Fréttablaðið - 27.03.2003, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 27.03.2003, Blaðsíða 23
27. mars 2003Fermingablaðið10 w w w .d es ig n. is © 2 00 3Fæst um land allt Dreifingaraðili: Tákn heilagrar þrenningar Til styrktar blindum Það fyrsta sem kemur í huganner allt sem fermingin er ekki,“ segir Bjarni Karlsson, sóknar- prestur í Laugarneskirkju, þegar hann er beðinn að útskýra hvað felst í kristilegri fermingu. „Við lifum í þjóðfélagi þar sem er svo mikill snúningur, svo mikið mið- flóttaafl, að við erum alltaf að flýja kjarna málsins. Við erum alltaf á leið lengra og lengra frá inntaki hlutanna. Þess vegna er ekkert brýnna í þjóðfélagi nútím- ans en að eiga tök á því með sjálf- um sér að staðnæmast og þagna, hljóðna. Við erum nýkomin út úr 20. öldinni þar sem spurningin var: Hvað er hægt? Við komumst að því að allt er hægt. Við öðluð- umst allrahanda tækni og færni, en á þessari nýju öld verður spurningin ekki hvað er hægt. Spurningin er: Hvað er rétt? Og hafi fermingin einhvern tíma haft vægi þá hefur hún virkilega öðl- ast það núna með auknum þunga, vegna þess að börnin okkar eru manneskjur sem standa frammi fyrir möguleikum sem eru allir aðrir en þeir sem foreldrar þeirra, að ég tali nú ekki um ömmur og afa, stóðu frammi fyrir. Þau eru að fæðast inn í veruleika þar sem allt er hægt.“ Bjarni segir hræðilega erfitt fyrir börnin að vita hvað er rétt. „Þess vegna er fermingarfræðsl- an ekki kennsla í því hvað er rétt, heldur kennsla í því hvernig hægt er að komast að því hvað er rétt. Hún er samleið, þar sem full- orðnar manneskjur mæla sér mót við unglingana til að ræða um raunveruleg lífsgildi. Ekki til að gefa þeim svörin, heldur ræða við þau þannig að þau verði fær um að svara spurningum sem eru ekki enn komnar á dagskrá. Þetta er háleitasta hlutverk fermingar- innar. Þegar fermingarbarnið hefur lokið fræðslunni, hefur staðið frammi fyrir altarinu og svarað játandi spurningunni: Viltu hafa Jesú Krist að leiðtoga lífs þíns, þá á það innra með sér minningu um að hafa í kirkjunni átt heiðarlegt samtal við fullorðið, velviljað og áhugasamt fólk, sem langaði að ræða við það um raunveruleg lífs- gildi.“ ■ Bjarni Karlsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, segir ferminguna aldrei hafa haft jafn mikið vægi og nú. Ingibjörg Haraldsdóttir rithöf-undur fermdist í Fríkirkjunni 8. apríl 1956. Það sem stendur upp úr í minningunni er einkum tvennt: „Við vorum bara tvær í bekknum sem fermdumst í Fríkirkjunni. Á fermingardaginn mættu svo bekkjarfélagarnir í kirkjuna, komu sér fyrir á efri svölunum næst altarinu, þar sem þau sáu vel framan í okkur, og grettu sig og geifluðu allan tímann. Þau gerðu allt sem þau gátu til að koma okkur til að hlæja, en við héldum þó nokkurn veginn andlitinu.“ Önnur minning tengd ferm- ingardegi Ingibjargar eru hæla- háu skórnir. „Þetta var í fyrsta skipti á ævinni sem ég gekk á há- hæluðum skóm. Mikil uppbygg- ing var í Kópavoginum á þessum tíma, engar götur malbikaðar og svo var auðvitað rigning. Ég fór á fínu skónum út í drulluna og út í leigubílinn sem keyrði okkur í kirkjuna. Skórnir voru útataðir í skít og stóðu aurugir undan kyrtlinum. Þetta og fíflalætin í bekkjarsystkinunum stendur upp úr í minningunni.“ Besta gjöfin sem Ingibjörg fékk var Íslendingasögurnar sem hún fékk frá foreldrum sínum. „Öll 13 bindin,“ segir Ingibjörg. „Og á þau að sjálfsögðu enn.“ ■ Bekkjarsystkinin grettu sig og geifluðu – en Ingibjörg hélt andlitinu Eftirminnilegast úr fermingunni Hvað er ferming? INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR RITHÖFUNDUR Fermdist í aurugum skóm og átti fullt í fangi með að hlæja ekki í kirkjunni vegna fíflaláta bekkjarsystkinanna. Erum alltaf að flýja kjarna málsins SIGURVIN JÓNSSON OG SÓLVEIG HALLA KRISTJÁNSDÓTTIR ÁSAMT BJARNA Fermingarundirbúningurinn í Laugarneskirkju fólst meðal annars í harmonikkuballi með fötluðum og eldri borgurum. „Við viljum opna augu unglinganna fyrir því að manneskjur eru gríðarlega fjölbreyttar, og hver einasta manneskja er merkileg,“ segja leiðbeinendurnir. Skemmtilegt er að búa til sér-staka gestabók fyrir ferming- arbarnið, velja t.d. myndir í albúmið frá því barnið var lítið. Myndirnar er hægt að ljósrita á ljósritunarstofum. Svo má útbúa í tölvunni forsíðu með nafni barns- ins, nafni prests og nafni kirkju. Ein blaðsíða getur verið fyrir ritningarstað, nokkrar fyrir nöfn gesta og aðrar fyrir gjafirnar. Sniðug t M YN D /V IL H EL M M YN D /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.