Fréttablaðið - 16.05.2003, Blaðsíða 4
4 16. maí 2003 FÖSTUDAGUR
Á Ólafur Ragnar Grímsson að gefa
aftur kost á sér til embættis forseta
Íslands eftir ár?
Spurning dagsins í dag:
Kom brúðkaup forseta Íslands
þér á óvart?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
38%
29%
Nei
33%Alveg sama
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
KONGÓ, AP Yfirvöld í Kongó hafa
beðið um tafarlausa aðstoð al-
þjóðasamfélagsins vegna blóð-
ugra ættbálkaerja í borginni
Bunia í austurhluta landsins. Að
minnsta kosti tíu eru látnir og á
annað hundrað hafa særst síðan
harðir bardagar brutust út í
borginni í gærmorgun.
Yfir 10.000 óbreyttir borgarar
urðu að leita skjóls á víggirtu
svæði Sameinuðu þjóðanna.
Skotið var úr sprengjuvörpum
inn á svæðið með þeim afleiðing-
um að fjöldi manna særðist, aðal-
lega börn. Kongóska lögreglan
og friðargæsla Sameinuðu þjóð-
anna hafa ekki mannafla til þess
að stöðva átökin enda eru blóð-
þyrstir vígamenn Hema og
Lendu ættbálkanna tugþúsundir
talsins. Sameinuðu þjóðirnar
hafa beðið yfirvöld í Frakklandi
og víðar að senda herlið til
Kongó til að afvopna bardaga-
mennina. ■
UMHVERFISMÁL Ef Urriðafossvirkj-
un verður reist í neðri hluta Þjórs-
ár er verið að valta yfir og rústa
tilraunum heimamanna til að
byggja upp ferðaþjónustu að sögn
Valdimars Össurarsonar, ferða-
málafulltrúa Villingaholtshrepps.
„Þetta er hryðjuverk gagnvart
ferðaþjónustunni,“ segir Valdimar.
„Urriðafoss hefur meira gildi fyrir
okkur heldur en Gullfoss fyrir
uppsveitarmenn. Þetta er fallegur
foss og ein undirstaðanna sem við
ætluðum að byggja á í okkar upp-
byggingu. Nú á að taka þennan
foss og þurrka hann algjörlega
upp. Það hefði mátt spara sér
Þjórsárbrú, það hefði mátt fylla
þarna upp í og setja lítið ræsi
vegna þess að það verður afskap-
lega lítið vatn eftir.“
Talsmenn Landsvirkjunar segja
að virkjun á þessu svæði hafi eng-
in áhrif á ferðamennsku. Valdimar
segir þá ljúga þessu blákalt.
„Við vorum búnir að senda
þeim athugasemd við matsáætlun-
ina, þannig að þeir geta ekki sagt
að þeir viti ekki betur. Það þarf
ekki gáfaðan mann til að sjá að
þegar tekinn er vatnsmesti foss
landsins grefur það undan mögu-
leikum til ferðaþjónustu.“
Valdimar segir að ferðaþjón-
usta á svæðinu hafi ekki verið þró-
uð. Fyrir fáeinum árum hafi verið
tekin ákvörðun um að byggja hana
upp, en með þeim framkvæmdum
sem fyrirhugaðar eru núna sé það
uppbyggingarstarf rifið niður.
„Það er alveg út í hött að taka
þetta sem næsta virkjunarkost
þegar aðrir kostir eru á borðinu
sem valda nánast engu tjóni. Þá er
ég að tala um háhitavirkjanir.“
Valdimar segir að ef virkjunin
verði reist muni Villingaholts-
hreppur ekki fá krónu í fasteigna-
gjöld, þar sem stíflumannvirki séu
undanþegin fasteignaskatti sam-
kvæmt lögum. Landsvirkjun þurfi
að greiða fasteignagjöld vegna
stöðvarhússins, en Ásahreppur
muni innheimta þau, því stöðvar-
húsið sé þeim megin árinnar.
trausti@frettabladid.is
Spilltur bæjarstjóri:
Allt að
tólf ára
fangelsi
DANMÖRK Peter Brixtofte, fyrrum
bæjarstjóri í Farum, á yfir höfði
sér allt að tólf ára fangelsi verði
hann fundinn sekur af ákærum
um umboðssvik og fjárdrátt í op-
inberu starfi, að því er fram kem-
ur í Politiken. Brixtofte varð í
upphafi síðasta árs uppvís að
fjárdrætti og margs konar spill-
ingu í starfi sínu sem bæjarstjóri.
Alvarlegasta ákæran á hendur
Brixtofte lýtur að meintum um-
boðssvikum sem nema um 130
milljónum íslenskra króna. Auk
þess er honum gefið að sök að
hafa tekið lán að upphæð um 2,8
milljarðar íslenskra króna án
samþykkis bæjarstjórnar. Bæj-
arstjórinn fyrrverandi neitar
sök. ■
FIMMTÁN ÁRA Á STOLNUM BÍL
Lögreglan í Reykjavík handtók
þrjá fimmtán ára pilta um fimm-
leytið í gærmorgun. Piltarnir
höfðu stolið bíl frá Hafnarfirði
um miðnætti og ekið á honum
um borgina. Þeir voru svo stadd-
ir í Árbæjarhverfi þegar lög-
reglan hafði uppi á þeim.
Drengirnir voru allsgáðir og
höfðu ekki skemmt bílinn.
HRAÐAKSTUR Í REYKJAVÍK
Brotist var inn í þrjá bíla í gær-
dag. Tveir þeirra voru staðsettir
í Grafarvogi og einn á Bergþóru-
götu. Úr bílunum var stolið
þessu hefðbundna, geislaspilara
og geisladiskum. Þá voru þrjátíu
og tveir ökumenn sektaðir vegna
hraðaksturs frá klukkan sjö í
gærmorgun þar til klukkan
fimm um eftirmiðdaginn. Að
sögn lögreglu er það helst að
menn séu teknir í Ártúns-
brekkunni.
Virkjanir í Þjórsá:
Engar at-
hugasemdir
UMHVERFISMÁL Árni Finnsson, tals-
maður Náttúruverndarsamtaka Ís-
lands, segir samtökin ekki hafa
skoðað nákvæmlega hugsanleg
umhverfisáhrif vegna virkjana í
neðri hluta Þjórsár.
Árni segir að megin áhersla
samtakanna sé á verndun ósnort-
innar náttúru hálendisins. Ekki séu
líkur á aðgerðum nú. ■
FRÁ EGYPTALANDI
Þar er heiður fjölskyldunnar ofar öllu.
Tíu ára rifrildi tekið toll:
Dauðadóm-
ar fyrir fjöl-
skylduerjur
EGYPTALAND, AP Sex meðlimir sömu
fjölskyldunnar voru dæmdir til
dauða fyrir rétti í Egyptalandi.
Höfðu þessir sex unnið það til saka
að skjóta til bana 22 meðlimi úr
annarri fjölskyldu í nágrenninu.
Í landi þar sem heiður fjöl-
skyldunnar skiptir öllu máli og að-
gangur að skotvopnum er auðveld-
ur kemur ekki á óvart að misklíð
manna á milli geti endað með
ósköpum. Í þessu tilfelli hófust
deilur fyrir tíu árum síðan þegar
krökkum úr báðum fjölskyldum
lenti saman. Saga beggja fjöl-
skyldna hefur síðan verið blóði
drifin. ■
■ Lögreglufréttir
Hryðjuverk gagn-
vart ferðaþjónustu
Ferðamálafulltrúi Villingaholts er mjög ósáttur við fyrirhugaða
Urriðafossvirkjun. Verið að þurrka upp helstu náttúruperlu svæðisins.
Hreppurinn fær ekkert í fasteignagjöld ef af framkvæmdum verður.
URRIÐAFOSSVIRKJUN
Valdimar Össurarson, ferðamálafulltrúi
Villingaholtshrepps, segir að ef virkjun-
in verði reist muni Villingaholtshreppur
ekki fá krónu í fasteignagjöld, þar sem
stíflumannvirki séu undanþegin fast-
eignaskatti samkvæmt lögum.
Blóðugar ættbálkaerjur í Kongó:
Óskað eftir alþjóðlegri aðstoð
Á FLÓTTA
Mikil örvænting hefur gripið um sig meðal
fólks sem hefur orðið að flýja heimili sín.
LANDBÚNAÐUR „Grasspretta er
töluvert lengra á veg komin en í
meðalári,“ segir Ólafur Dýr-
mundsson, ráðunautur hjá
Bændasamtökunum. Í ár voraði
fyrr en lengi hefur gerst og var
apríl sérstaklega hlýr og rakur.
Þrátt fyrir að kuldi og þurrkur
hafi hægt á sprettunni það sem
af er maí eru horfur á góðri
sprettu víðast hvar á landinu.
„Þetta er búinn að vera mjög
mildur vetur, lítill eða engin
klaki var í jörðu. Þess vegna
byrjaði snemma að gróa, vel
mánuði fyrr en venjulega.“ Ólaf-
ur á von á, ef hlýnar í veðri, að á
sumum stöðum verði jafnvel
hægt að byrja að slá um næstu
mánaðamót. „Þeir sem geta byrj-
að mjög snemma fá betri seinni
slátt. Þá verður meiri spretta og
meira á túnunum.“ ■
Grasspretta:
Horfur
á góðri
uppskeru
ÚTLITIÐ ER GOTT
Ólafur Dýrmundsson ráðunautur telur
horfur á góðri uppskeru.
SKÓLAMÁL Sigurður Geirdal, bæj-
arstjóri Kópavogs, skrifaði í gær
undir samning um rammafjár-
veitingar og fjárhagslega ábyrgð
milli skólastjóra við grunnskóla
Kópavogs og bæjarstjórnar.
Samningurinn kveður á um
hvernig fjármagni til kennslu og
annarra starfa við skólann er út-
hlutað. Að sögn Ármanns Kr.
Ólafssonar, formanns skólanefnd-
ar Kópavogs, mun samningurinn
verða til þess að öll fjárútlát til
skólanna verða gagnsærri og
heildarframlög skólanna jafnari
frá einu ári til annars. ■
Kópavogsbær:
Samið um skólastarf
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ÁRMANN KR. ÓLAFSSON
Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að
nú verði fjárútlát til skólanna gagnsærri.