Fréttablaðið - 10.04.2003, Page 40

Fréttablaðið - 10.04.2003, Page 40
Sendum í póstkröfu um allt land. Smáralind - Glæsibæ Sími 545 1550 og 545 1500 Smáralind mán.-fös. kl. 11-19 lau. kl. 11-18 sun. kl. 13-18 Glæsibæ mán.-fös. kl. 10-18 lau. kl. 10-16 OPIÐ Tilboð á Meindl Malaysia gönguskóm 9.990 kr. Tilboð á svefnpokum frá 4.990 kr. Tilboð á bakpokum frá 4.990 kr. High Peak Vermont 35 Vandaður dagpoki með 2 hliðarhólfum og regnyfirbreiðslu. Verð 5.990 kr. tilboð 4.990 kr. Buffalo Landscape 65 Sérlega vandaður 65 l bakpoki á góðu verði. Vatnsvarðir rennilásar og regnyfirbreiðsla. Vel bólstraðar ólar og gott burðarkerfi sem er stillanlegt. verð 14.990 kr. High Peak Tjöld High Peak Bonito 3 3ja manna kúlutjald með góðu fortjaldi. Bogar úr fiber trefjum og yfirlimdir saumar. Þyngd; 4,4 kg Verð kr. 11.990 kr. tilboð 9.990 kr. Texel Pro 3 3ja manna sígilt kúlutjald með skyggni. Þyngd; 4.5 kg Verð 8.990 kr. tilboð 7.990 kr. High Peak Svefnpokar Sonic Frábær í íþróttaferðalög og tjald- ferðir í sumar. 1.950 grömm, mesta kuldaþol -10°C, þægindamörk 0°C. Verð 6.990 kr. tilboð 4.990 kr. Jaspis 3D (sjá mynd) Fermingarpokinn í ár! Mjög góður alhliðapoki í útilegur. Hlýr og vandaður. 2.240 grömm, mesta kuldaþol -14°C, þægindamörk -5°C. Verð 9.990 kr. tilboð 7.990 kr. Buffalo Viper 1400 Dúnpoki á frábæru verði ! -23°c 1.395 grömm. Léttur og fyrirferðalítill Framtíðarsvefnpoki. verð kr. 16.990 kr. Bakpokar High Peak Pocatello 60 Góður 60 lítra bakpoki með regnyfirbreiðslu, mörgum hólfum og festingum. Verð 11.990 kr. tilboð 9.990 kr. Frábært úrval af öðrum Meindl gönguskóm. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 06 04 04 /2 00 3 Fermingargjafir úti í náttúrunni SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar SIGURJÓNS MAGNÚSAR EGILSSONAR Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is Þú getur auðveldlega samið um hagstætt lán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum, sem er kjörið til að skuldbreyta óhagstæðum lánum á borð við skammtímabankalán. Þannig lækkarðu greiðslubyrðina hjá þér og eykur fjárhagslegt svigrúm. Lánið er veitt til allt að 30 ára gegn veði í fasteign. Stokkaðu upp fjármálin – með hagstæðari lánum Allt að 75%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar 80 Held nokkuð upp á dægurlag semheitir Vinur minn missti vitið. Hélt satt að segja að það ætti ekki eftir að henda mig að eiga vin sem hefur misst vitið. Þessi vinur minn er í framboði og gerir sér vonir um að verða kjörinn til setu á Alþingi Íslendinga. Áður en hann missti vit- ið hefði sennilega alls ekki verið svo vitlaust að kjósa hann og veita hon- um brautargengi til afreka á Al- þingi. EN SEM SAGT, það hefur bara svo margt breyst. Maður sem áður talaði mest af skynsemi og jafnvel nærgætni er nú sjálfum sér ólíkur. Hann talar um skatta og skatta og helst af öllu enga skatta og þó ég segi honum að við búum ekki í sama kjördæmi og mér sé því lífsins ómögulegt að kjósa hann dugar það ekki til að hann hætti að tala um skatta – hann færist allur í aukana. Hann er hættur að hlusta og þess í stað talar hann bara meira. Kannski er það besta leiðin að löngum og far- sælum þingferli að hætta að hlusta. ÞEGAR HANN talar ekki um enga skatta og breytingar á kvóta, og út- rýmingu biðlista á sjúkrahúsum, bætt kjör öryrkja og hvað það er allt saman sem hann talar um, þá ve- fengir hann skoðanakannanir. Það er að segja þær sem segja hann eiga litla von um sæti á Alþingi Íslend- inga. Þegar þar er komið á ég erfitt með að þola þennan vin sem hefur svo sannarlega misst vitið. Þá hættir hann að reyna að sannfæra mig um hvað hann ætlar að gera nái hann kjöri. Þá tekur hann að reikna út skoðanakannanir með ráðum og að- ferðum sem enginn annar hefur brúkað. Og það bregst ekki að hann reiknar sig inn á þing. Sama hvað kannanirnar segja. HEF HEYRT sögu af rónum sem voru að slá saman í bokku, það var á þeim árum þegar brennivínsflaskan kostaði aðeins 200 krónur. Þeir lögðu í púkk allt sem þeir áttu og töldu hægt og rólega, vönduðu sig sem mest þeir gátu enda yfir sig spenntir þar sem heill þeirra og gæfa var undir. Peningarnir voru taldir og viti menn, þeir áttu aðeins 196 krónur. Sárir horfðu þeir hver á annan þar til einn þeirra sagði; telj- um aftur. Það er einmitt það sem vinur minn vill að við gerum eftir hverja skoðanakönnun, teljið aftur segir hann. Skyldi hann hafa verið róni í fyrra lífi? ■ Vinur minn missti vitið Trúlofunar- og giftingarhringir 20% afsláttur í takmarkaðan tíma www.gunnimagg . i s

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.