Fréttablaðið - 16.05.2003, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 16. maí 2003 29
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 4, 6.30, 9 SKÓGARLÍF 2 m. ísl tali kl. 2
kl. 8 og 10
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 b.i. 16 ára
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20 b.i.14.ára
RECRUIT b.i. 14 kl. 10.20
Sýnd kl. 6, 8 og 10
SHANGHAI KNIGHTS
kl. 4, 6.TÖFRABÚÐINGURINN
kl. 4 TILBOÐ 400ABRAFAX OG SJÓRÆN.
DARKNESS FALLS
Aðalhlutverk: Chaney Kley, Emma Caulfield
Umfjöllunkvikmyndir
BAD BOY CHARLIE kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.30, 8, og 10.15 b.i. 16
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 12 ára
BOWLING FOR... kl. 5.40 og 8
Hætt var við tónleika The Roll-ing Stones í Belgrad, höfuð-
borg Serbíu, af ör-
yggisástæðum.
Forsætisráðherra
landsins, Zoran
Djindjic, var
myrtur í mars og
mikil ólga er enn í
borginni. Nokkr-
um dögum eftir
morðið tilkynnti sveitin tónleika-
höldurum í borginni að hún væri
hætt við að koma. Ríkisstjórnin í
landinu reyndi hvað hún gat til
þess að fá þá til að skipta um skoð-
un en án árangurs.
Trylltur
tannálfur
Það eru engin takmörk fyrir þvíhversu langt má ganga í vitleys-
unni í hryllingsmyndum og því
þarf ekkert að agnúast yfir því að
hér taki Tannálfurinn að sér það
hlutverk að kála ungmennum að
hætti Freddy Krueger og Michael
Myers. Það er samt eitthvað hall-
ærislegt við hugmyndina og maður
verður líklega að fara að búa sig
undir það að Páskakanínan mæti
morðóð í bíó á næstunni.
Það þarf ekki að hafa mörg orð
um söguþráð Darkness Falls en hér
segir frá afturgöngu kerlingar
nokkurrar sem safnaði tönnum
barna í lifanda lífi. Það var allt gert
í góðu þar til íbúar bæjarins Dark-
ness Falls tóku upp á því að hengja
hana fyrir meint barnsrán. Eftir
það heimsækir hún börnin í bænum
þegar þau missa síðustu barnatönn-
ina sína og ef þau kíkja á hana þeg-
ar hún kemur að sækja fenginn
drepur hún þau með látum.
Þessi brjálaði tannálfur hefur
haft nokkuð hægt um sig í gegnum
tíðina en allt í einu rennur á hana
mikið æði og hálfur bærinn liggur í
valnum áður en yfir lýkur. Þetta er
auðvitað alveg galið og það er ekki
heil brú í sögunni en það má samt
hafa gaman að vitleysunni á köfl-
um, ekki síst þar sem dæmigerð
hryllingsmyndatónlist er keyrð í
botn út alla myndina og ódýrum
bregðubrellum er miskunnarlaust
dembt yfir áhorfendur. Darkness
Falls er þó fyrst og fremst mis-
heppnuð hryllingsmynd sem skýt-
ur ekki nokkrum manni skelk í
bringu.
Þórarinn Þórarinsson