Fréttablaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 32
Þeir mega eiga það hjá Baugi aðþeir kunna að grínast. Það orkar
kannski tvímælis að gantast með að
fólki sé mútað, en það er óneitanlega
meinfyndið að taka upp á því um há-
vetur að auglýsa vínber (steinlaus) á
199 krónur kílóið eins og Bónus
gerði í fyrradag á heilsíðu hérna í
Fréttablaðinu. Maður vonar að þessi
létta lund endist sem allralengst,
jafnvel svo lengi að maður eigi eftir
að lifa það að sjá venjulega matvöru
á verði sem er sambærilegt við það
sem gerist í nágrannalöndunum.
MANNI er annars yfirleitt ekki
hlátur í hug þegar verðlag á Íslandi
er annars vegar. Það er flestum hulin
ráðgáta hvernig stendur á því að
vörur sem eru fluttar til Íslands
skuli þurfa að vera mun dýrari held-
ur en annars staðar. Til dæmis í Sádí-
Arabíu þar sem allur varningur er
innfluttur, meira að segja pússning-
arsandur, er vöruverð ekki nema
brot af því sem hér tíðkast, og ekki
er það vegna þess að Sádí-Arabía sé
meira miðsvæðis í veröldinni heldur
en Ísland.
DÝRTÍÐIN hérna er yfirleitt út-
skýrð með því að tollar og flutnings-
kostnaður eigi sökina, rétt eins
hvorttveggja sé náttúrulögmál. En
til að mynda himinháir vextir stafa
tæplega af því að bankar þurfi að
greiða tolla og flutningskostnað af
peningaseðlum.
SVO VIRÐIST sem íslenskir
stjórnmálamenn hafi umturnast við
að sjá annan þáttinn í kvikmyndaröð-
inni um Hringadróttinssögu því að
pólitíkin virðist þessa stundina ekki
ganga út á annað en dularfullt „tveg-
gja turna tal“ sem innvígðir segja að
snúist um viðskiptalíf samkvæmt
ákveðnum leikreglum án formlegra
eða óformlegra afskipta stjórnmála-
manna. Það er kannski tilviljun en
orðið „Baugur“ merkir „Hringur“ og
því þykir mörgum spennandi að
fylgjast með átökum seiðskrattanna
Sárons og Sarúmans upp úr Hringa-
dróttinssögu. En meira spennandi
verður þó sjá hvort Halldór Ás. kem-
ur ekki öllum á óvart þegar átökin
standa sem hæst og stígur fram í
hlutverki Fróða hins friðsama hobb-
ita og leiðir föruneyti Hringsins til
farsælla endalykta. Vér Framsóknar-
menn erum nefnilega hinir íslensku
hobbitar. Það er nefnilega ekki öll
Hringavitleysan eins.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Auðhringa-
dróttinssaga
Bakþankar
Þráins Bertelssonar