Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.04.2003, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 10.04.2003, Qupperneq 18
18 10. apríl 2003 FIMMTUDAGUR KAPPAKSTUR Stjórnendur Formúlu 1 kappakstursins ætlar að endur- skoða ákvörðun sína um að dæma Kimi Räikkönen, liðsmanni Mc- Laren, sigur í kappakstrinum í Sao Paulo um síðustu helgi. Räikkönen var þá dæmdur sig- ur þrátt fyrir að Giancarlo Fisichella, liðsmaður Jordan, hafi tekið fram úr honum skömmu áður en keppnin var stöðvuð. Í yfirlýsingu frá stjórnendum Formúlunnar segir að Fisichella hafi verið í forystu einum hring lengur en áður var talið og því verði hann hugsanlega úrskurðað- ur sigurvegari keppninnar í stað Räikkönen. Málið verður tekið fyrir á morgun. ■ Kappaksturinn í Sao Paulo: Fisichella dæmdur sigur? AP /M YN D RÄIKKÖNEN OG FISICHELLA Finninn Kimi Räikkönen (til hægri) og Ítalinn Giancarlo Fisichella fagna fyrsta og öðru sætinu eftir kappaksturinn í Brasilíu um síðustu helgi. Svo gæti farið að Fisichella verði dæmdur sigur í kappakstrinum. SKÍÐI Skíðamót Íslands hefst í Hlíðarfjalli við Akureyri í dag og stendur fram á sunnudag. Allt besta skíðafólk landsins, bæði í alpagreinum og norrænum greinum, hefur boðað komu sína og verður þetta ef að líkum lætur eina tækifærið á þessum vetri til að sjá allt okkar besta fólk leiða saman hesta sína á einu og sama móti. Samhliða Skíðamóti Íslands verða haldin tvö alþjóðleg mót (FIS-mót) í stórsvigi og eitt FIS- mót í svigi. Mótið hefst kl. 16:00 með keppni í sprettgöngu en í fyrra- málið hefst keppni í alpagreinum með stórsvigi karla og svigi. Bæði mótin gefa jafnframt stig sem al- þjóðleg FIS-mót. Á undanförnum árum hefur nokkur hópur erlendra keppenda komið á FIS-mótin en svo er ekki nú. Ástæðan er sú að lengi vel var óljóst hvort tækist að halda FIS- mót og m.a. þurfti að aflýsa mót- um sem átti að halda í Bláfjöllum um miðja þessa viku. Á laugardag verður keppt í stórsvigi kvenna og svigi karla, sem jafnframt eru FIS-mót, og göngu með hefðbundinni aðferð. Keppni lýkur síðan á sunnudaginn þegar fram fara FIS-mót í stór- svigi hjá bæði körlum og konum og boðganga hjá báðum kynjum. ■ Skíðamót Íslands hefst í dag: Besta skíðafólk landsins keppir DAGNÝ LINDA Dagný Linda Kristjánsdóttir, margfaldur Ís- landsmeistari í stórsvigi, svigi og alpatví- keppni, verður á meðal keppenda á Skíða- móti Íslands. Hún hefur staðið sig afar vel á keppnistímabilinu og vann m.a. tvö risa- svigmót í Noregi á dögunum. Stjórn Tottenham hefur gefiðGlenn Hoddle, knattspyrnu- stjóra liðsins, svigrúm til að kaupa nýja leikmenn í sumar. Hoddle keypti enga leikmenn þegar glugginn fyrir félagaskipti var opnaður í janúar og lýsti þá yfir óánægju sinni. Frakkinn Steed Malbranque,miðvallarleikmaður Fulham, segir hugsanlegt að hann yfir- gefi félagið eftir að þessu keppnistímabili lýkur. Vitað er af áhuga Gerard Houllier, knatt- spyrnustjóra Liverpool, á kapp- anum. ■ Fótbolti FÓTBOLTI Celtic og Boavista hófu bæði keppni í Meistaradeildinni í haust en féllu úr leik í 3. umferð undankeppninnar. Celtic tapaði fyrir Basel en Boavista fyrir franska félaginu Auxerre. Í UEFA-bikarnum burstaði Celtic litháíska félagið Suduva Marijampole 10-1 samanlagt í 1. umferð en leikirnir gegn Black- burn Rovers, Celta Vigo, Stuttgart og Liverpool voru öllu jafnari. Boavista vann nauma sigra á Maccabi Tel-Aviv og Anorþosis frá Kýpur og skoraði fleiri mörk á útivelli í jöfnu uppgjöri við Paris Saint-Germain og Hertha Berlin. Í átta liða úrslitum vann Boavista spænska félagið Malaga í víta- keppni. Porto vann Polonia frá Varsjá, Austria Wien, Lens, Denizlispor frá Tyrklandi og Panathinaikos á leið sinni í undanúrsltin. Porto vann örugga sigra á fyrstu fjór- um mótherjunum en sigurinn gegn Grikkjunum í átta liða úr- slitum stóð tæpt. Eftir 1-0 tap á heimavelli náði Porto að vinna 2- 0 á útivelli eftir framlengingu. Lazio vann gríska félagið Xanthi örugglega í 1. umferð en Rauða stjarnan frá Belgrad, Sturm Graz, Wisla Kraków og Besiktas veittu öflugri mót- spyrnu. Seinni leikir undanúrslitanna verða 24. apríl en úrslitaleikurinn fer fram í Sevilla 12. maí. Komist Porto og Boavista áfram verður það í fyrsta sinn sem félög frá sömu borg leika til úrslita í Evr- ópukeppni. Celtic, Porto og Lazio hafa öll sigrað í Evrópukeppnum en Boa- vista hefur aldrei leikið til úr- slita. Celtic sigraði í Evrópu- keppni meistaraliða árið 1967, Porto árið 1987 og Lazio í síðustu Evrópukeppni bikarhafa árið 1999. Lazio lék auk þess til úrslita í UEFA-bikarnum árið 1998 en Rómverjarnir töpuðu 0-3 fyrir Internazionale í París. ■ Nágrannaslagur í úrslitum? Fyrri leikir undanúrslita UEFA-bikarkeppninnar fara fram í kvöld. Í Glasgow leika Celtic og Boavista en Porto fær Lazio í heimsókn. PORTO Deco, miðjumaður Porto, í leik gegn Vitoria Setubal um helgina. Porto er langefst í portú- gölsku deildinni og keppir við Lazio um sæti í úrslitum UEFA-bikarkeppninnar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.