Fréttablaðið - 22.05.2003, Síða 4
4 22. maí 2003 FIMMTUDAGUR
Hvernig verðu sumarfríinu?
Spurning dagsins í dag:
Hvernig líst þér á að Halldór Ásgríms-
son verði forsætisráðherra?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
17,9%Verð heima við
14%Óákveðin(n)
39,6%
28,5%Ferðast til útlanda
Ferðast innanlands
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Júróbíll
OPEL ASTRA 11/98.
Ekinn 60 þ. km. Vél 1200 cc. Beinskiptur.
Verð 790 þ. kr. www.toyota.is
„Ein bisschen Frieden, ein bisschen Sonne.“
Kauptu Júróbíl fyrir 24. maí.
Þú gætir unnið bíl
til ókeypis afnota í heilt ár!
Niðurskurður hjá lögreglunni í Reykjavík:
Ólga meðal lögreglumanna
LÖGGÆSLA Niðurskurður er fyrir-
hugaður hjá lögreglunni í Reykja-
vík á þessu ári. Er með þessu verið
að bregðast við fjörutíu milljóna
króna halla sem varð á rekstrinum í
fyrra. Kristján Ingi Kristjánsson,
formaður Félags íslenskra rann-
sóknarmanna, segir mikla ólgu
ríkja meðal lögreglumanna og að
ekki verði unað við frekari niður-
skurð í Reykjavíkurliðinu.
Kristján segir að vegna niður-
skurðar sem þegar hafi komið til
framkvæmda hafi myndast gríðar-
legur málahali hjá rannsóknardeild-
um. „Vegna fækkunar lögreglu-
manna er fyrirsjáanlegt að lítill tími
gefst til frumrannsókna en tíminn
er einn versti óvinur rannsókna
flókinna mála. Í dag erum við að
forgangsraða forgangsmálum. Því
lengri tími sem líður þar til rann-
sókn mála getur hafist, því minni
líkur eru á að mál upplýsist. Sú stað-
reynd hlýtur að koma borgarbúum
illa.“
Fram hefur komið að meðal þess
niðurskurðar sem fyrirhugað er að
grípa til er fækkun manna á bak-
vöktum. Þá verði færri nýráðningar
og sumarafleysingar. ■
Fjárfestingar lífeyrissjóða:
Horft til
útlanda
FJÁRFESTINGAR Lífeyrissjóðir hafa
einkum horft til fjárfestinga erlend-
is og lítið fjárfest í ríkistryggðum
skuldabréfum það sem af er árinu.
Þetta kemur fram í útreikningum
Greiningar Íslandsbanka á yfirlit-
um frá Seðlabanka. Þar kemur í ljós
að heldur virðist draga úr sókn líf-
eyrissjóðanna í sjóðfélagalán. Á
fyrsta ársfjórðungi voru húsbréf að
því er virðist eingöngu keypt til að
mæta afborgunum eldri bréfa.
Greiningardeildin áætlar að
sjóðirnir hafi keypt erlend hluta-
bréf fyrir fimm milljarða, innlend
fyrir milljarð og skuldabréf opin-
berra aðila fyrir sex milljarða. ■
Dóttir Nínu véfengir
listaverk merkt henni
Una Dóra Copley hefur farið fram á lögreglurannsókn á 13 verkum sem nýlega fundust og
merkt eru Nínu Tryggvadóttir. Hún fullyrðir að verkin séu fölsuð. Umboðsmaður verkanna
vill fá þau rannsökuð en á í fá hús að venda.
MYNDLIST „Ég er kominn í afar sér-
kennilega og erfiða stöðu. Lista-
safn Íslands hafnar því að skoða
myndirnar en ég hafði reyndar
áður fengið vilyrði þar um frá
Viktori Smára Sæmundssyni for-
verði. Nú bera þeir við önnum,“
segir Bjarni Sigurðsson í Gallerí
Smiðjunni.
Una Dóra Copley hefur sent
fax til lögreglu þar sem hún fer
fram á að 13 verk eftir Nínu
Tryggvadóttur, sem nýlega komu í
dagsljósið og eru í umboði Bjarna,
verði rannsökuð. Aðalsteinn Ing-
ólfsson er eins konar umboðsmað-
ur Unu Dóru hér á landi og hann
segir að hún hafi í gær fengið úr-
klippu úr Fréttablaðinu sem birti
ljósmyndir af nokkrum verkanna.
„Hún fullyrðir að þau séu öll
fölsuð og séu ekki eftir móður
sína,“ segir Aðalsteinn, sem sjálf-
um finnst ýmislegt sérkennilegt
við þennan fund.
„Allt er þetta mjög undarlegt.
Til dæmis má tímasetningin heita
sérkennileg og undarlegt að ein-
hvern láti sig dreyma um að fá al-
mennilegt verð fyrir verkin í ljósi
þess sem á undan er gengið.
[Stóra málverkafölsunarmálið.]
Varðandi myndirnar sjálfar, þá er
þar eitt og annað sem gengur upp
og annað ekki. Til dæmis hefur
enginn áður séð klippimyndir eft-
ir Nínu frá námsárunum 1937 til
1939. Þá eru myndir gerðar aftan
á gamlar myndir sem virðast vera
eftir Þorvald Skúlason, en þau
þekktust ekki á þessum árum.
Mjög mörg spurningarmerki og
grunsamlegt hversu erfitt virðist
vera að ná í eigandann.“
Bjarni í Smiðjunni hafði frum-
kvæði að því að verkin yrðu rann-
sökuð og leitaði til LÍ löngu áður en
efasemdir Unu Dóru komu fram.
Nú segist hann ekki eiga í önnur hús
að venda með rannsókn á verkunum
en til Ólafs Inga Jónssonar í Mork-
inskinnu. Ólafur Ingi er hins vegar
helsti ákærandi í Stóra málverka-
fölsunarmálinu en dóms er nú beðið
í því máli. „Það er nú ekki mjög
spennandi og lái mér hver sem vill.“
Fyrirhugaðri sýningu á verkunum
hefur verið slegið á frest um
óákveðinn tíma. Bjarni segir eig-
andasögu fyrirliggjandi og er hann
nú að kryfja til mergjar áreiðan-
leika hennar sjálfur.
Dr. Ólafur Kvaran, forstöðumað-
ur Listasafns Íslands, segir tíma-
skort sökum manneklu og fjöl-
margra verkefna sem setið hafa á
hakanum vegna Stóra málverka-
fölsunarmálsins ráða því alfarið að
safnið vísaði verkunum frá sér.
jakob@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Skatta- og lögfræði-
svið endurskoðunarfyrirtækisins
KPMG segir Alþingi í nokkrum til-
vikum hafa brotið gegn stjórnar-
skránni með framsali á skattlagn-
ingarvaldi til ráðherra.
Alls eru um 70 tegundir skatta
og gjalda í skrá sem KPMG hefur
uppfært og nær yfir skatta og
gjöld sem innheimt eru af fyrir-
tækjum.
„Það sem vekur mesta athygli
þegar farið er yfir skrána er að svo
virðist sem í nokkrum tilvikum
hafi löggjafinn framselt skatta-
lagningarvald sitt til fram-
kvæmdavaldsins með þeim hætti
að stangist á við stjórnarskrá lýð-
veldisins,“ segir KPMG. Dæmi
um þetta segir KPMG vera í lögum
um ábyrgðasjóð launa vegna gjald-
þrota þar sem félagsmálaráðherra
sé falið að ákveða hlutfall ábyrgða-
gjalds af gjaldstofni:
„Hér er félagsmálaráðherra
veitt heimild til að ákveða skatt-
stofn, að vísu innan tiltekinna
marka. Fræðimenn hafa almennt
verið sammála um að framsal sem
þetta brjóti á við fyrrgreind
ákvæði stjórnarskrárinnar,“ segir
KPMG. ■
Sprengjuárásirnar á Balí:
Höfuðpaur-
inn ákærður
INDÓNESÍA, AP Saksóknarar í
Indónesíu hafa gefið út formlega
ákæru á hendur meintum skipu-
leggjanda hryðjuverkaárásanna á
Balí í október á síðasta ári. Gert er
ráð fyrir því að réttarhöldin hefjist
innan tíu daga.
Talið er að
Imam Samudra
sé einn af leiðtog-
um Jemaah
Islamiyah, indó-
nesískra hryðju-
v e r k a s a m t a k a
með tengsl við al
Kaída. Hann við-
urkennir að hafa
tekið þátt í
sprengjuárásunum en sýnir engin
merki um iðrun. Ef Samudra verður
fundinn sekur á hann yfir höfði sér
dauðarefsingu.
Auk Samudra eru 32 aðrir í haldi
lögreglu vegna gruns um aðild að
árásunum. Þegar eru hafin réttar-
höld yfir einum þeirra. ■
Móðir myrti börnin sín:
Ferðaðist um
með líkin
NEW YORK, AP Bandarísk kona á
fimmtugsaldri hefur verið ákærð
fyrir að myrða þrjú börn sín í New
York fyrir hartnær tveimur áratug-
um. Lík barnanna fundust í gámi í
Arizona í síðustu viku.
Að sögn lögreglu flutti konan lík-
in með sér þegar hún yfirgaf New
York og kom þeim loks fyrir í
geymslu í Safford í Arizona árið
1991. Þá hafði hún ferðast um með
líkin í tæpan áratug.
Börnin, sem fæddust á árunum
1981 til 1984, létust öll skömmu eft-
ir fæðingu. Andlátin voru aldrei til-
kynnt lögreglunni og fjölskyldu
konunnar var ekki kunnugt um
barnsfæðingarnar. Konan á átta
börn á lífi. ■
LÖGREGLAN Í REYKJAVÍK
Kristján segir að þegar hafi verið skorið
niður í röðum rannsóknarlögreglumanna.
Nefnir hann fækkun á helgar- og kvöld-
vöktum.
GÖGN LÖGÐ
FRAM
Meðal sönnunar-
gagna var fartölva
í eigu Samudra.
ALÞINGI
KPMG segir framsal Alþingis á skattlagningarvaldi til ráðherra vera brot á stjórnarskránni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
HLJÓÐFÆRALEIKARINN
Una Dóra Copley fullyrðir að þessi mynd
sé ekki eftir móður sína, Nínu Tryggvadótt-
ur, og krefst rannsóknar á 13 verkum sem
nýlega fundust og sögð eru eftir Nínu. Lög-
reglan hefur enn ekki aðhafst í málinu.
BJARNI SIGURÐSSON
Á ekki í önnur hús að venda en Morkin-
skinnu til Ólafs Inga forvarðar, vilji hann fá
verkin rannsökuð.
UNA DÓRA COPLEY
Hún sá ljósmyndir af verkunum í Fréttablaðinu og segir þau fölsuð. Hún krefst lögreglu-
rannsóknar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
KPMG finnur að sköttum og gjöldum:
Skattar í andstöðu við stjórnarskrá