mosfellsbæjar
frumsýnir í kvöld Hobbitann eftir sögu
Tolkiens í leikgerð og leikstjórn Odds
Bjarna Þorkelssonar.
20.00 Söngleikurinn Með fullri
reisn eftir Terrence McNally og Davit
Yazbek á Stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Rakstur eftir Ólaf Jóhann
Ólafsson á Litla sviði Þjóðleik-
hússins.
20.00 Jón og Hólmfríður eftir
Gabor Rassov á Nýja sviði Borgarleik-
hússins. Síðasta aukasýning.
20.00 Leikfélag Akureyrar sýnir
Uppistand um jafnréttismál eftir Sigur-
björgu Þrastardóttur, Guðmund Kr.
Oddsson og Hallgrím Oddsson.
20.00 Íslenska óperan sýnir sjálf-
an Macbeth eftir Guiseppe Verdi með
Elínu Ósk Óskarsdóttur og Ólafi Kjartani
Sigurðarsyni í aðalhlutverkum.
20.00 Aukasýning á Sölumaður
deyr eftir Arthur Miller á Stóra sviði
Borgarleikhússins.
21.00 Einleikurinn Sellófon eftir
Björk Jakobsdóttur í NASA við Austur-
völl.
Le Sing, leiksýning og matur á Litla
sviðinu í Broadway.
■ ■ SKEMMTANIR
18.45 Búdrýgindi, Írafár, Bæjarins
bestu, Í svörtum fötum og Sálin hans
Jóns míns eru meðal þeirra sem koma
fram á Samfésballi í Kaplakrika.
23.00 Hin hressandi hljómsveit
HOD mun spila á Kaffé Kulture, sem er
beint á móti Þjóðleikhúsinu. Hljómsveit-
ina skipa þeir Davíð Þór Jónsson á
hljómborð, Helgi Sv. Helgason á tromm-
ur og Ómar Guðjónsson á gítar.
24.00 Dj Jón Mýrdal og Hemmi
feiti sjá um stuðið á Vídalín.
24.00 Singapore Sling og Rafgas-
haus á Grandrokk.
24.00 Hljómsveitin Í svörtum föt-
um skemmtir á veitingastaðnum
Champions café við Gullinbrú í Grafar-
vogi.
Diskódúettinn Þú og ég verður aftur
í banastuði á Kringlukránni. Þau Helga
og Jóhann stíga á stokk upp úr mið-
nætti en hljómsveit hússins, CADILLAC,
hitar upp og leikur á milli þess sem
dúettinn flytur ódauðleg lög sín.
Hljómsveitin 3some spilar á Celtic
Cross.
Ævintýrið af HobbitanumBilbó Baggasyni er komið á
fjalirnar hjá Leikfélagi Mosfells-
bæjar. Frumsýning verður í kvöld
í Bæjarleikhúsinu, þar sem Leik-
félagið hefur haft aðstöðu undan-
farin tíu ár.
„Strax og þessi hugmynd kom
upp, að setja upp Hobbitann, þá
varð ekki aftur snúið,“ segir
Gunnar Halldór Gunnarsson, for-
maður Leikfélags Mosfellsbæjar.
„Þetta er metnaðarfyllsta sýn-
ing sem við höfum ráðist í. Við
höfum alltaf fengið til liðs við
okkur atvinnuleikstjóra, en núna
fengum við jafnframt ljósahönn-
uð og búningahönnuð þannig að
allt yfirbragð sýningarinnar ein-
kennist af fagmennsku. Svo feng-
um við leikstjórann, Odd Bjarna
Þorkelsson, til þess að gera leik-
gerðina fyrir okkur.“
Með hlutverk Bilbós fer Sig-
steinn Sigurbergsson, sem fyrst
kom til liðs við leikfélagið í sýn-
ingunni Beðið eftir Go.com síðast-
liðið haust. Gandálf leikur Grétar
Snær Hjartarson, sem hefur
starfað með Leikfélagi Mos-
fellsbæjar nánast frá upp-
hafi. Gollri leikur svo
Dóra Wilde, sem hefur
verið viðloðandi Leik-
félagið frá því 1994. Búningar og
gervi taka greinilega mið af bíó-
myndinni um Hringadróttinssögu.
„Já, maður verður að gera það
svolítið. Fólk er náttúrlega búið að
sjá þessar myndir og býst við að
sjá Gollri og Gandálf, dvergana,
drýslana og tröllin.“
Allt þetta lið stígur ljóslifandi
fram á sviðið í Bæjarleikhúsinu.
Leikfélag Mosfellsbæjar var
stofnað árið 1976 og hefur aldrei
verið öflugra. „Það hafa náttúr-
lega verið hæðir og lægðir í
þessu. Við byrjuðum fyrst í
Hlégarði og fengum svo
fyrir tíu árum gamla
áhaldahúsið hérna sem
við breyttum í leikhús.
Undanfarið hefur
starfsemin hér
orðið metn-
aðarfyllri
m e ð
hverju
árinu
sem líður. Þessa helgi verðum við
með fimm sýningar. Frumsýning-
in á Hobbitanum er í kvöld, tvær
sýningar verða á morgun á revíu
sem heitir Það sem enginn veit
um fólkið í Mosó og síðan á sunnu-
deginum tvær sýningar á Hobbit-
anum.“
gudsteinn@frettabladid.is
Ígær var nýttkaffihús og
bar opnað í
miðbæ Reykja-
víkur. Staður-
inn ber nafnið
11 og er til húsa
þar sem Tres
Locos var áður.
Boðið verður
upp á þjóðlega
rétti, svo sem skyr með ávöxtum
og flatkökur. Á staðnum verður
gott úrval af nýmöluðu kaffi úr
vél og te úr pressukönnum.
Á efri hæðinni verður hægt að
horfa á beinar útsendingar í sjón-
varpi, bæði fréttatíma og helstu
tónlistarstöðvar. Einnig er þar
fótboltaspil sem gestir geta leikið
sér í.
Á neðri hæðinni geta gestir
valið sér tónlist úr djúkboxi auk
þess að komast frítt í samband við
Netið, annað hvort með því að
mæta sjálfir með tölvu eða fá af-
not af tölvu staðarins.
Á staðnum er líka sérstakur
„Framaveggur“ þar sem getur að
líta myndir frá ýmsum tímabilum
íslenskrar tónlistarsögu.
Flatkökur meðnetrápinu
Ég ætla að vinna alla helginaeins og geðbilaður hamstur í
hringhjóli en ætla samt að ljúga
því í Fréttablaðið að ég sé menn-
ingarsinnaður,“ segir grafíski
hönnuðurinn Þórarinn Leifsson.
„Ef ég væri ekki svona andfélags-
legur vinnualki myndi ég senni-
lega grenja út miða á Sölumaður
deyr og draga fjölskylduna upp í
Borgarleikhús við hávær mót-
mæli dóttur minnar sem vill nátt-
úrlega miklu frekar fara í Há-
skólabíó og sjá Catch Me if You
Can – hún sé hvort eð er búin að
sjá Rómeó og Júlíu tvisvar, allar
aðrar sýningar hljóta að valda
vonbrigðum í samanburði. Seinna
myndi ég klofa yfir drykkjusjúka
öryrkja í anddyri Grand Rokk og
hlusta á Singapore Sling. Finnbogi
Pétursson kemur sterkur inn í
Kúlunni daginn eftir, sennilega
geri ég alvöru úr því að fara að
sjá verk hans. Ég myndi líka elta
Jón Sæmund uppi. Hann er að
sýna undir einhverjum stiga á
Klapparstíg en ég hef þann dreng
grunaðan um að vera geðbilaðan
snilling. Svo væri fróðlegt að sjá
hvað frændi minn Hrappur Magn-
ússon er að bralla í Gallerí
Skugga undir fyrirsögninni Það
sem þú vilt sjá. Ég nenni samt
ekki upp í Gerðuberg að sjá Þetta
vil ég sjá hjá Ingibjörgu þó ég
ætli að kjósa kerlinguna. Maður
sér alveg fyrir sér hvernig hún
hefur sent Alfreð, Stefán Jón og
Össur af stað með trönurnar og
látið þá mála Hitlerískar vatns-
litamyndir í Austurstrætinu.“
Val Þórarins
ÞÓRARINN LEIFSSON
Þetta lístmér á!
Ég er líkabúinn að
sjá Sölumaður
deyr og það
verk lagðist
ákaflega vel í
mig. Flutning-
urinn er lipur
þó boðskapur-
inn sé vægast
sagt tugginn
ofan í mann. Pétur Einarsson er
frábær að venju,“ segir Stefán
Pálsson sagnfræðingur. Aukasýn-
ingar eru á Sölumanninum í
Borgarleikhúsinu í kvöld og ann-
að kvöld.
Mittmat
■ LEIKSÝNING
Ævintýraheimur Tolkiens
Leikfélag Mosfellsbæjar frumsýnir í kvöld Hobbitann í leikgerð Odds
Bjarna Þorkelssonar. Þetta er metnaðarfyllsta sýning félagsins frá upphafi.
HINN
ANDSTYGGILEGI GOLLRIR
Gollrir stígur ljóslifandi fram á
sviðið í Mosfellsbæ ásamt
Gandálfi, Bilbó Baggasyni og
öðrum ævintýraverum úr
heimi Tolkiens.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
✓
✓
✓