Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.03.2003, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 07.03.2003, Qupperneq 30
JARÐARFARIR 13.30 Elín Elíasdóttir frá Melstað, Höfðagrund 11, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju. 13.30 Guðrún Ágústsdóttir frá Baldurs- haga, Vestmannaeyjum, Dalbraut 20, Reykjavík, verður jarðsungin frá Áskirkju. 13.30 Halldór Guðmundsson, pípu- lagningameistari, Þangbakka 8, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju. 13.30 Logi Ásgeirsson verður jarðsung- inn frá Fossvogskapellu. 13.30 Ragnar Guðmundsson, Dalbraut 21, áður Bogahlíð 10, verður jarð- sunginn frá Háteigskirkju. 14.00 Elísabet Þórhallsdóttir verður jarðsungin frá Útskálakirkju, Garði. 14.00 Jóhanna Friðriksdóttir, Kirkjuvegi 11, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju. 14.00 Kristján Sigurðsson, Háholti 18, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju. Hann er góðurfélagi, annars hefðum við varla arkað sama ævi- veginn í 40 ár,“ segir Kristín Hall- dórsdóttir, fram- k v æ m d a s t j ó r i þingflokks Vinstri grænna, um eiginmann sinn, Jónas Kristjánsson ritstjóra. „Hann er einn besti penni lands- ins, úrræðagóður og klár. Skemmtilegur viðræðu og góður kokkur. Sjálfur lýsir hann sér gjarnan svo að hann sé hvers manns hugljúfi. Það sýnir góðan húmor. Lífið með honum hefur ekki verið nein lognmolla og ég er fegin því,“ segir Kristín, harla ánægð með sitt. ■ 30 7. mars 2003 FÖSTUDAGUR MAÐURINN MINN AFMÆLI HÁSETI „Nú er ég háseti um borð í Stíganda VE. Það er eins og að vera á fjögurra stjörnu hóteli. Svaka pláss. Á flestum þeirra skipa sem ég hef verið á á minni sjómannstíð hefur fiski verið hent, en á Stíganda er allt hirt. Það er alltaf siglt og selt í Þýska- landi þar sem er greitt fyrir allt. Vistvænasta skip sem ég hef ver- ið á,“ segir Kolbeinn Hlynur Tóm- asson, fyrrverandi stýrimaður á Báru ÍS, sem nýlega var sýknaður í frægu brottkastsmáli. Kolbeinn er nýlega fluttur til Eyja þar sem meiri von er um pláss en á Þorlákshöfn. Hann er Selfyssingur, á fjögur systkini, sonur Tómasar Jónssonar, fyrrum aðstoðaryfirlögregluþjóns á Sel- fossi, frá Þóroddsstöðum í Ölfusi, sem nýverið hætti eftir um 50 ára starf hjá Löggunni. Móðir Kol- beins er Guðrún Daníelsdóttir, ættuð frá Þórshöfn á Langanesi. „Já, svo er ég Þingeyingur, maður lifandi. Þú verður að treysta því varlega sem ég segi.“ Kolbeinn segist hafa verið of mikill pörupiltur svo ekki kom til greina að feta í fótspor föður síns. Hann hefur alltaf verið sjó- maður þó svo að sökum bíladellu hafi sig langað að læra bifvéla- virkjun. „En meðan maður er sæmilega sáttur við það sem maður hefur er köllunin til breyt- inga ekki mikil.“ Kolbeinn Hlynur er 35 ára og á 12 ára gamlan son. „En ég er frír og frjáls. Kemst ég ekki hátt á lista yfir eftirsóttustu pipar- sveina landsins eftir að þetta birt- ist?“ Blaðamaður tekur undir það þar til áhugamálin koma til tals. „Mín helstu áhugamál eru enska knattspyrnan, mótorsport og svo hef ég gaman að boxi – góðum bardögum, en leiðist hnoð. Annars er ég sófasérfræðingur í flestum íþróttum. Ég æfði flestallar íþróttagreinar sem kenndar voru þegar ég var yngri og hef prófað allt nema júdó og lyftingar.“ ■ Kolbeinn Hlynur Tómasson var nýlega sýknaður í frægu brottkastsmáli sem fyrrum stýrimaður á Báru ÍS 364. Persónan Vistvænasta skipið og á við **** hótel MEÐ SÚRMJÓLKINNI KOLBEINN HLYNUR TÓMASSON Var of mikill pörupiltur til að til greina kæmi að hann fetaði í fótspor föður síns, sem var að hætta í Löggunni eftir um 50 ára starf þar. Er siðferðilega rétt að hagnast ámistökum annarra?“ spurði Jónas séra Pálma einlægur á svip. „Nei, sannarlega ekki,“ svaraði séra Pálmi hneykslaður. „Þá var ég að spekúlera hvort ég gæti ekki fengið endurgreidd- ar þessar 50 þúsund krónur sem þú tókst í þóknun fyrir hjónavígsl- una í fyrra.“ ■ Þórarinn Guðnason. 10%. Guðrún Gísladóttir. Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 Að gefnu tilefni skal tekið fram að Árni Johnsen hefur enn ekki látið skipta um læsingar á Kvíabryggju. Leiðrétting 1. 2. 3. TÍMAMÓT 50 ÁRA „Það getur verið að afmæl- isdagurinn sé ástæðan fyrir því að Eiríkur í Listasafni Reykjavíkur úthlutaði mér þessum sýningar- tíma,“ segir Helgi Þorgils Frið- jónsson myndlistarmaður. „En ég hugsaði ekkert út í það.“ Hann segist ekki geta neitað því að hann sé nokkuð ánægður með þessa tímasetningu, því nú geti hann slegið saman afmælisveislu og opnun. Á sýningunni á Kjarvalsstöð- um, sem er einkasýning, gefur að líta verk sem Helgi hefur unnið á síðastliðnum þremur árum. Í þeim er hann trúr fígúratívri myndlist sinni, þótt vissulega megi alltaf greina breytingar. Megnið af þeim stóru verkum sem Helgi hefur málað undanfar- ið verða til sýnis. Helgi segist aldrei ná að mála fleiri en tvö stór málverk á ári. „Þetta tekur tíma,“ segir hann. „En ég reyni að vinna jafnt og þétt.“ Helgi er stofnandi og umsjón- armaður Gallerí Gangs og hefur rekið það af miklum krafti í fjöldamörg ár. En af hverju er þessu áhugi á því að reka gallerí, samhliða listsköpuninni? „Mér hefur fundist það vera nauðsyn- legt í þessu samfélagi,“ svarar Helgi. „Ég legg áherslu á að fá er- lenda jafnaldra til þess að koma og sýna, þannig að fólk geti kynnst verkum þeirra af eigin raun en lesi ekki bara um þau í Flash Art eða annars staðar.“ Helgi Þorgils er nokkuð sáttur við samtímann hvað myndlist varðar og telur ungt myndlistar- fólk á Íslandi hafa sýnt mikinn kraft að undanförnu. „En mér finnst þó vanta meira rými fyrir ungt fólk, svo það sé hægt að hafa meira fjör,“ segir Helgi. „Það þarf að skapa meira andrými fyrir ein- hvers konar klikkun og leik.“ Helgi var talsvert í fréttum fyrir nokkrum árum þegar mynd eftir hann, af nöktum karlmanni, var fjarlægð úr Ráðhúsinu að beiðni starfsmanna. Hann segir að sér sé yfirleitt sama um hvað fólki finnist um verk sín, en þó hafi hann orðið dálítið hissa á þessari umræðu. „Ég varð svolítið hissa á því að myndin skyldi ekki fá fólk til þess að líta meira í eig- in rann,“ segir Helgi. „Ég vonast alltaf til að áhorfandinn skoði sjálfan sig og viðhorf sín þegar hann skoðar myndirnar mínar.“ En hvar staðsetur hann sjálfan sig, út frá menningarlegum sjón- arhóli? „Ég myndi segja að ég væri íhaldssamur anarkisti,“ seg- ir Helgi. „Ég notast við hefðir, en ég nota þær á minn hátt.“ gs@frettabladid.is HELGI ÞORGILS FRIÐJÓNSSON Afmælisbarnið opnar sýningu á verkum sínum á Kjarvalsstöðum í dag. Hann var í óða önn að hengja upp verkin þegar ljósmyndara bar að. Íhaldssamur anarkisti Helgi Þorgils Friðjónsson opnar sýningu á verkum sínum á Kjarvalsstöðum í dag og held- ur upp á fimmtudagsafmælið sitt í leiðinni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.