Fréttablaðið - 27.03.2003, Side 44
Söngvari á ferð:
Bíllinn
logaði
FERÐALAG Geir Ólafsson dægur-
lagasöngvari lenti í kröppum
dansi í Vestur-Húnavatnssýslu á
dögunum þegar eldur kom upp í
bifreið hans. Geir hafði ekið
Lincoln Continental-bifreið sinni
ofan í misfellu rétt utan við
Blönduós og við það gaf sig olíu-
leiðsla úr gírkassa. Eftir bráða-
birgðaviðgerð var haldið áfram
þar til farþegar Geirs tóku eftir
því að eldtungurnar stóðu aftan úr
glæsivagninum. Var brugðist
skjótt við og stórtjóni forðað. Sér
ekki á Lincolnum eftir viðgerð. ■
25FIMMTUDAGUR 27. mars 2003
■ Tímamót
Tregi, uppsagnir og fjárhagsvandi
Alþjóðlegi leikhúsdagurinn á morgun. Ávarpið kemur frá Akureyri og verður flutt á öllum leiksviðum landsins.
Leikhúsfólk eygir von í breyttum heimi.
LEIKHÚS „Það var með tregabland-
inni gleði að ég tók að mér að setja
saman ávarpið að þessu sinni,“
segir Þráinn Karlsson, leikari á
Akureyri, í upphafi ávarps síns á
Alþjóðlega leikhúsdeginum sem er
á morgun. Ávarpið verður flutt á
öllum leiksviðum landsins þar sem
sýningar fara fram og það sama
má segja um allan heim en þar
verður ávarp þýska leikskáldsins
Tankred Dorst í aðalhlutverki. En
Þráinn heldur áfram:
„Eins og nú er kunnugt hefur
öllum starfsmönnum eins atvinnu-
leikhúss landsins, leikfélags Akur-
eyrar, verið sagt upp störfum
vegna fjárhagsvanda. Við slík
tímamót veltir maður fyrir sér
spurningum sem varða okkur
listamennina og áhorfendur, af
meiri alvöru en þegar allt leikur í
lyndi. Spurningum eins og: Hvers
virði er leiklist samfélaginu? Hver
er hagnaðurinn?“
Tankred Dorst lítur yfir sviðið í
víðara samhengi í ávarpi sínu í til-
efni dagsins: „Nú segja menn mér
aftur á móti að við getum ekki
lengur skoðað líf okkar samkvæmt
hefðbundnum aðferðum leikhúss-
ins, eða með hefðbundinni drama-
túrgíu. Það er sem sagt engin leið
til þess að segja sögur. Þess í stað
koma textar af ýmsu tagi, ekki
samtöl, en yfirlýsingar. Ekkert
drama.“
Í lok ávarpsins eygir Tankred
Dorst þó von: „Leiklistin er ein
merkasta uppfinning mannkyns-
ins; jafn sérstæð og uppgötvun
hjólsins, eða yfirráð mannsins yfir
eldinum.“ Og Þráinn Karlsson er á
svipuðum slóðum: „Hagnaður leik-
listar verður ekki í krónum talinn,
hann er annars eðlis. Við erum
margs konar, fólkið sem byggir
þetta land, með ólíkar skoðanir og
viðhorf. Ekki eru allir á eitt sáttir
um hvort, og þá hve miklum, pen-
ingum skuli varið til menningar-
starfsemi. Við áhorfendur og leik-
húsfólk ættum að velta fyrir okkur
spurningum á borð við þær sem ég
nefndi í upphafi. Hvers virði er
leikhús? Hverju breytir það fyrir
fámennt land eins og Ísland að
hafa atvinnuleikhús? Hver er
hagnaðurinn? Njótið kvöldsins.“
eir@frettabladid.is
REIKA UM Á EIGIN ÁBYRGÐ
Nú stefnir í að fleiri og fleiri bæjarfélög
setji reglur um kattahald í þéttbýli og skylt
verði að merkja þá og skrá.
Ísafjarðarbær:
Reglur um
kattahald í
deiglunni
KATTAHALD Landbúnaðarnefnd Ísa-
fjarðarbæjar hefur verið falið að
vinna að reglugerð um kattahald í
bænum. Halldór Halldórsson bæj-
arstjóri segir það hafa staðið lengi
til og litið hafi verið til reynslu
Austfirðinga í því sambandi en
meðal annars hafa verið í gildi
slíkar reglur í Fjarðabyggð frá því
1996. „Ég held að það séu meiri
líkur en minni að við látum verða
af þessu. Það höfðar til ábyrgðar
fólks ef bæjarbúum verður gert
skylt að skrá ketti sína og hreinsa
þá reglulega. Það er ekki nema af
hinu góða að hafa reglu á þessum
hlutum,“ segir Halldór.
Hann segir að innan bæjarins
haldi fólk enn hross og kindur og
slíkt dýrahald myndi þá verða
með í þeirri reglugerð. ■
ÞRÁINN KARLSSON
Gerir fjárhagsvanda og uppsagnir hjá Leik-
félagi Akureyrar að inntaki ávarps síns.
JARÐARFARIR
15.00 Andrés Guðbrandsson, Lauga-
læk 34, verður jarðsunginn frá
Laugarneskirkju.
15.00 Minningarathöfn um Þorgerði
Sigríði Jónsdóttur, Vestmanna-
braut 76, Vestmannaeyjum, fer
fram í Vídalínskirkju í Garðabæ.
ANDLÁT
María Guðmundsdóttir, Rauðarárstíg 3,
lést 23. mars.
Valgarður Jóhann Jónatansson, Hrafn-
istu, Reykjavík, er látinn. Jarðarförin hef-
ur farið fram.
Ægir Albert Jónsson, Fálkagötu 28,
Reykjavík, lést 13. mars. Útförin hefur
farið fram.