Fréttablaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 10.04.2003, Blaðsíða 16
Frjálslyndi flokkurinn hefurmargt að bjóða, ekki síst fyrir ís- lenska sjómenn og aðra sem starfa við sjávarútveg og siglingar. Bar- átta flokksins fyrir réttlátari fisk- veiðistjórnun er vel þekkt. Það þarf að taka víðar á en þar. Með fjársvelti hefur núverandi ríkisstjórn, með dómsmálaráðherra í fararbroddi, stórlega skert öryggi sjófarenda. Landhelgisgæslan er varla skugginn af sjálfri sér. Ís- lenska lögsagan er stór og gjöful og þess vegna er óásættanlegt annað en að hennar skuli gætt með meiri reisn en nú er. Það er eitt en hitt er samt verra að með þessu háttalagi hefur öryggi sjófarenda verið skert svo mikið að það verður að gera breytingar sem allra fyrst. Hér eru gerð út tvö varðskip og það er til þess að mest er annað á sjó í einu og oft gerist það að bæði eru í landi. Á sama tíma er lögsagan eftirlitslaus. Ef við höfum ekki efni á þessu sjálf getur þá svo farið að við verð- um að leita til vinar okkar í vestr- inu, George Bush, um aðstoð, þar sem við hljótum að eiga inni hjá honum greiða. Þrátt fyrir auraleysi og hnignun Landhelgisgæslunnar er ekki svo að við getum ekki ýmis- legt annað. Við höfum efni á sendi- ráðum og ferðalögum ráðamanna um heiminn þveran og endilangan. Við höfum hins vegar ekki efni á að eyða biðlistum veikra eða hækka at- vinnuleysisbætur og það vita allir að svona get ég haldið áfram svo lengi sem pláss og úthald leyfir. Á síðustu dögum Alþingis fyrir sumarfrí samþykktu stjórnarþing- menn lög um að opna dyrnar fyrir erlendum sjómönnum á íslensk fiskiskip. Það er erfitt að ímynda sér hvar greiðasemi þingmanna við LÍÚ muni enda. Ekki er nóg með að þeim hafi verið afhent fiskimiðin til frjálsrar meðferðar heldur hafa þeir nú að auki fengið Alþingi til að breyta lögum svo þeir geti greitt erlendum sjómönnum lúsarlaun. Pöntunarfélag Við sem höfum staðið í því að verja réttindi sjómanna vitum hvert þetta mun leiða okkur. Það þekkjum við hvað varðar störf sjómanna á kaupskipum. Þar er endalaus bar- átta og hundruð starfa hafa tapast. Alþingi verður að hætta að vera afgreiðslustofnun fyrir örfáa. Ný- verið gerði Alþjóðavinnumálastofn- unin athugasemdir við inngrip stjórnvalda í löglega kjarabaráttu sjómanna. Eflist Frjálsyndi flokkurinn mun hann aldrei sætta sig við að verða hluti af afgreiðslupöntunarkerfi LÍÚ eða annarra ámóta hagsmuna- gæsluafla. Hreinsum til og gefum nýjum öflum tækifæri til að sanna sig. ■ 16 10. apríl 2003 FIMMTUDAGUR Sagan segir að auðjöfur nokkurhafi verið allsráðandi í stálframleiðslu á fyrri hluta síð- ustu aldar. Auðjöfurinn átti nikk- el- og járnnámur í Suður-Ameríku en þessi eru hrá- efnin er þarf til framleiðslu á stáli. Sami mað- urinn átti all- flest flutnings- fyrirtæki Amer- íkuálfu, bæði skipa- og járn- b r a u t a f é l ö g . Hann átti glæsi- legustu stál- bræðslur ver- aldar, sem voru dreifðar um ólík fylki Bandaríkjanna. Þegar ungir og efnilegir athafnamenn vildu inn í þessa öflugu iðngrein þá mættu þeir ávallt hindrunum. Þeir settu upp öflugar stálbræðsl- ur en þegar kaupa átti hráefnið eða semja um flutningana komust þeir að ógnvænlegri staðreynd, alltaf þurfti að banka upp á hjá sjálfum samkeppnisaðilanum. Auðurinn hafði safnast á hendur örfárra manna, stéttaskiptingin óx og ljóst var að bæði hagfræði- leg og félagsfræðileg martröð var í sjónmáli fyrir bandarískt þjóðfé- lag. Harkaleg kreppa millistríðs- áranna var afleiðing óstjórnarinn- ar. Fyrir guðs mildi greindu emb- ættismenn Bandaríkjanna meinið er olli þessum ósköpum. Þeir settu á lög er útiloka hringamynd- un í viðskiptum. Síðast reyndi á þessi lög í stóru máli bandaríska ríkisins við Microsoft-fyrirtækið fyrir nokkrum árum síðan. Hringamyndum veruleiki í viðskiptalífinu Hér á Íslandi hefur þróunin ver- ið á þann veg að aflaheimildir stór- útgerðanna hafa aukist stórlega. Ráðamenn viðra hugmyndir um að hækka þakið upp í 20% en þessi regla segir hversu mikla hlutdeild eitt fyrirtæki getur átt í heildar- aflaheimildum landsmanna. Í dag eru þess dæmi meðal 10 stærstu fyrirtækja landsins að hlutdeildin sé frá 6-12% fyrir ákveðin fyrir- tæki. Sum útgerðarfyrirtækjanna eru einnig ráðandi öfl í framleiðslu, flutningum, tryggingum, bönkum, olíufyrirtækjum og svo má lengi telja. Þróunin er hættuleg því hringamyndun er hér orðin að veruleika í íslensku viðskiptalífi. Hér er ekki á nokkurn mann hallað heldur er greinileg þörf á breyting- um er stuðla munu að jafnari dreif- ingu auðlindanna ásamt skýrum lagasetningum í anda þeirra sem komust á í Bandaríkjunum fyrir tæpum 100 árum. Drifkraftur ungs fólk verði virkjaður Það er kominn tími til að tillögur OECD verði skoðaðar gaumgæfi- lega. Tillögurnar tilgreina meðal annars að smærri og meðalstór fyr- irtæki eru félagsfræðileg og hag- fræðileg hollusta fyrir nútíma sam- félög. Það er ákaflega mikilvægt að virkja drifkraftinn og metnaðinn í unga fólkinu með því að jafna tæki- færin í íslensku viðskiptalífi. Að þessum málum hefur Frjálslyndi flokkurinn unnið af metnaði, hug- sjón og með markvissum hætti. Ný ályktun var samþykkt á síðasta landsflokksþingi Frjálslynda flokksins. Hún kveður á um mikil- vægi þess að sett verði á lög er úti- loka hringamyndun í íslensku við- skiptalífi. Frjálslyndi flokkurinn er áhugavert val fyrir alla Íslendinga, til borgar og sveita, á þessu herr- ans ári 2003. ■ HORFT TIL FRAMTÍÐAR „Það er ákaflega mikilvægt að virkja drif- kraftinn og metnaðinn í unga fólkinu með því að jafna tækifærin í íslensku viðskipta- lífi,“ segir Gunnar Örlygsson. Virkjum unga fólkið Kosningar maí 2003 GUNNAR ÖRLYGSSON ■ frambjóðandi í 1. sæti lista Frjálslynda flokksins í Suðvestur- kjördæmi skrifar um þróun íslensks við- skiptalífs. „Það er kominn tími til að tillögur OECD verði skoðaðar gaumgæfi- lega. Val fyrir sjómenn Kosningarmaí 2003 BIRGIR HÓLM BJÖRGVINS- SON ■ frambjóðandi í 3. sæti á lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík suður skrifar um sjávarútvegsmál.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.