Fréttablaðið - 27.03.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 27.03.2003, Blaðsíða 28
27. mars 2003 Fermingablaðið 15 Nær allt upppantað Ljósmyndastofan Mynd sími: 565 4207 www.ljosmynd.is Ljósmyndastofa Kópavogs sími: 554 3020 SVERRIR HERMANNSSON Blankskórnir meiddu hann á fermingar- daginn, svo mjög að hann þurfti að ganga á sokkaleistunum heim. Starði heill- aður á sek- únduvísinn – og dáðist að Jóni á Birnustöðum sem saup rösklega á kaleiknum. Sverrir Hermannsson alþingis-maður segir nokkur atriði standa upp úr þegar hann minnist fermingardagsins síns, sem var 8. júní 1944. „Við vorum sex ferm- ingarsystkin, þrjár stúlkur og þrír drengir. Mér er ákaflega minnisstætt að nærri var liðið yfir piltinn sem stóð við hliðina á mér. Þá kom mér það einkenni- lega fyrir sjónir að vel metin hús- freyja, sem ég hafði mikið dálæti á, flóði öll í tárum þegar hún fylgdi fóstursyni sínum og kraup við altarið.“ Sverrir segist hafa dáðst að því hversu Jón á Birnustöðum, mágur pabba hans, saup rösklega á bikarnum hjá séra Óla Ketils- syni. „Nú, svo hafði ég aldrei ver- ið á blankskóm fyrr. Skórinn á hægri fæti meiddi mig svo að ég þurfti að ganga á sokkaleistunum heim til mín, sem var um það bil einn og hálfur kílómetri.“ Að- spurður um bestu gjöfina segir Sverrir: „Það var armbandsúr, sem ég frétti seinna að kostaði 375 krónur. Það var mikill pening- ur. Ég var svo himinlifandi með úrið að ég lá andvaka nóttina eftir ferminguna og starði heillaður á sekúnduvísinn.“ ■ Eftirminnilegast úr fermingunni Stærsta fermingargjöfin varnýr trompet,“ segir Magnús Ágústsson, söngvari í Búdrýgind- um, sem fermdist 8. apríl árið 2001. „Þetta er alvöru atvinnu- mannahljóðfæri,“ segir hann. Magnús spilar ekki á trompet- inn í Búdrýgindum, en er í Tón- skóla Kópavogs að læra á hljóð- færið. „Við notum reyndar trompet í nokkrum lögum með hljómsveitinni, en þó ekki mikið á tónleikum.“ Maggi segir að fermingar- veislan hafi verið mjög skemmti- leg, heitur matur og kökur. „Pabbi og afi voru svo með ræð- ur.“ Hvað varðar undirbúninginn segir Maggi hann hafa verið frá- bæran og ferðalagið skemmtilegt. „En trompetinn var toppurinn.“ ■ Trompetinn toppurinn veislan fín og góðar ræður MAGGI Í BÚDRÝGINDUM Fékk atvinnumannatrompet í fermingargjöf Eftirminnilegast úr fermingunni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.