Fréttablaðið - 10.04.2003, Qupperneq 2
2 10. apríl 2003 FIMMTUDAGUR
„Já, ég reyni alltaf að vera
réttu megin.“
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra vék á
dögunum forstjóra Löggildingarstofu tímabundið
frá störfum.
Spurningdagsins
Valgerður, var brottvikningin lögleg?
Fyrirlesarar:
- Stefán Gíslason, verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 á Íslandi
- Arnheiður Hjörleifsdóttir, UMÍS ehf
Kosningamiðstöð VG, Bæjarlind 12, Kópavogi
Fimmtudagskvöld 10. apríl kl. 20:30
Fundarstjóri: Jóhanna B. Magnúsdóttir
9. fundur
Í SJÁLFBÆRU SAMFÉLAGI
www.xu.is
NÆST Á DAGSKRÁ:
STAÐARDAGSKRÁ 21,
almenningur og umhverfið
Reykjavíkurhöfn:
Konu bjarg-
að úr sjó
BJÖRGUN Ungri konu var bjargað
úr sjónum við varðskipabryggj-
una í Reykjavíkurhöfn um
kvöldmatarleytið í gær. Hún var
köld og þrekuð þegar lögregla
og slökkviliðsmenn náðu henni á
þurrt. Hún var flutt með sjúkra-
bíl á Landspítala – Háskóla-
sjúkrahús.
Lögreglumaður í flotgalla
stakk sér eftir henni, en
skömmu síðar kom slökkvilið á
vettvang og aðstoðaði við björg-
unina. Konan var nokkurn tíma í
sjónum, en mun ekki vera í lífs-
hættu. ■
ÍRAK Árás Bandaríkjamanna á hót-
el í Bagdad þar sem fréttamenn
hafast við hefur valdið mikilli
reiði meðal spænskra frétta-
manna. Spænskur myndatöku-
maður lést í árásinni. Fréttamenn
gripu því á það ráð að hunsa Jose
Maria Aznar forsætisráðherra og
Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands.
Þegar Aznar gekk inn í
spænska þingið þögðu fréttamenn
þunnu hljóði og ljósmyndarar
smelltu ekki af einni einustu
mynd. Straw fékk svipaða með-
ferð þegar hann ræddi við
spænska utanríkisráðherrann.
Flestir ljósmyndarar slepptu því
að mynda og fréttamenn gengu út
af blaðamannafundi eftir aðeins
eina spurningu. ■
STJÓRNMÁL Stríðið í Írak var aðal-
umræðuefnið á blaðamannafundi
sem haldinn var í tilefni af opin-
berri heimsókn Anders Fogh
Rasmussen, forsætisráðherra
Danmerkur. Rasmussen er stadd-
ur hér á landi til þess að afhenda
Íslendingum stjórnarskrána frá
árinu 1874. Að lokinni hátíðlegri
athöfn í Þjóðmenningarhúsinu
átti hann stuttan fund með Davíð
Oddsyni en því næst ræddu for-
sætisráðherrarnir við blaða-
menn.
Danski forsætisráðherrann
hefur verið einhver helsti stuðn-
ingsmaður George W. Bush
Bandaríkjaforseta í Íraksdeilunni
og hafa Danir sent herlið og her-
gögn til Persaflóa til aðstoðar inn-
rásarhernum. Rasmussen var því
að vonum ánægður með fram-
gang mála í Bagdad síðustu daga
en ítrekaði jafnframt mikilvægi
þess að hjálparstarf í Írak hæfist
sem fyrst. „Við sjáum nú fram á
enduruppbyggingu landsins og
þróun nýs og frjáls lýðræðisríkis.
Ég tel mikilvægt að Sameinuðu
þjóðirnar gegni þar lykilhlut-
verki. Hvað Danmörku varðar
munum við taka virkan þátt í upp-
byggingarstarfi sem og mannúð-
arstarfi að stríði loknu.“ Rasmus-
sen sagðist þó telja að fyrst yrðu
bandalagsþjóðirnar Bretland og
Bandaríkin að koma á lögum og
reglu og tryggja öryggi í landinu.
Rasmussen viðurkenndi að
grundvallarágreiningur hefði
ríkt um Íraksmálið í vestrænu
samfélagi. Sagðist hann þess þó
fullviss að vestræn samvinna
hefði ekki beðið varanlegan skaða
af Íraksdeilunni en ítrekaði nauð-
syn þess að laga þá bresti sem
komnir væru í samstarfið innan
Atlantshafsbandalagsins og Evr-
ópusambandsins. Enn fremur
sagði hann mikilvægt að gott
samband ríkti á milli Evrópu og
Bandaríkjanna. Í því sambandi
nefndi hann að lönd eins og Dan-
mörk og Ísland gætu lagt sitt af
mörkum til þess að brúa bilið á
milli heimsálfanna tveggja.
Danski forsætisráðherrann
notaði einnig tækifærið á fundin-
um og lýsti yfir ánægju sinni með
það að tekist hefði að ná sam-
komulagi um framtíð samnings-
ins um Evrópska efnahagssvæð-
ið, hvað Íslendinga varðaði. ■
Íslenskur
Bandaríkjamaður:
Vill losna við
vegabréfið
RÍKISBORGARARÉTTUR „Ég á að mæta
klukkan 11 og vonast til að þar
með ljúki þessu,“ segir Þór Saari,
sem hefur óskað eftir því að fá að
losna undan
bandar ískum
ríkisborgara-
rétti sínum í
mótmælaskyni
vegna stríðs-
rekstursins í
Írak og utanrík-
isstefnu Banda-
ríkjanna.
Þór hefur
þegar mætt
einu sinni í
b a n d a r í s k a
sendiráðið í
þessu skyni en þá var ekki hægt
að afskrá hann. Í dag mun Þór,
sem einnig er með íslenskan ríkis-
borgararétt, hitta bandaríska
konsúlinn og gera aðra tilraun til
þess að skila inn vegabréfi sínu. ■
Landsbankinn:
Kaupir OZ
VIÐSKIPTI Landsbankinn hefur
keypt hugbúnaðarfyrirtækið OZ
og stofnað dótturfyrirtæki um
reksturinn í Kanada.
Með kaupunum
eignast Landsbank-
inn öll hugverka-
réttindi og
„ákveðnar eignir“
OZ-samstæðunnar.
Ætlunin er að vinna
að frekari þróun og
sölu þeirra vara
sem OZ hefur fram-
leitt.
Að því er segir í frétt frá Lands-
bankanum mun öllu starfsfólki OZ
verða boðið starf hjá nýja fyrir-
tækinu. Samningar við viðskipta-
vini verða yfirteknir.
Landsbankinn segist telja að í
eignum OZ felist áhugaverð fjár-
festingartækifæri. ■
Settur landlæknir
á Suðurnesjum:
Biðst lausnar
HEILSUGÆSLA Lúðvík Ólafsson,
lækningaforstjóri Heilsugæslu
Reykjavíkur, hefur beðið um lausn
frá störfum sem
settur landlæknir
á Suðurnesjum.
Lúðvík var skipað-
ur landlæknir á
Suðurnesjum af
hei lbrigðisráð-
herra vegna
tengsla Sigurðar
Guðmundssonar
landlæknis við
Sigríði Snæbjörns-
dóttur, hjúkrunar-
forstjóra á Suður-
nesjum, en þau
eru hjón. Styr hef-
ur staðið um Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja. Lúðvík
lagði til í byrjun vikunnar að
Heilsugæsla Reykjavíkur tæki að
sér stjórn stofnunarinnar og var til-
lagan lögð á borð ráðherra til um-
fjöllunar. Ráðherra mun gefa frá
sér yfirlýsingu um málið í dag. ■
Landhelgisgæslan:
Bjargaði sel-
veiðiskipi
LANDHELGISGÆSLAN Varðskip Land-
helgisgæslunnar kom norska sel-
veiðiskipinu Polarsyssel til bjarg-
ar síðdegis í gær. Leki hafði komið
að skipinu, sem sat fast í ís tæpar
160 sjómílur vestnorðvestur af
Ísafjarðardjúpi. Annað norskt sel-
veiðiskip, Polarfangst, var
skammt undan þegar hjálpar-
beiðni barst stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar. Var haft samband við
skipstjórann, sem kom aukadælum
um borð í Polarsyssel. Áhöfn sel-
veiðiskipsins taldi sig ekki í hættu
og ákvað að vera áfram um borð.
Varðskipið kom skipinu síðan til
bjargar og var komið með það í tog
klukkan 16.30 í gærdag. Ekki var
ljóst hvert átti að draga skipið þeg-
ar Fréttablaðið hafði samband. ■
Utanríkisráðherra fagnar frelsun Bagdadborgar:
Samgleðjumst írösku þjóðinni
ÍRAK „Það er öllum ljóst að fólkið
fagnar því að þessi harðstjóri er
farinn frá,“ sagði Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra á
sama tíma og íbúar Bagdad fögn-
uðu nýfengnu frelsi sínu á götum
úti.
„Ég sagði í upphafi að sagan
myndi dæma um hvort verið væri
að gera rétt,“ segir Halldór um
stuðning íslenskra stjórnvalda við
innrás í Írak. „Ég sagði jafnframt
að við skyldum bíða eftir því að
þjóðin talaði. Þjóð sem hefur búið
við pyntingar og dráp á fólki upp
á hvern einasta dag. Þjóð sem hef-
ur lifað við ógn og hræðslu. Nú er
þjóðin að tala,“ sagði utanríkis-
ráðherra meðan myndir bárust
frá Bagdad af fólki að rífa niður
minnismerki um Saddam
Hussein.
„Saddam Hussein hefur ekki
hikað við að drepa fólk á hverjum
einasta degi. Það hljóta allir að
samgleðjast írösku þjóðinni með
þessi tímamót,“ sagði Halldór og
lýsti harmi vegna þeirra manns-
lífa sem hafa tapast í baráttunni.
„Við skulum samt ekki gleyma því
að fólk var að láta lífið á hverjum
einasta degi. Það hefði haldið
áfram.“ ■
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
„Ég trúi því að þjóð sem hefur þolað svo mikið í 35 ár vilji leggja mikið á sig til að sam-
einast um það að fólk geti notið sín, sagt sína skoðun og haldið uppi eðlilegum sam-
skiptum við aðrar þjóðir.“
FRÉTTAMENN HUNSA RÁÐHERRA
Flestir ljósmyndarar og myndatökuvél beindu vélum sínum niður fremur en að mynda
utanríkisráðherra Bretlands og Spánar.
HEILBRIGÐIS-
STOFNUN SUÐ-
URNESJA
Lúðvík Ólafsson
lagði til að Heilsu-
gæsla Reykjavíkur
tæki að sér stjórn
stofnunarinnar.
ÞÓR SAARI
Vill ekki vera Banda-
ríkjamaður.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Spænskir fréttamenn sýna hug sinn:
Ráðherrar hunsaðir
LANDS-
BANKINN
OZ talið áhuga-
verð fjárfesting.
Fagnar árangri inn-
rásarhersins í Írak
Anders Fogh Rasmussen lýsti yfir mikilli ánægju með framgang mála í
Írak á blaðamannafundi sem haldinn var í tilefni af opinberri heimsókn
danska forsætisráðherrans hingað til lands.
STJÓRNARSKRÁIN AFHENT
Anders Fogh Rasmussen og Davíð Oddsson lögðu báðir áherslu á það hversu gott sam-
band Íslands og Danmerkur væri og hversu mikilvægt væri að styrkja það enn frekar. „Ég
hef hlakkað til þessarar heimsóknar. Það hefur mikla þýðingu fyrir mig að vera kominn
hingað og vináttan við Íslendinga er mér afar mikilvæg“ sagði danski forsætisráðherrann.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M