Fréttablaðið - 16.05.2003, Page 34
36 16. maí 2003 FÖSTUDAGUR
■ Jarðarfarir
L J Ó S M Y N D A S T Ú D Í Ó
P É T U R P É T U R S S O N
Álfur sem byggir upp fólk
Um helgina gefst landsmönn-um kostur á að styrkja SÁÁ
með kaupum á álfinum. „Þetta
er í þrettánda skipti sem álfur-
inn er seldur. Hann er tileinkað-
ur ungu fólki – uppbyggingu á
meðferð fyrir unglinga og upp-
byggingu þessa unga fólks,“
segir Gunnar Ó. Kvaran hjá
SÁÁ. „Álfurinn byggir upp
fólk.“
Landsmenn hafa stutt mikið
við bakið á SÁÁ og tekið vel á
móti álfinum. „Hann er orðinn
fastur liður í þjóðfélaginu og
okkur hefur alltaf verið tekið
afskaplega vel. Við setjum
markið hátt og vonum að lands-
menn taki vel á móti okkur.
Þetta er okkar aðal fjáröflun.“
Safnanir undanfarinna ára
hafa orðið til þess að fjöldi ungs
fólks hefur fengið tækifæri til
þess að snúa við blaðinu og
leggja út í lífið laust við drauga
vímuefnanna. Byggð hefur ver-
ið upp sérstök unglingadeild á
Vogi. „Við fylgjum eftir með-
ferðinni og höldum utan um
þetta unga fólk lengi eftir með-
ferð. Við kennum því að lifa líf-
inu án eiturefna.“ ■
Sakamál á afmælisdaginn
57 ÁRA „Ég verð að vinna á Ísafirði
við að flytja mál; sakamál,“ segir
afmælisbarn dagsins, Róbert Árni
Hreiðarsson lögmaður. „Ég flýg
vestur að morgni og heim að
kveldi,“ segir hann.
Róbert Árni er 57 ára í dag og
finnur ekki mikið fyrir aldrinum.
Nema hvað: „Það hefur dregið úr
úthaldinu í ljúfa lífinu. Það er það
helsta sem ég finn og er svo sem
allt í lagi. Allt hefur sinn tíma og
ljúfa lífið er eins og tímabil í lífi
hvers manns sem allir verða að
reyna en alls ekki að láta vara að
eilífu,“ segir lögmaðurinn sem
vonast til að konan bíði með
kvöldverð þegar hann snýr heim
frá Ísafirði í kvöld. „Það væri
indælt að fá eitthvað gott að borða
yfir kertaljósum heima. Það er
alltaf yndislegt,“ segir Róbert
Árni sem hélt myndarlega upp á
fimmtugsafmælið sitt fyrir sjö
árum. „Þá sló ég upp veislu á Hót-
el Sögu og tók á móti 200 gestum.
Þegar ég verð sextugur er konan
búin að lofa að bjóða mér til Las
Vegas. Ég vona að það standi því
ég er þegar farinn að hlakka til,“
segir Róbert Árni. ■
RÓBERT ÁRNI
200 manns á Sögu á fimmtugsafmælinu – stefnir á Las Vegas sextugur.
Afmæli
RÓBERT ÁRNI HREIÐARSSON
■ lögmaður er 57 ára í dag. Hann verð-
ur á ferð og flugi því hann þarf að flytja
sakamál vestur á Ísafirði í dag. Hann von-
ar þó að konan bíði heima með kertaljós
og góða steik þegar hann snýr aftur með
Fokkernum í kvöld.
Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154
www.teflon.is
LAKKVÖRN
BRYNGLJÁI
Á BÍLINN!
Blettun-djúphreinsun-alþrif.
10.30 Elín Guðjónsdóttir, Laugarásvegi
16, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju.
13.30 Halldóra Haraldsdóttir, Fífu-
hvammi 39, Kópavogi, veður jarð-
sungin frá Digraneskirkju.
13.30 Hansína Sigurbjörg Hjartardóttir
verður jarðsungin frá Bústaða-
kirkju.
13.30 Hrefna Kristjánsdóttir, Arnar-
tanga 46, Mosfellsbæ, veður jarð-
sungin frá Fossvogskapellu.
13.30 Sigríður Sóley Sveinsdóttir frá
Þykkvabæjarklaustri, verður jarð-
sungin frá Grafarvogskirkju.
13.30 Stefán Bryngeir Einarsson, Keilu-
síðu 12c, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju.
15.00 Baldvin Árnason, Miklubraut 68,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík.
15.00 Elsa Georgsdóttir, Hátúni 12,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Laugarneskirkju.
FYRIR UNGA FÓLKIÐ
Gunnar Ó. Kvaran hvetur landsmenn
til að taka vel á móti sölufólki álfsins um helgina.
Fjáröflun
■ Álfurinn verður til sölu um helgina.
Sala hans er aðalfjáröflun SÁÁ. Lands-
menn hafa ávallt tekið álfinum vel.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T