Fréttablaðið - 27.03.2003, Síða 6
6 27. mars 2003 FIMMTUDAGUR
Frá hugmynd
að fullunnu verki
Plötusmíði
H
ön
nu
n:
G
ís
li
B
.
FLÓRÍDA, AP „Herinn sækir
hratt fram í Írak, en þessu
stríði er fjarri því lokið,“
sagði George W. Bush Banda-
ríkjaforseti þegar hann heim-
sótti bækistöð bandaríska
flughersins á Flórída, sama
dag og lík fyrstu bandarísku
hermannanna sem féllu í Írak
voru flutt til Bandaríkjanna.
Bush varaði við því að eftir
því sem bandarískar hersveit-
ir kæmu nær Bagdad yrði
mótspyrnan harðari. „Við vit-
um ekki hversu lengi þetta
stríð mun standa en við erum
reiðubúnir fyrir orrustuna sem er
fram undan.“
„Ég get fullvissað ykkur
um að dagur reikningsskila í
Írak kemur, og sá dagur nálg-
ast,“ sagði Bush og uppskar
mikið klapp. Hann lofaði bar-
áttukjark bandarískra her-
manna í Írak þegar þeir
mættu óvinum sínum og
hversu vel þeir kæmu fram
við óbreytta borgara.
Bandaríska þjóðin er ekki
jafn bjartsýn á gang stríðsins
og hún var fyrir skömmu.
Samkvæmt síðustu könnun
telja aðeins 38% landsmanna
að innrásin í Írak gangi vel fyrir
sig. Á föstudag taldi 71% að svo
væri. ■
Írak lagt
í rúst
MOSKVA, AP „Hvaða lýðræði eru
þeir að tala um þegar þeir eru að
reyna að leggja landið í rúst?“
spurði Igor Ivanov, utanríkisráð-
herra Rússlands. „Ef svona um-
fangsmiklum sprengjuárásum
verður haldið áfram munu áhrifin
á almenning og umhverfið verða
gífurleg.“ Orð hans eru þau hörð-
ustu sem hann hefur látið út úr
sér um stjórnvöld í Washington.
Hann sakaði Bandaríkjamenn um
að reyna að grafa undan Rússum
með tilhæfulausum ásökunum um
að þeir hefðu selt Írökum vopn
með ólöglegum hætti. ■
VIÐTAL „Reiði manna vex með
hverjum deginum,“ segir Jóhanna
Kristjónsdóttir, sem er um þessar
mundir stödd í smáríkinu Óman á
Arabíuskaga. „Mönnum blöskrar
grimmd og yfirgangur Banda-
ríkjamanna og þeirra fylgifiska, á
því er ekki nokkur vafi. Það er
sömuleiðis fáránlegt hvað þeir
hafa verið yfirlýsingaglaðir um
framgang stríðsins. Þeir hafa líka
þurft að draga æði mikið í land en
svo virðist sem hörkumótspyrna
Íraka hafi komið þeim í opna
skjöldu. Því fer nefnilega fjarri að
heimamenn taki innrásarliðinu
fagnandi.“
Hörmuleg mistök á borð við
árás á sýrlenska rútu og eldflaug-
ar sem fyrir slysni lentu á írönsku
og tyrknesku landsvæði hafa, að
sögn Jóhönnu, ekki orðið til að
bæta ímynd innrásarhersins.
„Dag hvern eru mótmæli hér í
Óman. Stríðið hefur mjög djúp-
stæð tilfinningaleg áhrif á Araba
hér sem annars staðar.“ Jóhanna
segir jafnframt að margir hafi
þungar áhyggjur af framhaldinu.
„Útlendingar hér á svæðinu óttast
að stríðið muni hafa langvarandi
áhrif og það geti tekið langan tíma
að græða sárin í samskiptum
arabaheimsins og Vesturlanda.“
Að sögn Jóhönnu er verulegur
munur á því hvað annars vegar
breskar og bandarískar sjón-
varpsstöðvar, eins og CNN og
BBC, sýna frá stríðinu og hins
vegar arabísku stöðvarnar Al
Jazeera og Al Arabia. „Það er
alveg greinilegt að arabískir
áhorfendur telja vestrænu stöðv-
arnar vera hlutdrægar og eru
sannfærðir um að þær hvorki segi
né sýni sannleikann.“
brynhildur@frettabladid.is
RÚSSAR STYÐJA ÍRAKA 45%
Rússa styðja Íraka í átökum
þeirra við Bandaríkjamenn og
Breta, samkvæmt nýrri skoðana-
könnun, en aðeins fimm prósent
segjast styðja Bandaríkjamenn.
Andúð á Bandaríkjunum hefur
aukist mjög í Rússlandi. 55%
Rússa hafa neikvætt viðhorf til
Bandaríkjamanna, en hlutfallið
hefur hækkað úr 15% á tæpu ári.
PÁFI HRYGGUR Jóhannes Páll
páfi II ítrekaði harm sinn vegna
innrásarinnar
í Írak þegar
hann ávarpaði
pílagríma og
trúaða á Pét-
urstorginu í
Vatíkaninu.
Hann sagðist
fylgjast með
fréttum af
stríðsátökun-
um, hryggur í
hjarta, án þess
að gleyma öðrum blóðugum átök-
um sem geisa víðs vegar um
heiminn.
FANGAR MYRTIR? Bandaríkjaher
rannsakar ásakanir þess efnis að
Írakar hafi myrt sjö bandaríska
hermenn eftir að þeir gáfust upp.
Bandaríkjamenn segjast hafa náð
að hlera skeytasendingar sem
gefa þetta til kynna. Írakar segja
að hermennirnir hafi fallið í bar-
dögum.
EKKI INN Í ÍRAK Yfirmaður tyrk-
neska hersins hefur heitið því að
senda engar nýjar hersveitir inn í
Írak nema mikill fjöldi flótta-
manna sæki til Tyrklands eða að
öryggi Tyrkja sé ógnað. Hann
segist ekki munu fyrirskipa
neina liðsflutninga nema í sam-
ráði við Bandaríkin.
500 FELLDIR Vísbendingar eru
uppi um að stærsta orrusta
stríðsins enn sem komið er hafi
verið háð nærri borginni Najaf,
suður af Bagdad. Bandaríkja-
menn segja 500 íraska hermenn
hafa legið í valnum eftir orrust-
una en segjast sjálfir hafa slopp-
ið við mannfall.
Djúp sár sem
seint munu gróa
Jóhanna Kristjónsdóttir dvelur um þessar mundir í Óman
á Arabíuskaga. Hún segir að heimamönnum blöskri grimmd
og yfirgangur Bandaríkjamanna.
JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR
„Bush og Blair og lið þeirra virðast hafa
trúað því í fullri alvöru að innrásarliðinu
yrði tekið fagnandi af íröskum borgurum.“
STRÍÐI MÓTMÆLT
Innrásinni í Írak er mótmælt daglega í mörgum arabaríkjum enda hefur stríðið djúpstæð
tilfinningaleg áhrif á almenna borgara þar víðast hvar, að sögn Jóhönnu Kristjónsdóttur.
■ Innrás í Írak/
Örfréttir
■ Innrás í Írak/
Rússar
Bandaríkjaforseti varaði við því að erfiðasti hlutinn væri fram undan:
Stríðinu er fjarri því lokið
HERMENN ÁVARPAÐIR
Bandaríkjaforseti ávarpaði hermenn í
herstöð í Flórída. Hann bar mikið lof á
baráttukjark hersins.