Fréttablaðið - 27.03.2003, Side 47

Fréttablaðið - 27.03.2003, Side 47
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar SIGURJÓNS MAGNÚSAR EGILSSONAR Gamlir bakþankar Eitt af því sem ég hef á samvisk-unni er framkoma mín í flugvél sem flugfélagið Vængir átti. Þetta var í áætlunarflugi frá Reykjavík til Rifs. Af og til hef ég fengið bakþanka vegna þess sem ég sagði við einn far- þeganna. Það var leiðindaveður – vet- ur í hámarki. Skafrenningur og jafn- vel ofankoma að auki. Tvísýnt var með flug – farþegar biðu. Sumir kvíðnir, aðrir ekki. Ég þekkti fáa en einn kannaðist ég við. Vorum báðir að sunnan en bjuggum í Ólafsvík. Hann var klæddur eftir veðri í hné- háum stígvélum og kuldaúlpu. Við tókum tal saman, ræddum um það sem við áttum sameiginlegt, Reykja- vík og veðrið. FARÞEGAR til Rifs gangi um borð, var tilkynnt. Við gengum um borð í vélina, tíu manna far. Félagi minn gekk hikandi skrefum að vélinni, var síðastur allra og varð þess vegna að sitja aftast – nánast aftur í stéli. Þar sem hann er maður hár vexti gat hann ekki setið með beint bak – vélin var ekki nógu stór til þess. Loks var tekið á loft. Ég var ekki hræddur þar sem ég sat um miðja vél. SÁ Á radarinn hjá flugmanninum og fylgdist með Snæfellsjökli verða sí- fellt stærri og greinilegri á skjánum. Það var ókyrrð en það var í lagi mín vegna, heyrði kvíðastunur af og til. Brosti innra með mér af hræðslu hinna. Flugmaðurinn sneri sér óvænt í sæti sínu og bað mig að biðja þann sem sat aftast að tala við sig – sagðist þurfa að biðja hann að vera á gólfi vélarinnar við lendinguna, þurfti meiri þunga framar. Ég hlýddi. FARÞEGINN stundi upp hvað flug- maðurinn vildi sér. „Hann vill að þú leysir sig af meðan hann fer á klós- ettið“, laug ég. Aumingja maðurinn hristist skríðandi fram gang vélar- innar og kvíðinn lak af honum. Auð- vitað var ekkert klósett um borð í vélinni. Hræðslan hafði tekið alla skynsemi frá honum og ég byrjaði strax að iðrast og hef gert það síðan. Þegar hann loks kom til flugmanns- ins og heyrði hið rétta erindi settist hann á gólf vélarinnar. Hann varð að setja olnbogann á lær mér. Horfði á mig grimmum augum og sagði við mig: þú ert meira helvítis fíflið. Síð- an hefur hann hvorki talað við mig né heilsað. Fyrirgefðu!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.