Fréttablaðið - 16.05.2003, Blaðsíða 36
Íslenskir bakarar, þjónar ogmatreiðslumenn fara sigurför
um heiminn. Hafliði Ragnarsson,
kökuskreytingarmeistari í Mos-
fellsbakarí, náði þeim einstaka ár-
angri að lenda í öðru sæti í virtri
alþjóðlegri keppni í súkkulaði-
skreytingum. Mjótt var á munum
en heimamaður frá sjálfu
súkkulaðilandinu Belgíu marði
sigur.
Hafliði verður heiðraður á bak-
arahátíð sem stendur yfir í
Smáralind. Í dag fer þar fram
baksturskeppni bakaríanna. Hann
segir svona samkomur mikilvæg-
ar. „Það er mikilvægt fyrir þá sem
eru að læra og þá sem vinna við
þetta að verða sýnilegir. Við búum
til mat og það er ekkert sem veit-
ir okkur meiri ánægju en að finna
að kúnninn er ánægður. Svo eru
menn að uppfylla eigin metnað og
keppa að því að ná sem bestum ár-
angri.“ Bakarahátíðin stendur
fram á sunnudag og spennandi að
sjá hvað meistarar iðnarinnar eru
að fást við. Bakarahátíðin er öll-
um opin og fólki gefst kostur á að
sjá og smakka.
Hafliði var valinn fulltrúi í bel-
gísku keppnina eftir kökumeist-
arakeppni í Danmörku. Íslenska
liðið hefur náð frábærum árangri
í þeirri keppni undanfarin ár.
Hann segir íslenska bakara ekki
jafn fasta í hefðinni og margar
aðrar þjóðir. „Íslenskir neytendur
eru tilbúnir til að prófa eitthvað
nýtt og það gefur okkur tækifæri
til að þróa áfram það sem við
erum að fást við.“ Hann bætir því
við að einhverra hluta vegna séu
íslenskir bakarar mjög opnir fyrir
nýjungum og fljótir að tileinka
sér nýja tækni og þekkingu.
Mikill metnaður er hjá íslensk-
um bökurum. Hafliði segir þann
metnað ekki ná út fyrir allt. Stað-
reyndin sé sú að mikil samvinna
sé á milli manna og allir séu boðn-
ir og búnir að hjálpa til við að ná
sem bestum árangri. „Við vinnum
mikið saman. Uppskriftir eru ekki
leyndarmál. Uppskrift er bara
uppskrift, það er maðurinn sem
vinnur með hana sem gerir hana
að einhverju.“
haflidi@frettabladid.is
Hrósið 38 16. maí 2003 FÖSTUDAGUR
Ég er kominn í stjórnmálafræðiog tók tvö próf í vor,“ segir Loft-
ur Jóhannsson, formaður Félags
flugumferðarstjóra, sem stendur í
ströngu eftir gagnrýni sem fram
kom í skýrslu Ríkisendurskoðunar
þar sem ríkisvaldið er hvatt til að
láta af linkind gagnvart launakröf-
um flugumferðarstjóra. „Ég veit að
það hafa margir verri laun en við
en flugumferðarstjórar eru sam-
stilltur hópur sem hefur náð ár-
angri í launabaráttu sinni,“ segir
formaðurinn.
Loftur er fæddur og uppalinn á
Hólmavík þar sem hann sleit barns-
skónum. Hann hóf störf í flugum-
ferðarstjórn fyrir tæpum 30 árum
og hefur víða komið við í þeim efn-
um:
„Ég var um sjö ára skeið við
flugumferðarstjórn í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum við
Persaflóa og líkaði þar vel,“ segir
Loftur sem tók eiginkonu sína,
Katrínu Albertsdóttur, með sér í
það ferðalag og þar fæddust tvö af
þremur börnum þeirra. „Það var
gott að vera við Persaflóa, vin-
gjarnlegt fólk og veðrið alltaf gott.
Ég hefði vel getað hugsað mér að
vera þar lengur,“ segir formaður
Félags flugumferðarstjóra og hef-
ur ekki hug á að gefa tommu eftir í
baráttu fyrir eigin kjörum og
starfsbræðra sinna sama hvað Rík-
isendurskoðun segir. ■
Persónan
LOFTUR JÓHANNSSON
■ er formaður Félags flugumferðar-
stjóra en þeir hafa sem kunnugt er náð
umtalsverðum árangri í kjarabaráttu sinni
á undanförnum árum. Við það hefur
Ríkisendurskoðun gert athugasemdir
í nýrri skýrslu.
Fagkeppni
■ Hafliði Ragnarsson er einn fremsti
bakari þjóðarinnar. Hann hefur unnið til
fjölda alþjóðlegra verðlauna og segir
mikinn metnað hjá stéttinni.
...fær lóan fyrir að kveða burt
snjóinn og leiðindin.
Fréttiraf fólki
Úr Persaflóa
í kjarabaráttu
Framsóknarmönnum hefurverið legið á hálsi fyrir að
punda peningum ótæpilega í
auglýsingar í kosningabarátt-
unni. Andstæðingum þeirra hef-
ur leikið nokkur forvitni á að
vita hvernig herlegheitin voru
fjármögnuð og eftir að fréttir
bárust af tveimur ungum
drengjum sem hlupust á brott
með söfnunarbauk Samfylking-
arinnar á kosningahátíð hennar í
Hásölum í Hafnarfirði hafa
böndin borist að Framsókn. Rán-
ið var framið rétt eftir miðnætti
á laugardagskvöld fyrir framan
nefið á gjaldkera flokksins og í
kjölfarið hefur þeirri kenningu
verið varpað fram að væntan-
lega hafi hlaupagikkirnir verið á
vegum Framsóknarflokksins og
þarna tekist að bæta nokkrum
krónum í auglýsingasjóð flokks-
ins. Þjófarnir eru hins vegar
ekki fundnir og því liggja engar
játningar fyrir sem styðja þessa
kenningu.
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að brúðkaup-
ið á Bessastöðum tengist á engan hátt Kára-
hnjúkavirkjun þótt sýslumaðurinn í Hafnar-
firði sé bróðir forstjóra Landsvirkjunar.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Í Panama.
Í Alsír.
The Matrix Reloaded.
Erum í sumarskapi
20% afsláttur í dag
Undirfataverslunin
Ég og Þú
Laugavegi 67 sími 551 2211
LOFTUR JÓHANNSSON
Gæti vel hugsað sér að búa til langframa við Persaflóa þar sem fólkið er vingjarnlegt og
veðrið alltaf gott.
Grunnregla nr. 12 á blindum
stefnumótum: Segðu svolítið
frá sjálfum þér...
Imbakassinn eftir Frode Øverli
Skjár 2 í
haust
SJÓNVARP „Við þurfum ekki fullt
af fólki. Það verður sama dag-
skrárstjórn,“ segir Kristinn Þ.
Geirsson, framkvæmdastjóri
Skjás eins um Skjá tvo sem
hleypt verður af stokkunum í
haust. Skjá tveimur verður
dreift á Breiðbandi Landsímans,
sem nú nær til 33 þúsund heim-
ila á landinu og eykst notenda-
fjöldinn um 3-5000 á ári. Seld
verður áskrift að Skjá tveimur.
Kristinn er þögull sem gröfin
um væntanlega dagskrá á Skjá
tveimur og hvernig hún verði
frábrugðin Skjá einum: „Þetta
kynnum við í ágúst. Fólk verður
að bíða spennt þangað til,“ segir
hann en lofar þó hagstæðu
áskriftarverði þó ekki sé gefið
upp hvort það verði hærra eða
lægra en það sem nú þekkist hjá
Stöð 2: „Þarna verður bæði inn-
lent og erlent efni og þetta verð-
ur spennandi kostur á sjónvarps-
markaðnum,“ segir Kristinn. Ef
áætlanir standast hefjast út-
sendingar á Skjá tveimur í sept-
ember. ■
SÚKKULAÐIMEISTARI
Hafliði Ragnarsson, kökugerðarmeistari í Mosfellsbakaríi, verður heiðraður á bakarahátíð í
Smáralind í dag. Hann náði öðru sæti í virtri keppni í súkkulaðiskreytingum sem haldin
var í súkkulaðilandinu mikla, Belgíu.
Sætir sigrar
bakaranna
SKJÁR EINN
Eignast bróður í haust.
Óskar Jónasson, kvikmynda-leikstjórinn snjalli, situr nú
við og skrifar ákaft svokallað
„story board“ fyrir næstu kvik-
mynd sína. Hún mun fjalla um
ævintýri töframannsins Skara
skrípó sem er einskonar alt-
eregó kvikmyndaleikstjórans
þannig að Óskar verður þarna
allt í öllu. Fyrirhugað er að
hefja tökur í sumar eða haust.
Fréttiraf fólki
Ég finn yfirleitt
mest gums á
milli ÞESSARA
tveggja!
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T