Fréttablaðið - 16.05.2003, Page 23

Fréttablaðið - 16.05.2003, Page 23
 Útskriftarsýning myndlistar- og hönnunarnemenda Listaháskóla Íslands stendur nú yfir í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu.  Ríkharður Valtingojer og Helgi Snær Sigurðsson halda sýningu, sem þeir nefna Tvíraddað, í sýningarsal fé- lagsins Íslenskrar grafíkur í Hafnarhús- inu. Sýningin stendur til 25. maí.  Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur yfir yfirlitssýning á verkum Gerðar Helga- dóttur.  Sýning Þorbjargar Höskuldsdóttur í Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5 stendur til 14. maí.  Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir og Pétur Magnússon sýna í Gallerí Skugga þar sem gefur að líta 100% nælon og lakk. Einnig vínylveggfóður með blóma- mótífum og ljósmyndum af þeim ásamt öðrum ljósmyndum og stáli.  Í Hallgrímskirkju stendur yfir sýning á listvefnaði eftir Þorbjörgu Þórðardótt- ur. Verkin eru unnin í ull, hör, sísal og hrosshár. Hugmyndir að verkum sínum sækir Þorbjörg til íslenskrar náttúru og vinnur úr þeim á óhlutbundinn hátt. Sýningin er opin daglega kl 9-17 og lýk- ur 26. maí.  Ella Magg sýnir ný og „öðruvísi“ ol- íumálverk í Listasal Man, Skólavörðu- stíg 14. Sýning hennar stendur til 18 maí og er opin virka daga frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 11-18 og sunnudaga frá kl. 15-18.  Nú stendur yfir einkasýning Markús- ar Þórs Andréssonar í Englaborg, Flókagötu 17. Húsið byggði listmálarinn Jón Engilberts sem vinnustofu og íbúð handa sér og fjölskyldu sinni skömmu eftir stríð. Í húsinu er stór salur sem nú er í fyrsta sinn lagður í hendur utanað- komandi listamanns.  Fimmta alþingiskosningasýning Kristjáns Guðmundssonar hófst í Slunkaríki á Ísafirði á laugardaginn. Að þessu sinni er Kristján með grafíkmyndir í farteski sínu.  Birgir Rafn Friðriksson er með einkasýningu á Næsta bar við Ingólfs- stræti í Reykjavík. Sýningin heitir Portret x og stendur til 7. júní.  Jóna Þorvaldsdóttir sýnir átta svart- hvítar ljósmyndir á Mokka við Skóla- vörðustíg. Myndirnar eru teknar í Sló- veníu, Bandaríkjunum, Portúgal og á Kúbu á árunum 2000 til 2002. Jóna vinnur myndirnar allar í höndum, bæði framköllun og stækkun.  Inger Helene Bóasson sýnir svart- hvítar ljósmyndir í Vínbarnum. Myndirn- ar kallar hún landslag líkamans.  Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er á vegum Stofnunar Árna Magnússonar. Einnig er þar sýning sem nefnist Ís- landsmynd í mótun - áfangar í korta- gerð. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. FÖSTUDAGUR 16. maí 2003 ■ TÓNLIST 25 Ég hef það fyrirvana að fara á þessar sýningar og verð aldrei fyrir vonbrigðum enda alltaf eitt- hvað sniðugt sem krakkarnir eru að gera“, segir tónlistar- og útvarpsmaðurinn dr. Gunni um útskriftarsýningu myndlistar- og hönnunarnemenda Listaháskóla Íslands. „Mér sýnist þetta vera ágætis árgangur í ár en það er samt ljóst að fólk leggur mismikið á sig við sín verkefni enda mun framtíðin væntanlega verða þessu fólki misuppskerurík í beinu sambandi við það.“ Mittmat Fyrir þremur árum stofnaðiElín Ósk Óskarsdóttir söng- kona kór sem hlaut nafnið Söng- sveit Hafnarfjarðar. Stefnan var strax tekin á að kórinn sérhæfði sig í flutningi óperutónlistar. Fyr- ir fáeinum vikum var svo ákveðið að breyta um nafn. Hér eftir skyldi þessi kór heita Óperukór Hafnarfjarðar. „Á sínum tíma ákvað ég líka að alltaf þegar við kæmum fram myndum við vera klædd eins og á galakvöldi. Við notum ekki hefð- bundna kórbúninga heldur eru konurnar í flottum kjólum, hver eftir sínu höfði, og karlmennirnir í smóking,“ segir Elín Ósk. Þetta árið heldur kórinn tvenna vortónleika. Þeir fyrri voru á mið- vikudagskvöldið en þeir síðari í kvöld. Eins og fyrri árin eru tón- leikarnir haldnir í Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafn- arfjarðar. „Eins og á fyrri tónleikum okk- ar flytjum við atriði bæði úr óper- um og óperettum. Við erum með atriði úr óperunni Cavallera Rust- icana, kóra úr Nabucco og I lom- bardi, og svo eftir hlé er röðin komin að óperettunum Leðurblök- unni og Sígaunabaróninum.“ Einsöngvarar með kórnum að þessu sinni verða þau Guðrún Ingimarsdóttir sópran og Þorgeir J. Andrésson tenór. Auk þess hef- ur kórinn á að skipa fjölda lærðra söngvara sem einnig taka þátt í leiðandi hlutverkum. „Svo er ég með alveg frábæran píanóleikara sem er hljómsveitin mín. Það er hann Peter Maté, sem er afskaplega flinkur listamaður.“ En skyldi þetta ekki vera óstjórnleg bjartsýni af Elínu Ósk, að stofna annan óperukór hér uppi á Íslandi án þess að hafa neina starfandi óperu til að byggja starfsemi sína á? „Einhver verður að vera bjart- sýnn. Þetta var draumur hjá mér í mörg ár að stofna kór sem væri í minni deild, óperudeildinni. Ég hef alltaf heillast af þessum sam- hljóm í kórsöng. Svo ákvað ég bara að þetta skyldi ganga. Það hafa líka allir hjálpast að, maður hefur fengið svo gott fólk í lið með sér. Þetta er auðvitað mikil vinna að koma saman svona stóru prógrammi, en þetta er afskap- lega ánægjuleg vinna.“ gudsteinn@frettabladid.is Draumur sem rættist ELÍN ÓSK ÓSKARSDÓTTIR STJÓRNANDI, PETER MÁTÉ PÍANÓLEIKARI, GUÐRÚN INGIMARSDÓTTIR SÓPRAN OG ÞORGEIR J. ANDRÉSSON TENÓR. Óperukór Hafnarfjarðar heldur tónleika klukkan átta í kvöld í Hafnarborg, Hafnarfirði. Kórinn er sköpunarverk Elínar Óskar Óskarsdóttur óperusöngkonu. ✓

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.