Fréttablaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 4
4 10. apríl 2003 FIMMTUDAGUR Eiga stjórnmálaflokkarnir að hætta að auglýsa í sjónvarpi? Spurning dagsins í dag: Hvaða flokkur býður bestu skattalækkunina? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 45,1% 54,9% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Við gerum betur Njóttu þess að ferða st um landi ð á góð um bí l Avis dagsleiga, helgarleiga, vikuleiga. Eyddu minna í bílinn en meira í sjálfan þig og þína. Kynntu þér tilboð Avis á bílaleigubílum. Hringdu í Avis sími 5914000 Knarrarvogur 2 – 104 Reykjavík – www.avis.is * Opel Corsa, innifalið 50 km, vsk. og trygging Aðeins2.850á dag * Kárahnjúkavirkjun: Ítalskt þorp á hálendinu VIRKJANIR Fyrirhugað er að byggja vinnubúðir á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka sem samsvarar meðalþorpi. Öll aðstaða verður fyrir hendi sem fullnægja á þörf- um starfsmanna og fjölskyldum þeirra. Þetta kom fram á kynning- arfundi sem ítalska verktakafyr- irtækið Impregilo hélt með blaða- mönnum í gær. Áætlað er að 1.000 manns starfi við virkjunina. Af þeim verða um tvö hundruð ís- lenskir starfsmenn. Verða þeir ráðnir sem verkfræðingar, skrif- stofumenn og starfsmenn í mötu- neytum. Hundrað og fimmtíu manns verða á vegum Impregilo. Um er að ræða stjórnendur og lykilstarfsmenn. Þá verða í kring- um 650 verkamenn fengnir til starfa. Stór hluti þeirra kemur er- lendis frá. Íslenskir aðalverktakar hafa þegar lokið við 720 metra löng að- komugöng og Arnarfell er að ljúka sneiðingi niður í Hafra- hvammsgljúfur innan Kára- hnjúkastíflu. Fyrirhugaðar fram- kvæmdir á vegum Impregilo eru í þann mund að hefjast en um er að ræða smíði Kárahnjúkastíflu og aðrennsligöng. Þegar hafa í kring- um tuttugu manns hafið störf á vegum fyrirtækisins, bæði í Reykjavík og á Egilsstöðum. Þá er gert ráð fyrir að stór hópur fólks geti hafið störf í byrjun júní. Er búist við að framkvæmdir verði komnar í fullan gang næsta vetur. Á kynningarfundinum var far- ið yfir þá tækni sem notuð verður við borun á aðrennslisgöngunum. Göngin verða rúmlega sjö og hálfs metra sver. Við smíði þeirra verða notaðir þrír borar sem flutt- ir verða til landsins en tveir þeir- ra eru sérstaklega smíðaðir fyrir þetta verkefni. Um er að ræða heilborun og er ráðgert að hægt verði að bora í kringum 23 metra á dag. ■ Fárveikum fanga refsað fyrir hótun Fangi á Litla-Hrauni veiktist hastarlega en fékk ekki viðunandi læknis- meðferð. Fangavörður bannaði honum að klaga í foreldra sína. Segir að fanginn hafi hótað sér lífláti. Dómsmálaráðuneytið fjallaði um málið. FANGELSISMÁL Faðir 24 ára fanga sendi dómsmálaráðuneytinu mót- mæli 2. apríl vegna slæmrar með- ferðar sem hann telur að sonur hans hafi sætt frá hendi fangelsis- yfirvalda eftir að hann veiktist hastarlega án þess að fá viðunandi læknisúrræði. Fanginn veiki var úrskurðaður í einangrun frá ætt- ingjum sínum og í símabann. Í bréfi föðurins er því lýst að sonur hans hafi í tvo sól- arhringa þjáðst mjög af innvortis verkjum án þess að til viðunandi að- gerða væri gripið. Í þvagi hans hafi verið blóð og einnig með hægð- um. Móðir fangans segist hafa verið í stöðugu sambandi við son sinn og starfsmenn fangelsisins og reynt að hafa áhrif á það að hann fengi læknismeðferð. Fram- burður fangavarða er í þá veru að fanginn hafi í þrígang verið færð- ur undir læknishendur án þess að neitt fyndist að honum. Þá lýsir faðirinn því að fangavörður hafi ýjað að því að fanginn væri að gera sér upp veikindi, tveimur sólarhringum eftir að hann veikt- ist, og sagt hinum þjáða fanga að hann ætti að láta það ógert að vera að klaga í foreldra sína en fara að sofa. Fanginn reiddist þessu og bar fram óbeina hótun við Guðmund Magnússon, aðstoð- arvarðstjóra fangelsisins. Að sögn foreldra hans lét hann, sár- kvalinn, ógætileg orð falla um að fangavörðurinn skyldi gæta sín þegar hann slyppi úr fangelsinu. Fangavörðurinn hélt því aftur á móti fram að fanginn hefði sagt beinlínis að hann ætlaði að láta drepa hann. Tveimur sólarhringum eftir að fanginn veiktist var loks úrskurð- að að hann væri með stíflaðan ris- til, blæðandi sár við endaþarm og bólgur í blöðruhálskirtli, sem hefði valdið honum miklum þján- ingum. Fangelsisyfirvöld úrskurðuðu að fanginn myndi sæta viðurlög- um vegna framkomu sinnar og fengi ekki heimsóknir nema einu sinni í viku næstu tvo mánuðina, frá byrjun apríl að telja. Hann má aðeins ræða við gesti sína í gegn- um öryggisgler en venjulega mega fangar fá heimsóknir fimm daga vikunnar í þrjá og hálfan tíma í senn þar sem þeir mega hitta gesti sína í sérherbergi. Þá voru dagpeningar og vinnulaun hans skert um helming á tímabil- inu frá 2. apríl til 24. apríl. Þá er hann á sama tíma í símabanni samkvæmt úrskurði fangelsisins. Faðir fangans fór fram á að úr- skurði yfirvalda fangelsisins yrði hnekkt. Ráðuneytið hefur nú svar- að því erindi þar sem einangrun hans frá gestum er stytt niður í þrjár vikur en úrskurðurinn er að öðru leyti óhaggaður. Björn Friðfinnsson, ráðuneyt- isstjóri í dómsmálaráðuneytinu, sagði í samtali við Fréttablaðið að úrskurður ráðuneytisins væri unninn samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir. „Úrskurðurinn er byggður á meðalhófsreglu í agaviðurlögum,“ segir Björn. Björn taldi að ekki yrðu frekari eftirmálar vegna meintrar lífláts- hótunar fangans þar sem ummæl- in hefðu fallið innan veggja fang- elsisins. Fanginn er nú að afplána refsinguna sem ákvörðuð var. rt@frettabladid.is Móar fá heimild til nauðasamninga: Vilja losna við 450 milljónir VIÐSKIPTI Kjúklingafyrirtækið Móar hefur fengið heimild Hér- aðsdóms Reykjavíkur til að gera nauðasamninga við lánardrottna sína. Gera áætlanir ráð fyrir að 70% af um 650 milljóna króna kröfum sem heyri undir nauða- samning verði felld niður. Móar muni þannig greiða tæpar 200 milljónir. Kristinn Gylfi Jónsson, stjórn- arformaður Móa, segir Móa þegar hafa aflað meðmæla aðila sem eigi 43% krafna á félagið. Í raun hafi aðeins þurft 25% til að fá heimild til nauðasamninga. „Við teljum vera góðar undirtektir hjá lánardrottnum. Menn hafa trú á þessu endurskipulagningartali okkar,“ segir hann. Að sögn Kristins Gylfa hafa Móar verið endurskipulagðir fjár- hagslega á síðustu mánuðum. Auka á hlutafé um 250 milljónir króna. Menn hafa þegar skráð sig fyrir því og taka þau hlutafjárlof- orð gildi gangi nauðasamningarnir eftir og ef samningar nást um veð- skuldir sem heyra ekki undir nauðasamning. Kristinn Gylfi segir von á bjart- ari tímum á kjúklingamarkaði. „Ís- fugl á Dalvík er gjaldþrota og óvíst að framleiðsla hefjist þar aftur,“ nefnir hann sem dæmi um að jafn- vægi sé að nást á markaðnum. ■ Nýtt afl stillir upp lista í Reykjavík norður: Guðmundur G. leiðir STJÓRNMÁL Framboðshreyfingin Nýtt afl hefur stillt upp fyrsta lista sínum fyrir alþingiskosning- arnar, í Reykja- víkurkjördæmi norður. Guð- mundur G. Þór- arinsson verk- fræðingur leið- ir listann og í öðru sæti er H ö s k u l d u r Höskuldsson framkvæmda- stjóri. Nýtt afl stefnir að því að tilkynna lista sinn í Reykjavík suður í dag, en hreyf- ingin mun stilla upp listum í öllum kjördæmum. FIMM EFSTU ERU ÞESSIR: 1. Guðmundur G. Þórarinsson 2. Höskuldur Höskuldsson 3. Mjöll Helgadóttir 4. Inga Lúthersdóttir 5. Guðrún Þóra Hjaltadóttir Grunaður um mansal: Gæsluvarð- hald staðfest LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur hefur staðfest að bandarískur karlmað- ur skuli sitja í gæsluvarðhaldi til 1. maí. Hann er grunaður um að hafa reynt að koma fjórum Kín- verjum ólöglega til landsins 25. mars sl. gegn peningagreiðslu. Þá kemur fram í dómi Hæstaréttar að maðurinn hafði dvalið hér á landi 14. mars. Með honum í för var maður með bandarískt vega- bréf. Við komu mannsins til Bandaríkjanna kom í ljós að skír- teinið var falsað. Í kjölfarið bað hann um pólitískt hæli. Unnið er að rannsókn málsins í samvinnu við þarlend yfirvöld auk yfirvalda í Þýskalandi. Hæstiréttur fellst á niðurstöðu héraðsdóms að ekki sé hægt að treysta á vægara úrræði en gæslu- varðhald vegna hættu á að maður- inn reyni að komast úr landi. ■ Framkvæmdastjóri LÍÚ lýsir ánægju með EES-viðræður: Mikilvægasta atriðið náðist ÚTFLUTNINGUR Friðrik J. Arngríms- son, framkvæmdastjóri LÍÚ, seg- ir mikilvægasta samningsatriði Íslendinga um sjávarútveginn hafa náð fram að ganga í viðræð- unum um stækkun Evrópska efnahagssvæðisins. „Frosin síld- arsamflök eru langmikilvægasta afurðin okkar inn í þessi lönd. Það fékkst í gegn að þau yrðu áfram tollfrjáls.“ Niðurstaða samninganna er sú að síldarsamflökin verða toll- frjáls inn á allt Evrópusambands- svæðið. Áður báru þau 15% toll í Evrópusambandinu en voru toll- frjáls hjá þeim ríkjum sem ganga í sambandið á næsta ári. Kvótar fást fyrir annan útflutning sjávar- afurða byggðan á útflutningi til þessa. „Það er ástæða til að fagna Halldóri Ásgrímssyni sérstaklega fyrir þá miklu vinnu sem hann og hans fólk lögðu í þetta,“ segir Friðrik. „Þetta var gríðarlega mikið atriði fyrir íslenskan sjáv- arútveg.“ „Auðvitað viljum við algjört tollfrelsi inn í Evrópusambandið og teljum það eðlilegt,“ segir Friðrik en leggur áherslu á að það dragi ekki úr þeirri miklu vinnu sem fór í að ná þessari nið- urstöðu. ■ GÖNGIN VERÐA HEILBORUÐ Borarnir sem notaðir verða við aðrennslis- göngin eru ekkert smásmíði. Tveir af þeim þremur sem notaður verða við Kárahnjúka eru sérstaklega smíðaðir vegna þeirra framkvæmda. ■ Tveimur sólar- hringum eftir að fanginn veiktist var loks úrskurðað að hann væri með stíflaðan ristil, blæðandi sár við endaþarm og bólgur í blöðruhálskirtli. LITLA-HRAUN Foreldrar fanga kröfðust þess að hann fengi læknismeðferð. FRIÐRIK J. ARNGRÍMSSON Mikil vinna skilaði því að mikilvægasta at- riðið fyrir útgerðina náði fram að ganga. GUÐMUNDUR G. ÞÓRARINSSON Leiðir lista Nýs afls í Reykjavík norður. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Áfrýjunarnefnd: Ólöglegt útboð SAMKEPPNI Áfrýjunarnefnd sam- keppnismála hefur staðfest úrskurð Samkeppnisráðs um að Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) hafi brotið samkeppnislög. Það gerði FLE með tilhögun útboðs á verslunarrými í Leifsstöð. Samkeppnisyfirvöld segja að skipta verði starfsemi FLE í tvennt, aðskilja rekstur mannvirkis og eig- in verslunarrekstur. Öðruvísi verði samkeppnislög ekki uppfyllt. Útboðinu hefur verið frestað. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.