Fréttablaðið - 27.03.2003, Blaðsíða 13
14 27. mars 2003 FIMMTUDAGUR
HLAUPARAR GEGN STRÍÐI
Hlauparar sem tóku þátt í Rómarmaraþon-
inu á sunnudag héldu uppi gríðarstórum
fána við upphaf hlaupsins. Á honum stóð:
„Íþróttir gegn stríði“ og var þar verið að
vísa í stríðið gegn Írak. Kenýubúinn Freder-
ick Cherono vann hlaupið á tímanum 2
klukkustundir, 8 mínútur og 48 sekúndur.
AP
/M
YN
D Evrópumeistarar Real Madrid:
Vilja kaupa Beckham í sumar
FÓTBOLTI Evrópumeistarar Real
Madrid hafa áhuga á að fá David
Beckham, leikmann Manchester
United, í sínar raðir í sumar.
Spænska liðið mun vera tilbúið
að greiða um 4,9 milljarða króna
fyrir leikmanninn.
Jorge Valdano, framkvæmda-
stjóri Real Madrid, sem í gegnum
árin hefur keypt stórstjörnurnar
Ronaldo, Zinedine Zidane og Luis
Figo til félagsins, hefur staðfest
áhuga sinn á Beckham. „Miðað við
þau stóru kaup sem Real Madrid
hefur gert undanfarin ár virðist
Beckham vera næsta stóra verkefni
okkar,“ sagði hann í viðtali við
spænskt dagblað.
Beckham segir það mikinn heið-
ur að vera orðaður við spænska
stórliðið. „Allir leikmenn teldu það
mikinn heiður að vera í umræðunni
hjá Real Madrid,“ sagði hann í við-
tali við enska blaðið The Sun. „Þeir
hafa frábæra leikmenn og mikla
hefð.“ Samningur Beckham við
United gildir til ársins 2005. Fari
hann til Real eru taldar líkur á því
að Figo, sem einnig er hægri kant-
maður, fari til United í skiptum. ■
Hermann Hreiðarsson:
Samdi við
Charlton
FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson,
leikmaður Ipswich, hefur gert
samning við enska úrvalsdeildarlið-
ið Charlton. Kaupverðið er 500 þús-
und pund, eða um 61 milljón króna.
Hermann var keyptur til
Ipswich árið 2000 frá Wimbledon
fyrir um 490 milljónir króna og hef-
ur því lækkað mikið í verði.
Portsmouth, sem er í efsta sæti
ensku 1. deildarinnar, bauð einnig í
Hermann og hafði Ipswich sam-
þykkt tilboð beggja liða. Hermann
ákvað að taka tilboði Charlton og
leikur því með liðinu í úrvalsdeild-
inni á næstu leiktíð. Liðið er í 7. sæti
deildarinnar. ■
Styrkleikalisti FIFA:
Ísland fellur
um eitt sæti
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
í knattspyrnu er ásamt Ghana í
61. til 62. sæti á styrkleikalista
FIFA sem gefinn var út í gær. Ís-
land hefur því fallið um eitt sæti
á listanum frá því í síðasta mán-
uði.
Skotar, mótherjar Íslands í
undankeppni EM næstkomandi
laugardag, eru skammt undan í
63. til 64. sæti ásamt Alþýðulýð-
veldinu Kongó. Heimsmeistarar
Brasilíu eru efstir sem fyrr, en
Spánverjar fara upp fyrir
Frakka í annað sætið. ■
18.25 Sjónvarpið
Snjókross. Þáttaröð um kappaksturs-
mótaröð vélsleðamanna.
18.30 Sýn
Western World Soccer Show. Heimsfót-
bolti Western World.
19.00 Sýn
Intersport-deildin. Bein útsending frá
þriðja leik Grindavíkur og Tindastóls í
undanúrslitum.
20.00 Austurberg
ÍR og KA eigast við í Esso-deild karla í
handbolta. ÍR-ingar eru í þriðja sæti
deildarinnar og í harðri baráttu við Val
og Hauka um deildarmeistaratitilinn.
KA-menn eru í næsta sæti fyrir neðan.
20.00 Digranes
HK tekur á móti Stjörnunni í Esso-deild
karla í handbolta. HK berst fyrir sæti í
úrslitakeppninni.
20.00 Framhús
Framarar mæta Valsmönnum í Esso-
deild karla í handbolta.
20.00 Höllin Akureyri
Þór tekur á móti Gróttu/KR í Esso-deild
karla í handbolta. Liðin ætla sér bæði
sæti í úrslitakeppninni.
20.00 Kaplakriki
FHog Víkingur eigast við í Esso-deild
karla í handbolta.
20.00 Varmá
Aftureldingmætir Haukum í Esso-deild
karla í handbolta. Haukar eru í öðru
sæti deildarinnar og berjast um deildar-
meistaratitilinn.
20.00 Vestmannaeyjar
Eyjamenn taka á móti Selfyssingum í
Esso-deild karla í handbolta.
21.00 Sýn
Sýnt frá Madeira Island-mótinu í evr-
ópsku PGA-mótaröðinni í golfi.
22.00 Sýn
Football Week UK. Nýjustu fréttirnar úr
enska boltanum.
22.30 Sýn
Sportið með Olís. Fjallað er um helstu
íþróttaviðburði heima og erlendis.
23.00 Sýn
HM 2002. Sýnt frá leik Japans og Rúss-
lands á HM í Asíu í sumar.
hvað?hvar?hvenær?
24 25 26 27 28 29 30
MARS
Fimmtudagur
BECKHAM
David Beckham og félagar í Manchester
United mæta Real Madrid í 8 liða úrslitum
Meistaradeildarinnar í næsta mánuði.