Fréttablaðið - 16.05.2003, Síða 10

Fréttablaðið - 16.05.2003, Síða 10
10 16. maí 2003 FÖSTUDAGUR UPPGJÖR Tap DeCode var minna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en á sama tímabili síðasta árs. Tap fyrirtækisins fyrstu þrjá mán- uði ársins nam 950 milljónum króna. Fyrir ári síðan nam tapið 1.160 milljónum króna. Tekjur fyrirtækisins rúmlega tvöfölduðust á milli ára. Þær fóru úr tæpum 400 milljónum króna 2002 í 860 milljónir á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Sú aukning endurspeglar vöxt í vöruþróun og þjónustustarfsemi fyrirtækisins í kjölfar þess að það yfirtók fyrirtæki á sviði lyfjaþróunar. Eigið fé DeCode nam 5,8 milljörðum króna við lok fyrsta ársfjórðungs. Það dugar félag- inu til eins og hálfs árs reksturs miðað við óbreytta afkomu. „Eft- ir því sem árinu líður fram ger- um við ráð fyrir að minnka mun- inn á tekjum og útgjöldum á nú- verandi starfsemi okkar,“ segir Kári Stefánsson, stjórnarfor- maður fyrirtækisins, í yfirlýs- ingu sem fylgdi þriggja mánaða uppgjöri fyrirtækisins. ■ ÍSLENSK ERFÐAGREINING Móðurfélag ÍE hefur rúmlega tvöfaldað tekjur sínar á einu ári. Tekjur á fyrsta ársfjórðungi tvöfaldast milli ára: Tap DeCode minnkar Betur spilað úr fylgistapinu Mikið þarf að gerast til að Sjálfstæðisflokkurinn verði ekki áfram í ríkis- stjórn og sterkari en eftir þau skipti sem flokkurinn hefur áður tapað fylgi. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 11 66 05 /2 00 3 Smáralind mán.-fös. kl. 11-19 lau. kl. 11-18 sun. kl. 13-18 Glæsibæ mán.-fös. kl. 10-18 lau. kl. 10-16 OPIÐ www.utilif.is Smáralind - Glæsibæ Sími 545 1550 og 545 1500 Frábær vortilboð 20 - 30% afsláttur stangir - hjól - vöðlujakkar - öndunarvöðlur og fleira! Gildir aðeins í Glæsibæ. GISTINÓTTUM FJÖLGAR Gistinætur voru nær tíu prósent fleiri í mars síðastliðnum en á sama tíma á síðasta ári, að því er fram kemur í bráðabirgðatölum sem Hagstofan hefur tekið saman. 69.000 gistinætur voru skráðar í mars í ár, þær voru 63.000 á síðasta ári. Miklu munar þó á því hvern- ig fjöldi gistinátta breytist eftir land- svæðum. FJÖLGUN GISTINÓTTA Höfuðborgarsvæðið +54% Vesturland +5% Vestfirðir +5% Norðurland -14% Austurland -48% Suðurland +54% Suðurnes +5% Svonaerum við STJÓRNMÁL Þrátt fyrir að útkoma Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosn- ingum sé um margt lík kosningun- um 1978 virðist eftirleikurinn ætla að verða allt annar. Flokkurinn verður áfram í stjórn og hljóðið í þingmönnum flokksins er ekki þan- nig að þeir séu spenntir fyrir að gefa forsætisráðuneytið eftir. Útkoman nú er að einu leyti verri en 1978, þegar flokkurinn tapaði miklu fylgi og féll úr stjórn. Flokkur- inn tapar forystu í tveimur kjördæm- um þar sem hann hefur borið höfuð og herðar yfir aðra. Forystumaður annars flokks hefur aðeins einu sinni áður verið fyrsti þingmaður sunnanverðs landsins frá því ein- menningskjördæmi voru aflögð. Það var 1979 þegar sérframboð Eggerts Haukdal setti strik í reikn- ing sjálfstæðismanna, rétt eins og sérframboð Kristján Pálssonar nú. Það hefur ekki áður gerst í Reykja- vík að þingmaður annars flokks sé efsti þingmaður kjördæmisins en nú gerist það í kjördæmi formanns- ins sjálfs, nokkuð sem mörgum Sjálfstæðismönnum gremst mjög. Sú spurning vaknar hvort staða Davíðs Oddssonar formanns hafi veikst eitthvað í kosningunum. Ef undan eru skildar borgarstjórnar- kosningarnar 1978 má segja að þetta sé í fyrsta skipti sem hann er ekki í sigurliði, fyrsta skipti í nær aldarfjórðung sem hann leiðir ekki sigurlið. Þingmenn flokksins sem rætt var við neita því þó að staða Davíðs hafi nokkuð breyst. Hann sé enn óumdeildur leiðtogi og verði það áfram. Það eina sem sé því lík- legt til að kalla á slíkar breytingar sé vilji Davíðs sjálfs til breytinga. Slök útkoma kvenna veldur mörgum í flokknum áhyggjum. Rúmlega helmings fækkun er ekki góð afspurnar og það bætir ekki stöðuna að allir nýir þingmenn flokksins eru karlmenn. „Það þarf að taka á þessu og það verður tekið á þessu,“ sagði Einar Oddur Krist- insson, þingmaður úr Norðvestur- kjördæmi. Þar eru það reyndar ekki aðeins sjálfstæðismenn sem komu konum ekki á þing, aðeins einn af tíu þingmönnum kjördæmisins er kona. Þingmenn sem blaðið hefur rætt við telja margir að fjölga verði konum í ráðherraliði flokksins. brynjolfur@frettabladid.is ■ „Það þarf að taka á þessu og það verður tek- ið á þessu.“ FYLGI SJÁLFSTÆÐISFLOKKS EFTIR KJÖRDÆMUM 2003 1999 Reykjavík norður 35,5% 45,7% Reykjavík suður 38,0% 45,7% Suðvesturkjördæmi 38,4% 44,7% Norðvesturkjördæmi 29,6% 32,0% Norðausturkjördæmi 23,5% 28,8% Suðurkjördæmi 29,2% 39,7% DAVÍÐ ODDSSON Staða hans hefur ekkert breyst eftir kosningar, segja viðmælendur innan Sjálfstæðisflokks.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.