Fréttablaðið - 27.03.2003, Blaðsíða 17
27. mars 2003Fermingablaðið4
Það er mikið um að fólk komitil okkar og vanti hjálp við að
útbúa falleg boðskort fyrir ferm-
inguna,“ segir Valgeir Hallvarðs-
son, framkvæmdastjóri Offset
ehf. „Við hjálpum fólki að útbúa
boðskortin, prentum þau og send-
um svo persónuleg kort til hvers
og eins. Það sem við þurfum að fá
er hugmynd að útliti, og t.d.
nokkrar myndir af fermingar-
barninu, sem við skönnum og
setjum inn. Þá erum við líka með
nokkrar staðlaðar gerðir.“ Val-
geir segir fólk geta komið með
Excel- eða Word-skjal með nöfn-
um boðsgesta og þeir hjá Offset
sjái um að setja inn ávarp inn í
kortin, eins og til dæmis elsku
amma, elsku frænka og svo fram-
vegis.
„Annars er það bara hug-
myndaflugið sem ræður, við get-
um leyst hvað sem er varðandi
kortin. Svo er allt prentað í ljós-
myndagæðum.“ ■
Speltbrauð með fyllingu:
250 g hveiti
250 g fínmalað spelthveiti
225 g vatn ca. 27˚c
70 g smjör.
10 g salt
15 g pressuger
● Öllu blandað vel saman í hrærivél (með
krók) og hnoðað hægt í 4-6 mín. eftir að
allt er komið vel saman. Deigið látið hvíla í
15 mín. Síðan er deiginu skipt í tvennt og
hnoðað létt og látið hvíla í 15 mín. Deigið
flatt út í lengd venjulegrar bökunarplötu.
Fyllingunni er skipt í tvennt og pakkað inn
í deigið, penslað með vatni og örlitlu af
grófu hafsalti stráð yfir. Látið standa í 10
mín. áður en bakað við 200˚C í ca. 20 mín
eða þar til komin er góð skorpa. Einnig má
sleppa fyllingu og baka sem baguettes.
Fylling:
250 g sveppir
rauð og græn paprika
stór laukur
4-5 hvítlauksgeirar
dökkar og grænar ólífur, ca. 15-20 af hvoru
3-400 g rjómaostur
salt og pipar
ferskar kryddjurtir: timjan, oregano og
steinselja (getur verið gott að bæta við
steiktum kjúklingi eða öðru sambærilegu
kjöti)
● Sveppir, laukur og paprika eru létt-
svissuð á pönnu í ólífuolíu, kryddað með
salti og pipar og kryddjurtunum bætt í
ásamt hvítlauknum. Látið kólna lítllega
áður en þessu er öllu hrært saman við
rjómaostinn (hægt að laga daginn áður).
Halldór Gylfason leikari vareinn fárra í sínum árgangi
sem völdu að fermast ekki.
„Mamma fermdist ekki og einn
eldri bræðra minna valdi að gera
það ekki heldur. Þegar kom að
mér byrjaði ég í fermingar-
fræðslunni, en hætti svo við. Mig
langaði að fermast út af gjöfun-
um, en mamma sagði að þá fengi
ég bara sálmabækur, Biblíur og
Passíusálma í fermingargjöf og
annað sem tengdist trúariðkun.
En fyrst og fremst snerist þetta
um val, mér fannst heiðarlegast
að fermast ekki þar sem ég er
ekki trúaður,“ segir Halldór. ■
Nóg að fá hugmynd
að boðskorti
Offset hjálpar til með útfærsluna
PERSÓNULEG BOÐSKORT
Boðskort geta verið frumleg og
skemmtileg og um að gera að
nota hugmyndaflugið.
Gómsætt brauðmeti
Ásgeir Þór Tómasson bakarameistari hjá Sandholtsbakaríi gefur uppskrift að girnilegu
speltbrauði með fyllingu.
NAFNARNIR TÓMASSON
OG SANDHOLT
Standa saman í bakstrinum hjá Sandholt
og gefa lesendum góðar uppskriftir.
Valdi að fermast ekki
– var samt freistað út af gjöfunum
HALLDÓR GYLFASON
Ákvað að sleppa fermingunni þrátt
fyrir að gjafirnar freistuðu.
M
YN
D
/T
H
O
R
ST
EN