Fréttablaðið - 16.05.2003, Page 2
2 16. maí 2003 FÖSTUDAGUR
„Vel.“
Skjár einn ætlar að setja áskriftarsjónvarp á lagg-
irnar í haust undir nafninu Skjár tveir. Sigurður G.
Guðjónsson er forstjóri Stöðvar 2 sem er líka
áskriftarsjónvarp.
Spurningdagsins
Sigurður, hvernig líst þér á Skjá tvo?
■ Erlent
HABL RÁÐSTEFNA
Blái depillinn er veiran illskæða
Finnland:
Líklega
ósýktur
FINNLAND, AP Finnskir læknar
greina frá því að Finninn ungi
sem grunur lá um að væri smitað-
ur af HABL fyrir skemmstu, væri
nánast örugglega ekki sýktur.
Þetta segja þeir eftir að frekari
rannsóknir hafa ekki leitt neitt í
ljós sem styrkir líkurnar á smiti.
„Ég yrði ákaflega hissa ef þetta
reynist vera HABL,“ sagði Pauli
Leinikki, frá Heilbrigðisráðuneyti
Finnlands. „Við getum samt sem
áður ekki verið hundrað prósent
vissir.“
Leinikki sagði að erfitt væri að
finna niðurstöðu úr þeim fjöl-
mörgu rannsóknum sem gerðar
hafa verið og tekið gæti tíma að
staðfesta eina niðurstöðu.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
gaf út fréttatilkynningu þess efn-
is að Finninn yrði áfram á lista
stofnunarinnar yfir tilfelli þangað
til annað kæmi í ljós. ■
HRÆÐSLA Í NEW YORK Það fór
um marga íbúa New York þegar
Boeing farþegavél flaug lágt yfir
Manhattan snemma morguns.
Hringingum frá skelkuðum íbú-
um rigndi í neyðarnúmerið 911. Í
ljós kom að um var að ræða sér-
stakan heiðurshring flugvélar
sem var full af hermönnum að
snúa heim eftir stríðið í Írak. Eft-
ir ákafar óskir hermannanna var
vélinni gefið sérstakt leyfi til lág-
flugs nálægt Manhattan.
Hassmálið:
Á leið til
Þýskalands
RANNSÓKN „Lögreglan hefur sent
menn á sínum vegum til Þýska-
lands til að hjálpa til við rannsókn
í hassmálinu,“ segir Hörður Jó-
hannesson, yfirlögregluþjónn hjá
Lögreglunni í Reykjavík.
Þýska lögreglan handtók á dög-
unum fimm manns í þýskum fíkni-
efnahring. Málið tengist handtöku
tveggja manna í haust, Þjóðverja
og Íslendings, og eru þeir í gæslu-
varðhaldi. Þjóðverjinn var hand-
tekinn er hann reyndi að smygla
einu kílói af hassi og 900 gr. af am-
fetamíni. Íslendingurinn var hand-
tekinn í kjölfarið og hefur kæra
verið lögð á hendur þeim. ■
DÓMSMÁL Sjúkraflutningamaður
hefur verið sýknaður í Hæstarétti
af ákæru um kynferðislega
áreitni gegn konu sem flutt var á
spítala í sjúkrabíl.
Sjúkrabíll hafði verið kallaður
að heimili konunnar á árinu 2001.
Hún hafði reynt sjálfsvíg með
lyfjainntöku. Sjúkraflutninga-
maðurinn var einn með konunni
aftur í sjúkrabílnum. Konan segir
að hann hafi þá leitað á sig, meðal
annars sleikt brjóst sín. Þessu
neitar maðurinn og segist aðeins
hafa hlynnt að konunni á eðlilegan
hátt.
Konan setti ásakanir sínar
gegn manninum fram við starfs-
fólk spítalans þegar við komuna
þangað. DNA rannsókn leiddi í
ljós að munnvatn á brjóstum
hennar var úr manninum. Hæsti-
réttur taldi hins vegar ekki útilok-
að að munnvatnið úr manninum
hafi borist á brjóst hennar með
eðlilegum hætti.
Héraðsdómur hafði áður dæmt
manninn í níu mánaða fangelsi.
Hann hafði verið sviptur atvinnu
sinni sem hann hafði gegnt í þrett-
án ár fyrir atvikið. ■
SJÚKRABÍLL
Sjúkraflutningamaður var rekinn úr starfi
eftir að Héraðsdómur dæmdi hann sekan
um áreiti gagnvart konu sem hann flutti.
Hæstiréttur hefur nú sýknað manninn.
Hæstiréttur snýr dómi Héraðsdóms:
Sýknaður af áreiti í sjúkrabíl
ÍSLENSKIR AÐALVERKTAKAR
Hagnaður minnkar þótt tekjur aukist.
Íslenskir aðalverktakar:
Tekjurnar
tvöfaldast
UPPGJÖR Rekstur Íslenskra aðal-
verktaka skilaði 2,3 milljarða
króna tekjum á fyrsta ársfjórð-
ungi þessa árs, nær tvöfaldri upp-
hæð tekna á sama tímabili fyrir
ári. Hagnaður eftir skatta minnk-
ar þó á milli ára. Hann er 73 millj-
ónir í janúar til mars á þessu ári
en var 111 milljónir fyrstu þrjá
mánuði síðasta árs.
Skuldir félagsins hafa minnk-
að milli ára. Þær voru 5,5 millj-
arðar í lok mars á síðasta ári en
4,7 milljarðar ári síðar. Bókfært
eigið fé nam 3,4 milljörðum í lok
fyrsta ársfjórðungs, rúmum
hundrað milljónum meira en í
upphafi árs. ■
LÍBANSKUR ÖRYGGISVÖRÐUR
Gæsla hefur verið efld við erlend sendiráð
í Líbanon.
Líbanon:
Árás á sendi-
ráð afstýrt
LÍBANON, AP Háttsettur líbanskur
fulltrúi skýrði frá því að níu
menn, grunaðir um að ætla að ráð-
ast á bandaríska sendiráðið í land-
inu og ræna háttsettum mönnum í
stjórn Líbanon, hefðu verið hand-
teknir. Um er að ræða sjö Líbana
og tvo Palestínumenn.
Þessar fréttir koma beint í
kjölfar yfirlýsinga Bandaríkja-
manna um að vitað væri að liðs-
menn al Kaeda væru að skipu-
leggja mun fleiri árásir á erlenda
borgara í þessum heimshluta.
Yfirvöld í Líbanon staðfestu þó
ekki að um meðlimi í al Kaeda
væri að ræða. ■
LONDON, GUARDIAN Bernard Gesch,
lífeðlisfræðingur við Oxford há-
skóla í Bretlandi, gerði merkilega
uppgötvun þegar hann rannsakaði
áhrif þess að auka næringu fanga
í bresku fangelsi sem fram að því
höfðu fengið minna af næringar-
efnum í mat sínum en RDS (ráð-
lagður dagskammtur) breskra
stjórnvalda kveður á um. Ráð-
lagðir dagskammtar eru það
magn nauðsynlegra næringarefna
sem talið er fullnægja þörfum alls
þorra fólks.
Uppgötvunin sem Gesch gerði
varð þegar hann jók skammtinn
þannig að hver fangi fékk sinn
ráðlagða dagskammt af næringar-
efnum. Á einu
ári fækkaði aga-
v a n d a m á l u m
innan veggja
fangelsisins um
35%.
Gesch var
ekki hissa.
„Heilinn er 2%
af líkamsmassa
fólks en notar
20% af orkuforð-
anum. Þetta þýð-
ir að við verðum
að taka miklu al-
varlegar mikil-
vægi matar og næringar á mann-
eskjuna.“ ■
Fangar friðsamari eftir tilraun:
Næring hefur
áhrif á hegðun
KOSNINGAR Frjálslyndi flokkurinn
hefur sent yfirkjörstjórnum allra
kjördæma bréf þar sem farið er
fram á endurtalningu atkvæða í
nýliðnum alþingiskosningum.
Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður Frjálslyndra, segir að
svo virðist sem ýmsar brotalamir
hafi verið á framkvæmd kosning-
anna og ekki verið samræmi í
vinnubrögðum milli kjördæma.
Þetta geti hafa haft áhrif á úrslitin,
þar sem mjög fá atkvæði hafi skil-
ið að síðustu og næstu þingmenn.
Frjálslyndir vilja að sérstök
áhersla verði lögð á talningu og úr-
skurði varðandi vafaatkvæði og ut-
ankjörfundaratkvæði. Í bréfi
Frjálslyndra til yfirkjörstjórna
segir að sum utankjörfundarat-
kvæði hafi verið dæmd ógild þar
sem þau hafi ekki verið rétt fyllt út
af sýslumanni. Þá hafi sum utan-
kjörfundaratkvæði einnig verið
dæmd ógild þar sem fólki hafi ver-
ið sagt að koma þeim til yfirkjör-
stjórnar í viðkomandi kjördæmi.
Kosningalögin kveði hins vegar
skýrt á um að nægjanlegt sé að
koma bréfi með utankjörfundarat-
kvæði í einhverja kjördeild þess
kjördæmis þar sem kjósandinn sé
á kjörskrá.
Guðjón Arnar segir að haft hafi
verið samband við hina stjórnar-
andstöðuflokkana og að þeir séu
hlynntir endurtalningu.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Fréttablaðsins hafa yfir-
kjörstjórnir ekki umboð til þess að
ákvarða um endurtalningu at-
kvæða, þar sem þær láta af störf-
um um leið og þær skila af sér
kosningunni. Dómstólar úrskurða
ekki heldur um endurtalningu,
heldur er valdið í höndum nýkjör-
inna alþingismanna. Alþingi hefur
aðeins heimild til að ákvarða um
endurtalningu.
Lögmaður sem Fréttablaðið
ræddi við segir þetta vera mikinn
galla á kosningalöggjöfinni og
ljóst sé að endurskoða þurfi hana
með tilliti til þessa. Ótækt sé að
alþingismenn séu dómarar í eigin
sök.
trausti@frettabladid.is
GUÐJÓN ARNAR KRISTJÁNSSON
Formaður Frjálslynda flokksins telur að ýmsar brotalamir hafi verið á framkvæmd kosning-
anna og að ekki hafi verið samræmi í vinnubrögðum milli kjördæma.
Frjálslyndir vilja
endurtalningu
Formaður Frjálslynda flokksins segir ýmsar brotalamir hafa verið á
framkvæmd kosninganna. Alþingi sjálft ákvarðar um endurtalningu.
Ótækt segir lögmaður sem Fréttablaðið ræddi við.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FANGELSI
Ólátum fækkaðu
um 35 prósent á
milli ára.