Fréttablaðið - 27.03.2003, Side 43

Fréttablaðið - 27.03.2003, Side 43
24 27. mars 2003 FIMMTUDAGURMeð súrmjólkinni FRAMKVÆMDASTJÓRI „Ég er Reyk- víkingur og er alinn upp í Vogun- um en missti af þessari þekktu kynslóð skálda og rithöfunda sem kennd er við Vogana þar sem ég er fæddur 1963, þeir voru allir fæddir fyrr,“ segir Guðmundur Hjaltason, nýráðinn forstjóri Kers hf. „Ég varð stúdent frá Menntaskólanum við Sund árið 1983 og fór svo í viðskiptafræð- ina í Háskólann og útskrifaðist 1988. Ég ákvað að gerast endur- skoðandi en eins og allir endur- skoðendur þekkja er vinnutíminn alltaf að drepa þá þannig að ég söðlaði um en fór eiginlega úr öskunni í eldinn þar sem álagið er meira, ef eitthvað er, í hinu.“ Guðmundur var einn eigenda Löggildra endurskoðenda hf. og starfaði meðal annars á þeirra vegum í Bandaríkjunum, Rúss- landi og Noregi en þegar hann ákvað að breyta til bauðst honum starf framkvæmdastjóra fjár- mála og stjórnunarsviðs hjá Sam- skipum. Hann segist þó ekki hafa fengið hefðbundið Sambandsupp- eldi. „Ég er ekki með próf frá Bifröst eins og margir af sam- starfsmönnum mínum og vinum. Samstarf, Starfsmannafélag Samskipa, á aftur á móti sumar- bústað í nágrenni við Bifröst og þar hef ég oft dvalið í góðu yfir- læti.“ Eiginkona Guðmundar er Bogey Sigfúsdóttir, viðskipta- stjóri hjá K.Karlssyni. Þau eiga tvö börn, Daníel sem er átta ára og Dagnýju sem er tveggja ára. Guðmundur er sonur Hjalta Jón- assonar, fyrrverandi skólastjóra í Selja- og Austurbæjarskóla, og Jóhönnu Þorkelsdóttur, sem var meðal annars kennari við Austur- bæjarskóla. Þegar talið berst að áhugamál- um nefnir Guðmundur fjölskyld- una og vinnuna. „Þetta eru auð- vitað ekki beinlínis áhugamál heldur lífið sjálft.“ Hann bætir því svo við að hann fari á skíði og lesi mikið. Hann er hins vegar ekki fastur í hinu hefðbundna forstjórasporti. „Ég hætti í golf- inu eftir að ég var næstum búinn að drepa mann. Ég veiði svolítið á sumrin en er þó langt því frá að vera heltekinn eins og svo marg- ir.“ ■ GUÐMUNDUR HJALTASON Það hefur verið mikill uppgangur hjá Sam- skipum undanfarin ár og Guðmundur segir það hafa verið ánægjulegt að taka þátt í eflingu fyrirtækisins. „Ég fer héðan með miklum söknuði og vona að ég fái áfram að sinna Samskipum eitthvað.“ Garðar var eitthvað þungur skömmueftir áramót eins og margir Íslend- ingar og fór því að finna lækninn sinn. Læknirinn skoðaði Garðar, fann hvað var að honum og lét hann fá lyfseðil fyrir gleðipillum í stílaformi og leiðbeiningar um notkun þeirra. Nokkrum dögum seinna hittust þeir aftur. Læknirinn spurði Garðar hvernig hann hefði það. Ég skal segja þér það,“ sagði Garðar önugur. „Þessar pillur sem þú lést mig fá virkuðu andskotann ekki nokkurn skap- aðan hlut. Ég hefði allt eins getað rekið þær upp í afturendann á mér!“ Pondus eftir Frode Øverli Stöðuveiting ■ Guðmundur Hjaltason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kers hf., sem á meðal annars Olíufélagið og stóran eignarhlut í Samskipum. Hann var þó ekki skólaður á Bifröst eins og margir samstarfsmenn og vinir. Fékk ekki hefðbundið SÍS uppeldi Sérðu hvað er að? Öhh... já, verður þetta dýrt? Nei, nei! Þú ert í góðum fíling með svona tvö hundruð þús! Jeminn eini... ég veit ekki hvort ég á svo mikið... Gefðu mér pin-númerið þitt, þá skal ég athuga það! Já, og svo skal ég skipta um bakljósaperurnar fyrir fjörutíu þús... fyrir þig! Bifvélavirkjar... álíka miklir mannvinir og meðal fjölda- morðingi! Sko... breiðskaftið er að fléttast af krangasveifinni og þétta rörlokið! Það er ekki nógu gott! Je-minn! TÍSKA Í SUÐUR-KÓREU Fyrirsætan skartar fötum hönnuðum af Son Jung-Wan sem sýnd voru á tískuviku í Seúl sem hófst í gær. Yfir 20 hönnuðir taka þátt í tískuvikunni. BílabúllaBjössa Nýjar vörur á hverjum degi! Opnum í dag 27.3 2003 - Opnunartími virka daga 14.00-18.00 - Laugardaga/Sunnudaga 11.00-18.00 - Stendur til 6.4 2003 NIKE Confetti Regatta adidasSPEEDO Triumph Verðdæmi: Adidas fótboltaskór barna okkar verð 1990 - fullt verð 3990 Osh Kosh gallasmekkbuxur okkar verð 1600 - fullt verð 4500 Kuldagallar barna okkar verð 2950 - fullt verð 6990-7990 Regatta barnaúlpur okkar verð 3500 - fullt verð 7990 isit Zo

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.