Fréttablaðið - 16.05.2003, Qupperneq 16
18 16. maí 2003 FÖSTUDAGUR
...allt sem segja flarf
stær›ir 35-46 ver› 7.990.- margir litir
Fimleikasamband Íslands
35 ára:
Afmælis-
sýning í
Höllinni
FIMLEIKAR Fimleikasamband Ís-
lands heldur upp á 35 ára afmæli
sitt á morgun.
Af því tilefni verður haldin af-
mælissýning í Laugardalshöll á
sunnudag og hefst hún klukkan
16.00. Þar mun fimleikafólk á öll-
um aldri sýna listir sýnar. Þar á
meðal verður að finna fremsta
fimleikafólk landsins í áhaldafim-
leikum, hópfimleikum og þolfimi.
Í tilefni af afmælinu mun
nefnd UEG, Fimleikasambands
Evrópu í almennum fimleikum,
halda fund í Reykjavík á morgun
og á laugardag. Nefndarmenn
verða síðan heiðursgestir á af-
mælissýningunni á sunnudag. ■
HANDBOLTI Íslandsmeistaratitillinn
sem Halldór fagnaði á dögunum
er sá þriðji í röðinni á undanförn-
um fjórum árum. Auk þess hefur
hann hampað þremur bikarmeist-
aratitlum og þremur deildar-
meistaratitlum með Hafnarfjarð-
arliðinu.
Sigurganga Hauka hefur því
verið mikil á undanförnum árum
og er hún ekki síst fyrirliðanum
Halldóri að þakka. „Það er búið að
ganga vel í gegnum árin og ég er
mjög stoltur af því,“ sagði Halldór
í samtali við Fréttablaðið. Hann
segir að hlutirnir hafi farið að
smella saman hjá Haukum á þess-
ari leiktíð þegar nýtt ár gekk í
garð. „Eftir brösugt gengi framan
af vetri tókum við okkur saman í
andlitinu eftir áramót og spiluð-
um mjög vel eftir það.“
Halldór, sem er 35 ára, hefur
undanfarið verið orðaður við
Fylki úr Árbænum, sem ekki
tefldi fram karlaliði á þessari
leiktíð. Hann segir óljóst hvað
taki við hjá sér á næstu leiktíð og
ætlar að hugsa málin vandlega nú
þegar Íslandsmótinu er lokið. Að-
spurður segir hann ekki útilokað
að vera áfram hjá Haukum. „Það
kemur allt til greina, en ef ég fer
frá Haukum þá fer ég í þjálfun,“
segir Halldór. Ef svo fer segist
hann að öllum líkindum ætla að
spila meðfram þjálfuninni.
Halldór, sem er fæddur og upp-
alinn á Seltjarnarnesi, gekk til liðs
við Hauka árið 1990 og hefur spil-
að með liðinu allar götur síðan, ef
frá er talið árið 1994 þegar hann
spilaði í Noregi. Honum hefur lík-
að vistin hjá Hafnarfjarðarliðinu
afar vel og segir Hauka vera mjög
góðan klúbb til að leika með.
Að sögn Halldórs var Íslands-
mótið í ár jafnara en oft áður.
„Það eru fleiri lið sem eru að
koma og blanda sér í baráttuna,
þannig að það getur allt gerst á
komandi árum,“ sagði nýbakaður
Íslandsmeistarinn að lokum.
freyr@frettabladid.is
MEÐ BIKAR Á LOFTI
Halldór Ingólfsson hampar Íslandsmeistarabikarnum. Halldór skoraði fimm mörk í fjórða
og síðasta leik Hauka og ÍR í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn.
Sexfaldur
meistari
Halldór Ingólfsson, fyrirliði Hauka, hampaði
sínum þriðja Íslandsmeistartitli. Halldór er nú
orðaður við Fylki eftir 12 ár hjá Haukum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Tottenham er sagt vera á höttun-um eftir Ástralanum Mark
Viduka, framherja Leeds United.
Viduka, sem er 27 ára, á enn þrjú
ár eftir af samningi sínum við lið-
ið. Hann gekk til liðs við Leeds frá
Celtic fyrir þremur árum síðan.
Kevin Phillips, framherji Sund-erland, gæti verið á leiðinni til
Middlesbrough. Phillips, sem er 29
ára, hefur lýst því yfir að hann
vilji yfirgefa Sunderland en liðið
féll úr úrvalsdeildinni á nýafstað-
inni leiktíð.
FÓTBOLTI Val er spáð sigri í Lands-
bankadeild kvenna. Niðurstaðan
kemur Helenu Ólafsdóttur, þjálfara
Vals, ekki á óvart eftir gott gengi
liðsins á vormótunum.
„Markmiðið í sumar er að gera
betur en í fyrra,“ segir Helena. „Við
enduðum í 3. sæti og vorum ekki
sáttar við það. Þetta verður erfið
barátta í sumar því Breiðablik, KR
og ÍBV hafa bætt við sig mannskap
frá vormótunum. Við erum ekkert
að spá í þessa spá og setjum okkar
eigin markmið.“
Helena segir Valsliðið næstum
fullmannað fyrir sumarið. Rakel
Logadóttir er komin frá námi í
Bandaríkjunum og Íris Andrésdótt-
ir er byrjuð að leika að nýju eftir
meiðsli. Hins vegar er óvíst
hvenær fyrirliðinn Rósa Steinþórs-
dóttir byrjar að leika og veldur það
Helenu líka áhyggjum sem lands-
liðsþjálfara.
Valur hefur einnig fengið góðan
liðsstyrk fyrir sumarið. Guðbjörg
Gunnarsdóttir kom frá FH, Nína
Ósk Kristinsdóttir frá Reyni Sand-
gerði og Pála Marie Einarsdóttir
frá Haukum. „Þær hafa komið með
nýja vídd inn í liðið og aukinn bar-
áttuanda. Þær eru vanar að þurfa
að berjast fyrir sínu og hafa allar
staðið sig mjög vel.“ ■
HELENA
Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals, segir það
markmið liðsins að gera betur en í fyrra.
Landsbankadeild kvenna:
Markmiðið að gera betur en í fyrra
Valur 176
KR 160
Breiðablik 151
ÍBV 129
Þór/KA/KS 86
Stjarnan 83
Þróttur/Haukar 42
FH 37
■ Fótbolti