Fréttablaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 8
FYRIR RÉTTI „Það var hræðilegt áfall
að komast að því að fölsuð verk
væru í umferð merkt móður minni,“
sagði Una Dóra Copley, dóttir Nínu
Tryggvadóttur, í samtali við Frétta-
blaðið.
Stóra málverkafölsunarmálið er
enn sem fyrr fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur. Allt bendir nú til þess
að réttarhöldin dragist fram yfir
páska og þeim þá fram haldið.
Rannsókn málsins
teygir anga sína
víða um heim, eink-
um til Danmerkur,
en einnig til Bret-
lands og Bandaríkj-
anna þaðan sem Una
Dóra kemur til að
bera vitni.
Una Dóra Copley hefur gert að
lífsstarfi sínu að vera eins konar
gæslumaður höfundarverks móður
sinnar og vinnur nú að skráningu
allra verka hennar. „Allar falsanir
eru í raun slæmar, en þessar falsan-
ir eru sérlega hörmulegar og ég
skelfist þá tilhugsun að einhvern
tíma í framtíðinni, þegar ég er fall-
in frá, blandist slíkar myndir inn í
það sem eftir hana liggur sem Nínu-
myndir. Mamma lifði fyrir listina
og var mjög vönd að virðingu sinni.
Hún henti mörgum myndum sem
voru betri en þessar sem ég sá inni
í réttarsalnum.“ Aðspurð segir Una
Dóra Copley að sá sem falsaði
myndirnar væri amatör, og það sem
verra væri, vinnubrögðin lýstu
eins konar fyrirlitningu á verkum
móður sinnar, líkt og sá hinn sami
teldi að hver og einn gæti málað
svona.
Fyrir rétti bar Una að hún hefði
ekki séð þrjár myndanna þegar
þær voru keyptar. Hún hefði frétt
að þær væru falar fyrir lítið verð
og vinur hennar hefði annast um
kaupin fyrir hennar hönd. Spurn-
ingar verjenda leiddu í ljós að þar
var á ferð Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur, sem löngum hefur
þótt helsti sérfræðingur Íslend-
inga í verkum Nínu, og má glám-
skyggni hans heita furðuleg í ljósi
hinna afdráttarlausu dóma Unu
Dóru. „Strax og ég leit þær augum
sá ég að þær voru falsaðar.“
Sá danski Troels Andersen er
óumdeilanlega einn helsti sérfræð-
ingur heims í Asger Jorn. Nokkuð
sposkur í bragði taldi hann afar
ólíklegt í meira lagi að verkin tvö
sem eignuð eru Jorn væru í raun
eftir hann. Fjöldi þeirra sem fylgj-
ast með réttarhöldunum eykst
stöðugt og hlátrasköll fóru um sal-
inn þegar Jorn sagðist hafa haft til
umfjöllunar um 300 Jorn-falsanir
og þessi væri með þeim lélegri
sem hann hefði séð – ákaflega við-
vaningsleg vinnubrögð. Verjandi
Péturs spurði Andersen hvernig
hann gæti séð að verkin væru mál-
uð á tiltekna pappírsgerð án þess
að kanna það. Daninn sagðist ekki
hafa nennt því, málið lægi í augum
uppi, en pappírinn væri auðkenni-
legur. „Fyrir fagmann á þessu
sviði er þetta líkt og að þekkja kló-
settpappír frá venjulegum papp-
ír.“ Í annarri myndinni taldi hann
líklegt að um gamlan pappír væri
að ræða. Það stangast á við rann-
sóknir ákæruvaldsins, sem leiða
líkum að því að þar sé um sam-
bærilegan pappír að ræða og var
haldlagður á heimili Péturs Þórs.
Viktor Smári Sæmundsson for-
vörður tók hvert tilvik um sig,
varpaði þeim upp á vegg með
Power Point og afgreiddi myndirn-
ar hverja á fætur annarri: Mynd-
irnar hefðu margar verið skrapað-
ar á hefðbundnum höfundarmerk-
ingarstöðum og þeim svo snúið í
180 gráður. Viktor fann meira að
segja eina mynd áritaða Viggo
Tuksen 194? - sem er danskur list-
málari sem gerði myndir af sjáv-
arþorpum og landslagi. Hann
greindi nýlega málningu á yfir-
borði mynda en undir eldri olíu-
málningu mátti sjá, með röntgen-
myndum, eldri uppstillingamynd-
ir. Yngri höfundarmerking færi í
lægðir og lautir í sprungur eldri
málningar. Í nýrri málningu grein-
di hann alkyd sem hann sagði að
hefði ekki verið komið á markað
fyrr en um 1962, en verkin eru
sögð talsvert eldri. „Það er því nið-
urstaða mín að verkið sé ekki unn-
ið af hendi þess sem það er eignað
þar sem hann hafði ekki tök á að
nota þau efni sem fundust í efra
laginu,“ var setning sem Viktor
sagði oft fyrir rétti í gær.
Fram kom að verjendur hyggj-
ast spyrja hann út í hvert tilvik um
sig í dag.
jakob@frettabladid.is
8 10. apríl 2003 FIMMTUDAGUR
Átvaglskúrinn
Kúrinn virkar vegna þess að fáir
geta torgað það miklu af kjöti,
fiski, eggjum, smjöri, rjóma og
sósum að hitaeiningarnar verði
óhóflegar.
Laufey Steingrímsdóttir, forstöðumaður Mann-
eldisráðs, og Sigurður Guðmundsson landlæknir
um Atkinskúrinn. Morgunblaðið, 9. apríl.
Ekki blanda af Smára Geirs
og Valgerði
Einar var manískur og innblás-
inn athafnamaður, eins konar
sambland af Magga Scheving og
Kára Stefáns.
Andri Snær Magnason skáld um Einar Bene-
diktsson skáld. DV, 9. apríl.
Seinheppinn
Pencillín kom á markað eftir að
hann dó.
Andri Snær Magnason skáld um Einar Bene-
diktsson skáld. DV, 9. apríl.
Orðrétt
Aðalfundur
Frjálsa lífeyrissjóðsins
(áður Lífeyrissjóðurinn Eining)
Minnum á aðalfund lífeyrissjóðsins á Hótel Nordica
(áður Hótel Esja)
Suðurlandsbraut 2, á morgun föstudag, kl. 17,15.
Til athugunar fyrir sjóðsfélaga m.a.:
Ávöxtunarleið 1 hjá Einingu hefur tapað samtals 24,5% (rauntap) sl. 3 ár
eða nánast einum fjórða lífeyrissparnaðar sjóðsfélaga.
Í útsendum bæklingi er ávöxtunarleið 1 á árinu 2002 ýmist sögð með
5,3% nafntap (bls. 3) eða 7,78% nafnbreytingartap (bls. 5).
Ávöxtunarleið 3 er nú sögð vera 100% verðtryggður innlánsreikningur
(nafnávöxtun 8,68%), en á sl. ári var hún sögð 100% verðtryggð skulda-
bréf (nafnávöxtun 16,2%).
40 milljónum króna var eytt í útsendingu 20.000 teppa til sjóðsfélaga.
Skilum stjórn sjóðsins teppunum á fundinum!
Nokkrir sjóðsfélagar
Efnahagshorfur:
Lítill vöxtur
í Evrópu
WASHINGTON, AP Ekki er ástæða til
mikillar bjartsýni í efnahagslífi
Evrópu það sem eftir lifir árs, að
mati Alþjóða gjaldeyrissjóðsins.
Stöðnun í Þýskalandi veldur sér-
fræðingum sjóðsins sérstökum
áhyggjum. Þá hefur bjartsýni á
horfur fransks efnahagslífs
minnkað.
Útlit er fyrir hægan bata í
efnahagslífi Evrópu að því er
kemur fram í spá sjóðsins. Gert
er ráð fyrir 1,1 prósents hag-
vexti á árinu. Meðal þess sem
veldur óvissu í spá sjóðsins eru
stríðsátök í Írak sem geta haft
slæm áhrif á olíuverð og eftir-
spurn. ■
Samkomulag um bætur vegna brota gegn umhverfislöggjöf:
Alcoa semur um sektargreiðslur
UMHVERFISVERND Tvö bandarísk
fyrirtæki hafa samið við Um-
hverfisstofnun Bandaríkjanna um
greiðslu sekta og heitið því að ráð-
ast í miklar endurbætur á verk-
smiðjum sínum sem uppfylla ekki
kröfur um umhverfisvernd. Ann-
að þeirra er Alcoa. Samkomulagið
kostar fyrirtækin 55 milljarða.
Bróðurparturinn fellur ekki á
Alcoa heldur Archer Daniels Mid-
land, að sögn bandaríska dag-
blaðsins New York Times.
Alcoa greiðir sektir og framlög
í umhverfissjóði að andvirði 315
milljónir króna. Fyrirtækið hefur
einnig samþykkt að bæta hreins-
unarbúnað í veri sínu í Rockdale,
sem hefur ekki uppfyllt kröfur
sem gerðar eru til slíkra vera.
Draga á úr útblæstri brenni-
steinsdíoxíðs um 95% og nit-
uroxíðs um 90%. Áður hafði fyrir-
tækið boðað að það myndi draga
úr brennisteinsdíoxíði um 90% og
nituroxíði um helming.
Archer Daniels Midlands
greiðir rúmar 800 milljónir króna
í sektir og framlög í umhverfis-
sjóði. Endurbætur sem fyrirtækið
ræðst í kosta tugi milljarða króna.
Hvorki náðist í Siv Friðleifs-
dóttur umhverfisráðherra né Val-
gerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra. Aðstoðarmað-
ur Valgerðar bar þau skilaboð frá
henni að tíðindin hefðu ekki skír-
skotun til fyrirhugaðrar fram-
leiðslu Alcoa hér, þar sem hún
tengist ekki álframleiðslunni
sjálfri heldur framleiðslu raforku
með kolum. Bygging nýs álvers
hér og lokun kolaknúinna álvera
erlendis drægi úr losun skaðlegra
efna á heimsvísu. ■
SAMNINGAR UNDIRRITAÐIR
Mikið var um dýrðir fyrir austan
þegar samningar um framkvæmdir voru
undirritaðir.
Falsanir sagðar
viðvaningslegar
Stóra málverkafölsunarmálið er enn fyrir rétti og helstu sérfræðingar heims í Nínu Tryggva-
dóttur og Asger Jorn lágu ekki á skoðunum sínum í gær og töldu augljóst að verkin væru fölsuð
– illa fölsuð. Viktor S. Sæmundsson forvörður taldi heldur engan vafa leika á um fölsun.
■
„Andersen hef-
ur haft til um-
fjöllunar um
300 Jorn-fals-
anir og þessi er
með þeim lé-
legri sem hann
hefur séð.“
UNA DÓRA COPLEY
Hún fór yfir myndirnar í réttarsal sem merktar eru móður hennar Nínu Tryggvadóttur og
útskýrði hvernig þær gætu engan veginn verið eftir hana.
TROELS ANDERSEN
Helsti Asger Jorn-sérfræðingur heims var fljótur að afgreiða myndirnar tvær sem sagðar
eru eftir þennan Kjarval Dana - ekki bara sem falsanir, heldur mjög slæmar falsanir.
HREINT ENGINN JORN
Samkvæmt Andersen er hér um ákaflega
viðvaningslega fölsun að ræða. Þetta verk
keypti Sigurður Georgsson lögmaður á
uppboði Gallerí Borgar árið 1994.
ÞYNGDARLÖGMÁLIÐ VÍÐS FJARRI
Una Dóra sagði útilokað að móðir hennar
hefði látið hjólbörurnar á myndinni vera í
lausu lofti líkt og hér sést. Hún henti miklu
betri verkum en þessu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Lögreglumaður ákærður:
Seldi upplýs-
ingar um
stjörnurnar
LOS ANGELES, AP Lögreglumaður í
Los Angeles hefur verið ákærð-
ur fyrir að misnota aðstöðu sína
til þess að komast yfir trúnaðar-
upplýsingar um þekkta einstak-
linga og selja þær slúðurblöð-
um. Kelly Chrisman hefur við-
urkennt að hafa flett upp upp-
lýsingunum en heldur því fram
að hann hafi verið að hlýða til-
skipunum yfirmanna sinna.
Rannsókn lögreglu hefur
sýnt fram á að á árunum 1994 til
2000 opnaði Chrisman tölvu-
skrár sem innihéldu trúnaðar-
upplýsingar um stjörnur á borð
við Sharon Stone, Sean Penn,
Meg Ryan, O.J. Simpson og
Cindy Crawford. Í skránum
mátti finna upplýsingar um fæð-
ingardag, ökutækjaeign, líkams-
einkenni og síðast en ekki síst
afbrotaferil. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M