Fréttablaðið - 16.05.2003, Side 6
6 16. maí 2003 FÖSTUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 73.15 0,26%
Sterlingspund 118.39 0,52%
Dönsk króna 11.30 0,09%
Evra 83.88 0,06%
Gengisvístala krónu 118,62 -0,05%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 201
Velta 2.912 milljónir
ICEX-15 1.415 -0,01%
Mestu viðskipti
Baugur Group hf. 96.400.000
Pharmaco hf. 0.327.502
Þorm. rammi-Sæberg hf. 38.393.010
Mesta hækkun
Þormóður rammi-Sæberg hf. 13,16%
Olíuverslun Íslands hf. 2,00%
Austurbakki hf. 1,47%
Mesta lækkun
Marel hf. -6,76%
Opin kerfi hf. -3,45%
Íslenskir aðalverktakar hf. -1,08%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 8668,0 0,2%
Nasdaq: 1539,5 0,3%
FTSE: 4011,1 0,9%
DAX: 2970,5 1,5%
NIKKEI: 8123,4 -1,5%
S&P: 939,0 0,0%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Ungfrú Ísland, Manúela Ósk Harð-ardóttir, er á leið út í heim til að
keppa um titilinn Ungfrú alheimur. Hvar
er keppnin haldin?
2Sautján evrópskum ferðamönnum varbjargað úr klóm mannræningja í Sa-
hara-eyðimörkinni. Í hvaða landi voru
gíslarnir?
3Langþráð framhald kvikmyndarinnarThe Matrix verður frumsýnt um helg-
ina. Hvað heitir myndin?
Svörin eru á bls. 46
SAMGÖNGUR Verkefnisstjórn um
byggingu Sundabrautar hefur
fækkað valkostum um gerð og
vegstæði brautarinnar úr fimm í
þrjá. Þetta kemur fram í svari
Verkfræðistofu Reykjavíkur-
borgar við fyrirspurn Vilhjálms
Þ. Vilhjálmssonar, borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokks.
Tveir kostir á leið III svokall-
aðri hafa verið sameinaðir í svo-
nefnda eyjalausn. Hugmynd um
jarðgöng hefur verið sett til hlið-
ar. Valið stendur því nú um hábrú
á leið I, botngöng á leið I og eyja-
lausn á leið III.
Mikilvægt er fyrir framgang
málsins að samstaða náist um
þverunarleið yfir Kleppsvík.
Ekkert varð af myndun samráðs-
hóps þingmanna og borgafulltrúa
sem rætt var um í desember að
setja á fót og ekkert samkomulag
liggur fyrir um eina tillögu að
þverun Kleppsvíkur. Til þess að
þoka málinu áfram vill borgin að
Skipulagsstofnun meti allar þrjá
leiðirnar með tilliti til þess hvort
þær eru færar. Ákvörðun verði
tekin síðar.
Borgarfulltrúar munu al-
mennt hallast að leið I en Vega-
gerðin vill leið III. Skiptar skoð-
anir eru meðal alþingismanna. ■
UTANRÍKISMÁL „Þetta er skýrara að
því leyti að reiptogið snýst ein-
göngu um mjög afmarkað efni,“
segir Gunnar Snorri Gunnarsson,
ráðuneytisstjóri í utanríkisráðinu,
um stöðuna í samningaviðræðum
um stækkun Evrópska efnahags-
svæðisins. Eina deilumálið sem eigi
eftir að leysa sé krafa Pólverja um
stærri makrílkvóta. Hann segir þó
erfitt að segja til um hvenær hægt
verði að leggja samkomulag um
stækkun fyrir þjóðþing viðkomandi
ríkja. Hann kveðst þó þokkalega
bjartsýnn á að kröfur Pólverja setji
ekki stórt strik í reikninginn.
„Pólverjar vilja fá 56.000 tonn
en ekki 32.000 tonn og vilja að þetta
endi hjá þeim en ekki í verksmiðj-
um í Hollandi eða annars staðar í
Evrópusambandslöndum,“ segir
Gunnar Snorri. Þetta hefur þó ekki
áhrif á önnur atriði samkomulags-
ins sem búið var að ná. „Það miðar
mjög vel áfram,“ segir Gunnar
Snorri um önnur atriði samkomu-
lagsins. Unnið sé áfram með tækni-
lega útfærslu þeirra og stefnt að
því að hægt verði að smeygja sam-
komulagi um makrílkvóta inn í til-
búinn texta. ■
STJÓRNSÝSLA Stjórn Félags ís-
lenskra flugumferðarstjóra (FÍF)
hefur lýst furðu á „afskiptum af
kjaramálum flugumferðarstjóra“
sem felist í stjórnsýsluúttekt Rík-
isendurskoðunar á Flugmálastjórn
Íslands.
„Verður ekki skilið öðru vísi en
svo að Ríkisendurskoðun hvetji
stjórnvöld til þess að beita fullri
hörku gagnvart flugumferðar-
stjórum og leggja þessa þjónustu
niður hérlendis ef flugumferðar-
stjórar fallast ekki á kaup og kjör
sem ríkisvaldinu þóknast að bjóða
hverju sinni,“ segir í yfirlýsingu
FÍF.
Eins og segir í Fréttablaðinu í
gær telur Ríkisendurskoðun flug-
umferðarstjóra hafa fengið meiri
launahækkanir en aðra ríkisstarfs-
menn. Telji stjórnvöld kröfur flug-
umferðarstjóra ósanngjarnar í
framtíðinni verði að láta reyna á
hvort flugumferðarstjórar séu
reiðubúnir í verkfall. Slíkt myndi
stefna í voða alþjóðlegum flug-
þjónustusamningi sem færir Ís-
lendingum yfir tvo milljarða króna
á ári og skapar 180 störf.
Flugumferðarstjórar segjast
„hjartanlega sammála“ því að sátt
um kjör flugumferðarstjóra sé
mikilvæg. Þeir vísa til niðurstöðu
svokallaðrar réttarstöðunefndar
frá árinu 1997 um ákveðið ferli í
kjaramálum FÍF:
„Fulltrúar þriggja ráðuneyta,
Flugmálastjórnar og FÍF skrifuðu
undir tillögur nefndarinnar. Þegar
á reyndi ákvað ríkisvaldið að hafa
þær að engu.“
FÍF segir fullyrðingu Ríkisend-
urskoðunar um að flugumferðar-
stjórar hafi náð betri árangri í
kjarasamningum undanfarin ár en
aðrir ríkisstarfsmenn vera órök-
studda: „Nægir þar að vísa til ný-
fallins úrskurðar Kjaradóms sem
sagður er byggjast á þróun launa
opinberra starfsmanna.“
Flugumferðarstjórar segja að
þótt hægt væri að annast alþjóða-
flugþjónustuna frá til dæmis
Kanada og Bretlandi stæði eftir
spurningin um íslenskt innan-
landsflug. Ætlist Ríkisendurskoð-
un til að Bretar og Kanadamenn
taki líka við því?
„Það er auðvitað alveg fráleitt
að Ríkisendurskoðun hafi í hótun-
um við flugumferðarstjóra og
leggi ríkisvaldinu lífsreglur í átök-
um sem hún sér fyrir sér um kaup
og kjör þegar heil tvö ár eru eftir
af gildandi kjarasamningi,“ segja
flugumferðarstjórar.
gar@frettabladid.is
GORDON BROWN
Þann 9. júní kemur í ljós hvort pundið
víkur fyrir evrunni.
Skýrsla
evrunefndar Breta:
Aðild að
evru talin
ólíkleg
GJALDMIÐLAR Bretar munu ákveða
hvort þeir taka upp evruna fljót-
lega eftir að Gordon Brown, fjár-
málaráðherra Breta, kynnir nið-
urstöður sérstakrar nefndar sem
hefur kannað kosti og galla gjald-
miðilsins fyrir hagkerfi Bretlands
þann 9 júní.
Bresk stjórnvöld styðja aðild
að evrunni en Tony Blair, forsæt-
isráðherra vill fara varlega í
þessu mikilvæga máli.
Flestir gera ráð fyrir að niður-
staða nefndarinnar verði að ekki
sé hagkvæmt að sækja um aðild
að myntbandalaginu.
ESB sækir það fast að ríki sam-
bandsins taki upp evruna því sam-
eiginlegt myntkerfi var talið einn
stærsti kostur þess að stofna sam-
bandið á sínum tíma. ■
Samstaða hefur ekki náðst um þverun Kleppsvíkur:
Þrjár Sundabrautir
enn á teikniborðinu
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR
Reykjavíkurborg vill að Skipulagsstofnun meti strax þá þrjá kosti sem enn koma til greina
um lagningu Sundabrautar til að hægt sé að þoka málinu áleiðis þó samkomulag hafi
ekki náðst um hver leiðanna þyki ákjósanlegust.
Ríkisendurskoðun
sökuð um hótanir
Flugumferðarstjórar átelja Ríkisendurskoðun fyrir að skipta sér af
kjaramálum og hóta starfsstéttinni. Rangt sé að flugumferðarstjórar
hafi fengið meiri launahækkanir en allir aðrir ríkisstarfsmenn.
LOFTUR JÓHANNSSON
„Það er auðvitað alveg fráleitt að Ríkisendurskoðun hafi í hótunum við flugumferðarstjóra
og leggi ríkisvaldinu lífsreglur í átökum sem hún sér fyrir sér um kaup og kjör þegar heil
tvö ár eru eftir af gildandi kjarasamningi,“ segir stjórn Félags íslenskra flugumferðarstjóra.
Loftur Jóhannsson er formaður félagsins. Loftur var við störf á Reykjavíkurflugvelli í gær.
Kjarna-
vörur
Bakarahátíð
í Smáralind
Fylgist með spennandi keppni í brauð-
og kökubakstri í Vetrargarðinum,
Smáralind, dagana 16. til 18. maí
Föstudaginn 16. maí:
Baksturskeppni bakaríanna - Fyrri hópur .......
Laugardaginn 17. maí:
Baksturskeppni bakaríanna - Seinni hópur .......
Úrslit kynnt og verðlaunaafhending ..........................
Sunnudaginn 18. maí:
Verk keppenda til sýnis................................
Á keppnissvæðinu verða fyrirtæki með ýmsar kynningar og
uppákomur, marsipanskreytingar, súkkulaði, kaffi bakarans
og margt fleira. Á sunnudeginum gefst fólki kostur á að
ræða við meistarana og smakka á brauði og bakkelsi.
12:00 - 18:00
9:00 - 15:00
17:00
13:00 - 18:00
Eina deiluefni EES-viðræðna snýr að makrílkvótum:
Reiptog um afmarkað efni
HÖFUÐSTÖÐVAR EVRÓPUSAMBANDSINS
Deilur um makríl snerta íslenska hagsmuni lítið.
ÓTTAST LANDBROT Bæjarráð
Hornafjarðar óttast alvarlegar
afleiðingar landbrots í Austur-
Skaftafellssýslu. Bæjarráðið
hvetur til þess að fjármagni verði
tafarlaust úthlutað til brýnna að-
gerða sem Landgræðslan telur
þörf á.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
■ Innlent