Fréttablaðið - 16.05.2003, Blaðsíða 22
■ ■ FUNDIR
13.00 Á Vorþingi á Keldum munu
deildarstjórar og starfsmenn Tilrauna-
stöðvar Háskóla Íslands í meinafræði
flytja erindi um ýmislegt sem snýr að
dýrasjúkdómarannsóknum.
13.00 Málþing um kynferðislegar
tengingar í auglýsingum og ábyrgð fjöl-
miðla verður haldið í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi. Málþingið er hið
fyrsta sem samráðshópur um að styrkja
heilbrigðan lífsstíl barna og unglinga
stendur fyrir.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Óperukór Hafnarfjarðar,
sem áður hét Söngsveit Hafnarfjarðar,
verður með tónleika í Hafnarborg,
Hafnarfirði. Meðal einsöngvara verða
Guðrún Ingimarsdóttir sópran og Þor-
geir J. Andrésson tenór. Af efnisskránni
má nefna verk úr Cavalleria Rusticana,
Leðurblökunni og Sígaunabaróninum.
Stjórnandi er Elín Ósk Óskarsdóttir og
Peter Máté leikur á píanóið.
20.00 Raftónleikar á vegum Lista-
háskóla Íslands verða í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsinu. Guðmundur
Steinn Gunnarsson og Hallvarður Ás-
geirsson, gítarleikarar, frumflytja tónverk
eftir Þóru Gerði Guðrúnardóttur og
Hallvarð Ásgeirsson.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Rómeó og Júlía eftir William
Shakespeare er sýnt á Litla sviði Borg-
arleikhússins í uppfærslu Vesturports.
20.00 Rauða spjaldið eftir Kjartan
Ragnarsson og Sigríði Margréti Guð-
mundsdóttur verður sýnt á Stóra sviði
Þjóðleikhússins.
20.00 Söngleikurinn Sól og Máni
eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst
Úlfsson á Stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
20.00 Maðurinn sem hélt að kon-
an hans væri hattur eftir Peter Brook
og Marie-Hélène Estienne á Nýja sviði
Borgarleikhússins.
■ ■ OPNUN
Handverkssýning verður í félags-
miðstöðinni Vitatorgi, Lindargötu 59, í
dag og á morgun. Sýndir verða munir
sem notendur félagsmiðstöðvarinnar
hafa verið að vinna í vetur. Má þar nefna
útskurð, bútasaum, glerlistaverk og
smíði fagurra hluta, þar á meðal stand-
klukkur.
■ ■ SKEMMTANIR
22.00 Eivör Pálsdóttir heldur tón-
leika í Iðnó með hljómsveit sinni, sem
er skipuð Birgi Bragasyni, Eðvarð
Lárussyni og Pétri Grétarssyni. Þau
leika tónlist eftir Eivöru og einnig þjóð-
lög og þjóðleg lög, bæði íslensk og fær-
eysk.
22.00 Hljómsveitirnar Pan, Whole
Orange, Core Blooming, Sensei og Lík-
þorn spila á Grand Rokk.
23.00 Orgeltríóið B3 leikur á Caffé
Kúlture. Tríóið er skipað þeim Agnari
Má Magnússyni á orgel, Ásgeiri Ásgeirs-
syni á gítar og Erik Qvick á trommur. Út
er komin fyrsta hljómplata tríósins og
heitir hún Fals og fæst í næstu hljóm-
plötuverslun.
23.00 Ruth Reginalds og hljóm-
sveitin Cadillac verða á Kringlukránni.
Útgáfutónleikar Greifanna verða í
Broadway og ball á eftir.
Hljómsveitin Spilafíklar leika á
Dubliner.
Óskar Einarsson trúbador skemmtir
á Ara í Ögri.
DJ Frosti verður á Laugavegi 11.
Hljómsveitin Papar spilar á Players í
Kópavogi.
Hljómsveitin Skítamórall spilar í
Sjallanum á Akureyri.
■ ■ SÝNINGAR
Eggert Pétursson sýnir í galleríinu i8
við Klapparstíg.
Steingrímur Eyfjörð myndlistarmað-
ur er með sýninguna “of nam hjá fið-
urfé og van“ í Gallerí Hlemmi. Sýning-
in er innsetningarverk sem byggir á 50
ára gamalli frásögn af íslenskri stúlku
sem ólst upp að einhverju leyti innan
um hænur og hélt að hún væri fugl. Tit-
ill sýningarinnar er kominn frá Megasi.
Gunnar Karl Gunnlaugsson sýnir
ljósmyndir af um það bil 60 brúm á
þjóðvegi 1 í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi.
24 16. maí 2003 FÖSTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
13 14 15 16 17 18 19
MAÍ
Föstudagur
Engu er líkara en Englaborg,hið sögufræga hús Jóns Engil-
berts listmálara á horni Flókagötu
og Rauðarárstígs, hafi verið
tjóðruð niður. Kannski til öryggis.
Einnig virðist sem nýjar dyr,
eldrauðar á lit, séu komnar á einn
gafl hússins og frá þeim liggur
stigi niður í garðinn.
Málin skýrast ef til vill nokkuð
þegar fréttist að ungur myndlist-
armaður, Markús Þór Andrésson,
er með sýningu í húsinu. Fyrir
nokkrum árum keyptu þau Sig-
tryggur Bjarni Baldvinsson list-
málari og Tinna Gunnarsdóttir
hönnuður húsið af erfingjum Jóns
Engilberts.
Áður fyrr hélt Jón Engilberts
stundum sýningar í vinnustofu
sinni, en Markús er fyrsti lista-
maðurinn, sem ekki er búsettur í
húsinu, sem fær boð um að halda
sýningu þar.
„Ég hef tvisvar verið hér með
vinnustofusýningu,“ segir Sig-
tryggur Bjarni. „En við viljum
endilega nota þennan sal, sérstak-
lega til þess að gefa nýlega útskrif-
uðum listamönnum tækifæri til að
sýna hvað þeir eru að fást við.“
Í salnum, sem áður var vinnu-
stofa Jóns Engilberts, heyrast
ógnvekjandi drunur og á veggjun-
um hanga málverk af ýmsum ör-
yggistækjum, svo sem slökkvi-
tæki og björgunarbát.
„Þetta á kannski að vekja hjá
áhorfendum einhvers konar
óöryggistilfinningu,“ segir Mark-
ús. „Líka bara vegna þess að þetta
er svolítið skrýtið allt saman og
óvenjulegt. Margir áhorfendur
nálgast myndlist af ákveðnu óör-
yggi, sérstaklega ef þeim finnst
eitthvað skrýtið við verkin. Þeir
búast kannski frekar við ein-
hverju venjulegu.“ ■
■ MYNDLIST
Englaborgin
tjóðruð niður
KRISTRÚN HEIMISDÓTTIR
Ég hef nú, eins og margir aðrir,hlakkað til þess lengi að setja
tærnar upp í loft um þessa helgi.
Keypti meira að segja doðrant til
helgarinnar í gærkvöldi, ævisögu
Alberts Camus, sem mér finnst
persónulega merkilegastur og
mest gefandi af frönsku tilvistar-
höfundunum og þá tel ég heim-
spekingana frægu með,“ segir
Kristrún Heimisdóttir lögfræð-
ingur. „Svo eru ABBA-tónleikar í
Laugardalshöll um helgina. Ég
var ung gefin ABBA og er sam-
mála Bono, söngvara U2, sem
sagði að ABBA væri „pure joy“.
Vandamálið er bara að enginn get-
ur almennilega spilað ABBA
nema þau sjálf. Sé til hvort ég get
drifið Önnu frænku mína sem er
stödd á landinu en býr á Írlandi;
við erum jafnöldrur og vildum
báðar vera Agnetha þegar við
vorum sjö ára. Vorum líka ljós-
hærðar. Ég hef séð allar sýningar
hópsins á nýja sviði Borgarleik-
hússins og þyrfti að sjá „Manninn
sem hélt...“ líka. Ef einhver
hnippti í mig að fara á Eivöru
Pálsdóttur myndi ég slá til, hún
hefur eitthvað sérstakt. Svo
finnst mér Eggert Pétursson at-
hyglisverður myndlistarmaður.
Hann er í i8 og Markús Þór Andr-
ésson þarf ég að skoða af sérstök-
um ástæðum en hann er með
einkasýningu í Englaborg, Flóka-
götu 17.“
Val Kristrúnar
Þetta lístmér á!
Daglegt flug til London
Iceland Express flýgur til London alla daga.
Skoðaðu og bókaðu á IcelandExpress.is eða komdu á söluskrifstofuna
Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga.
Lág fargjöld. Engin bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl.
Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
LISTAMAÐURINN FYRIR UTAN ENGLABORG
Í húsi Jóns heitins Engilberts listmálara við Flókagötu stendur nú yfir sýning á verkum
Markúsar Þórs Andréssonar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Hótel á miklu athafnasvæði færi!
Af sérstökum ástæðum býðst
rótgróið hótel nánast í túnfæti
álversframkvæmda á Austurlandi.
Álversframkvæmdum fylgja mikil
umsvif sem kalla á mikla þörf fyrir
gistiaðstöðu, veitingastað og bar.
Þetta er til staðar hér.
Um er að ræða 7 ágætlega búin
tveggja manna herbergi, veitingasal
og bar.
Hótelið er til afhendingar strax.
Seljandi skoðar ýmis skipti og
greiðslukjör.
Fjöldi mynda á heimasíðunni
www.fyrirtaekjasala.is
Ásett verð er 15 millj
og áhvílandi eru 8 millj.
Skoðaðu alla söluskrána á heimasíðunni
www.fyirtaekjasala.is
Síðumúla 15 Sími: 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
Löggiltur fasteigna-
og fyrirtækjasali.
✓
✓
✓
✓