Fréttablaðið - 16.05.2003, Page 26
Sími 517 1500 • Sætún 4 • 105 Reykjavík
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Allar Teknos vörur skv. ISO 9001 gæðastaðli.
w w w . i s l a n d s m a l n i n g . i s
ÍSLANDS MÁLNING
akrýlHágæða
innimálning
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
16. maí 2003 FÖSTUDAGUR28
JUST MARRIED 3.45, 5.50 og 8 JOHNNY ENGLISH kl. 2, 4 og 6
DREAMCATCHER kl. 10 BULLETPROOF MONK kl. 8FORSÝND KL. 10 - POWERSÝNING - BI 16
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
kl. 6NÓI ALBINÓI
MATRIX OG MATRIX RELOADED kl. 12
Sýnd kl. 2, 4, 5, 6, 8, 10 og 11 b.i. 16 ára
Sýnd í lúxus kl. 2, 6 og 10
kl. 4 500kr.DIDDA OG DAUÐI KÖTT...TÖFRABÚÐINGURINN kl. 4 og 6
kl. 10SAMSARA
kl. 5THE PIANIST
kl. 8JOHNNY ENGLISH
Sýnd kl. 3, 5, 6, 8, 9 og 11 b.i. 12 ára
Fréttiraf fólki
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20
KVIKMYNDIR Kvikmyndagerðarmað-
urinn Haukur Karlsson kynntist
stripparanum Charles Robert
Onken, eða Charlie, við tökur á
ljósbláu myndinni „Leyndardómar
Skýrslumálastofnunar“, sem sýnd
var á Skjá 1 árið 1999. Vinskapur
tókst á milli þeirra og fékk Hauk-
ur leyfi til þess að fylgjast með
Charlie síðustu dagana sem hann
vann fyrir sér sem atvinnustripp-
ari.
„Við fórum í tiltekinn smábæ
úti á landi þar sem hann tryllti
konurnar,“ segir Haukur en hann
skaut myndina snemma árs 2000.
„Myndin er svo brotin upp með
viðtölum sem eru tekin upp á
löngu tímabili. Meginsöguþráður-
inn er þó þetta ferðalag. Myndin
gengur svolítið lengra en myndir
hafa gert hingað til. Hann er mjög
berorður og hefur sínar skoðanir á
málunum. Þær eru ekkert endi-
lega í takt við hinar almennu skoð-
anir í samfélaginu. Það er nekt í
myndinni og er kannski aðeins
grófari en menn hafa vanist hing-
að til.“
Það komi Hauki á óvart hversu
trylltar konurnar urðu við það að
sjá Charlie fletta sig klæðum.
„Þær káfa og brjálast alveg. Ef
karlmenn myndu haga sér svona á
strippstöðum yrði þeim öllum hent
út af staðnum. Konurnar fá að
ganga miklu lengra.“
Charlie var fyrsti Íslendingur-
inn sem sýndi andlit sitt í erótísk-
um myndaþáttum tímaritsins
Bleikt & Blátt. Haukur segir að
hann hafi einnig setið mikið fyrir í
erlendum blöðum og m.a. tekið
þátt í mjög grófum myndaþáttum.
„Þegar hann var að byrja um 1993
að sitja fyrir í Bleiku & Bláu voru
stelpurnar alltaf með hausinn nið-
ur þannig að það sást aldrei í and-
litin á þeim. Það var svo mikið
„tabú“ að hann var þeirra eina
karlmódel fyrstu fjögur árin. Það
fékkst enginn annar í þetta og
hann var nánast í hverju blaði.
Hann er eini maðurinn á landinu
sem hefur haft atvinnu af sínum
líkama í níu ár. Hann þénaði stórar
fúlgur af þessu. Var með forstjóra-
laun í hverjum mánuði og rúmlega
það.“
Lengi var orðrómur á kreiki um
að Charlie fengi ekki alltaf borgað
í peningum, heldur að hann tæki
því fagnandi að fá að sofa hjá sum-
um af þeim konum sem hann
strippaði fyrir, ef það væri í boði.
„Hann er búinn að liggja með
nokkrum stúlkum yfir ævina.
Sjálfur segist hann vera kynlífsfík-
ill. Honum gekk að minnsta kosti
ágætlega í þessari ferð,“ segir
Haukur og brosir af minningunni.
biggi@frettabladid.is
Í dag frumsýnir Regnboginn heimildarmyndina „Bad Boy Charlie“. Hún fjallar
um stripparann Charlie, sem var atvinnumaður í greininni hér á landi í níu ár.
Strippari
á forstjóralaunum
TÓNLIST „Halldór Laxness“, væntan-
leg breiðskífa íslensku rokksveit-
arinnar Mínus, hefur fengið mjög
góða dóma undanfarið í breskum
tónlistartímaritum. Platan fékk
fullt hús í rokktímaritinu Kerrang
og svo átta af tíu mögulegum í hinu
virta vikublaði NME. Þar er sveitin
sögð vera „hin íslenska Queens of
the Stone Age“.
„Árið 1998 var Mínus fyrsta
harðkjarnasveit Íslands,“ stendur í
umsögninni í NME. „Árið 2001 voru
þeir orðnir þreyttir á hljóm-
hörkunni og komu sér í samband
við Curver, hinn íslenska Aphex
Twin, og gerðu með honum blöndu
af vönduðum hávaða og harðri raf-
tónlist. Núna taka þeir enn eitt
stökkið fram á við og búa til norð-
urskauts-freðhausarokk. Ímyndið
ykkur ef Queens of the Stone Age
hefðu verið með partíin sín í snjó-
skafli en ekki eyðimörkinni.“
Í nýjasta Kerrang fær sveitin
heilsíðu undir sig þar sem meðal
annars er viðtal við Frosta gítar-
leikara. ■
Mínus:
Fær góða dóma
MÍNUS
Er nú á tónleikaferðalagi um Bretland.
Nýja platan hefur fengið mjög góða dóma
í tónlistartímaritum.
Önnur myndin í Matrix-þríleikn-um verður frumsýnd í dag. Bíó-
húsagestum er bent á að eftir að
myndinni lýkur, þegar allur þakka-
listinn hefur rúllað í gegn, verður
sýnt sýnishorn úr þriðju Matrix-
myndinni. Sú verður frumsýnd um
jólin. Tryggustu aðdáendur Matrix-
myndanna geta farið á sérstakar
miðnætursýningar í Háskólabíói um
helgina og séð báðar myndirnar í
einu.
Leikkonan Gwyneth Paltrow hefurekki enn tekið að sér leik í kvik-
mynd eftir að faðir
hennar dó fyrir
átta mánuðum. Á
dögunum lét hún
framleiðendur
kvikmyndarinnar
„I Love Hucka-
bee’s“ vita að hún
væri enn að syrgja
föður sinn og bað þá um að finna
aðra leikkonu í aðalhlutverkið. Þetta
er önnur myndin sem hún hættir við
að leika í vegna þessa. Leikkonan
Naomi Watts, sem sló í gegn í „The
Ring“, er nú orðuð við hlutverkið.
Gwyneth eyðir nú öllum tíma sínum
í London með unnusta sínum Chris
Martin, söngvara Coldplay.
Framleiðendur þriðju Terminator-myndarinnar ákváðu að klippa
flugslys út úr myndinni af virðingu
við þá sem létust í hryðjuverka-
árásunum 11. september 2001. Síð-
ustu ár hefur Arnold Schwarz-
enegger verið að mýkjast upp og
berst nú gegn óþarfa ofbeldi í kvik-
myndum. Hann viðurkenndi á dög-
unum að mörg ofbeldisfull atriði í
nýju myndinni um Tortrímandann
hefðu verið klippt út.
Móðurást
Auðbrekku 2, Kópavogi
Meðganga og brjóstagjöf
Mikið vöruúrval
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 6 og 9
DARKNESS FALLS kl 6, 8 og 10