Fréttablaðið - 27.03.2003, Side 29
27. mars 2003Fermingablaðið16
Fermingarbörnin í ár fylgjahártískunni eins og hún gerist
almennt,“ segir Hildur Árnadótt-
ir, hárgreiðslumeistari hjá
Toni&Guy. „Einfaldleikinn í
greiðslum finnst okkur virka best,
greiðslur sem hæfa einstaklingn-
um, ekki of flóknar eða of mikið
að gerast í hárinu. Þarna skiptir
form gríðarlega miklu máli og að
vangasvipurinn komi vel út.“
Hildur segir mikið um það hjá
Toni&Guy að fermingarbarnið
vilji flotta klippingu, fallegan lit
og leyfa svo klippingunni að njóta
sín á fermingardaginn. „Þá vilja
þau hafa hárið blásið og mótað í
línuna. Allt snýst þetta um form,
andlitsfall og persónuleika, hvort
sem hárið er slegið eða uppsett.
Liðir og hreyfing í hári hafa kom-
ið sterkt inn og við nýtum okkur
það í fermingargreiðslurnar,“
segir Hildur.
„Vinsælar línur hjá strákunum
í dag eru í síðara lagi, þeir eru þó
vel snyrtir og klipptir í samræmi
við karakterinn og meira orðið um
það að herrarnir komi á stofuna
og fái greiðslu til að ná fram rétt-
um áherslum í klippingunni.“ ■
Benedikt Smári Skúlason, bet-ur þekktur sem Benni í
Búdrýgindum, fermdist í mars í
fyrra. Hann segir helst standa
upp úr hvað hann fékk mikið af
peningum. „Ég er ekki búinn að
eyða þeim nema að litlu leyti. Ég
lagði eitthvað inn á bók, en ég
festi þá nú ekki inni á bankabók
til elliáranna,“ segir Benni hlæj-
andi. „Svo fékk ég seðlaveski
sem mér þótti rosalega varið í, en
því miður er ég búinn að týna því
og auglýsi eftir því hér með.
Fermingardagurinn var mjög
skemmtilegur. Fín veisla,“ segir
Benni. „Það er alltaf gaman að
halda flottar veislur.“ ■
Engar ýktar greiðslur
– hártíska fermingarbarn-
anna í ár er í samræmi
við hártískuna almennt.
Dramatískar greiðslur
heyra fortíðinni til og eng-
inn á að þurfa að skamm-
ast sín fyrir fermingar-
myndina.
BENNI, GÍTARLEIKARI
Í BÚDRÝGINDUM
Týndi veski sem hann fékk í fermingargjöf
og var honum mjög kært.
Fékk mest
peninga
Í STÍL VIÐ KARAKTERINN
„Lubbinn“ er klipptur og snyrtur,
og gel eða froða notuð til að ná fram
réttum áhrifum.
Eftirminnilegast
úr fermingunni
Sniðug t
LÁTLAUST OG FALLEGT
Skreytingarnar eru látlausar og
hafðar að aftan.
FRJÁLSLEGT
Engar ýktar greiðslur fyrir stelpurnar, bara örlitlir liðir og blástur.
Takið fermingarbarnið meðþegar velja á kerti og serví-
ettur. Flest börn vilja fá að vera
með í ráðum um skreytingar í
sinni eigin veislu.