Fréttablaðið - 22.05.2003, Qupperneq 6
6 22. maí 2003 FIMMTUDAGUR
■ BráðalungnabólgaGENGI GJALDMIÐLABandaríkjadalur 73,17 -0,69%
Sterlingspund 120,24 -0,02%
Dönsk króna 11,53 -0,18%
Evra 85,64 -0,19%
Gengisvístala krónu 120,43 -0,36%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 380
Velta 11.044,0 milljónir
ICEX-15 1.439,5 0,60%
Mestu viðskipti
Baugur Group hf. 1.656.839.449
Bakkavör 406.847.500
Pharmaco hf. 336.881.344
Mesta hækkun
Pharmaco 2,73%
Sjóvá-Almennar 2,66%
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna 2,08%
Mesta lækkun
Þormóður rammi - Sæberg -4,65%
Nýherji -3,80%
Kögun -2,80%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8488,6 0,0%
Nasdaq*: 1482,2 -0,6%
FTSE: 3.926,2 -1,1%
DAX: 2.818,7 -0,7%
NIKKEI: 8.018,5 -0,5%
S&P*: 920,3 +0,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Lögreglan gerði húsleit í söluturni íReykjavík og lagði hald á áfengi og
fíkniefni. Hvað heitir verslunin?
2Bandaríska sendiráðinu í höfuðborgSádi-Arabíu hefur verið lokað tíma-
bundið vegna ótta við hryðjuverkaárásir.
Hvað heitir borgin?
3Hvað kallast sjóðurinn sem stofnaðurhefur verið til að hjálpa framsæknum
tónlistarmönnum að koma sér á framfæri
erlendis?
Svörin eru á bls. 38
Söluskrifstofan er á
Suðurlandsbraut 24
Opið alla virka daga 9-17.
Þjónustuverið er opið virka daga 9-17, laugardaga 10-16 og sunnudaga 11-15,
sími 5 500 600. Þú getur einnig skoðað og bókað á IcelandExpress.is.
Lág fargjöld. Enginn bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl.
Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
STJÓRNMÁL „Þetta var góður fund-
ur og margar mættu,“ segir Hulda
Ólafsdóttir, talsmaður hóps
kvenna innan Samfylkingarinnar
sem kom saman í fyrrakvöld til að
ræða stöðuna í ljósi kosninga-
úrslita.
Hátt í 30 konur mættu til fund-
arins, sem boðað var til með tölvu-
pósti milli kvennanna. Fundurinn
var ekki auglýstur að öðru leyti og
var lokaður körlum.
Hulda segir að hópurinn, sem
láti sig jafnréttismál miklu
varða, hafi hist
reglulega í
kosningabarátt-
unni og hafi að
þessu sinni
komið saman til
að gera upp bar-
áttuna. Hún seg-
ist ekki vilja
taka undir að
þarna sé á ferð-
inni hulduher til stuðnings Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur borg-
arfulltrúa, sem er án embættis
eftir að hafa misst af þingsæti í
kosningunum.
„Staða Ingibjargar Sólrúnar
var rædd og ýmsar hugmyndir
ræddar. Við vorum sammála um
að finna verði lausn á hennar mál-
um en þetta var ekki fundur
ákvarðana. Þarna var ekki endi-
lega verið að fjalla um það hver á
að vera formaður,“ segir Hulda.
Hulda, sem á rætur í Kvenna-
listanum og er einn náinna sam-
herja Ingibjargar Sólrúnar, segir
að hópurinn sem sat fundinn hafi
ekki verið konur sem uppruna
eiga í Kvennalistanum heldur
hafi þarna verið um að ræða
breiðan hóp Samfylkingar-
kvenna. Hún segir að konurnar
hafi rætt almennt niðurstöðu
kosninganna og ekki síst stöðu
kvenna í ljósi úrslitanna.
„Jafnréttismálin voru mjög á
dagskrá í okkar baráttu. Það er
dapurlegt að konum á þingi skuli
hafa fækkað í heildina. En við
erum sáttar með okkar flokk
hvað varðar þingmannafjölda.“
Hulda segir að Ingibjörg Sól-
rún hafi komið á fundinn og lýst
sinni afstöðu og greiningu á stöð-
unni eftir kosningar. Hún segir að
„Hulduhópurinn“ hafi ákveðið að
halda áfram að hittast.
„Við ætlum að halda áfram og
hittast fljótlega aftur. Við munum
áfram að vinna að því að móta
framtíðarsýn flokksins,“ segir
Hulda.
rt@frettabladid.is
NOREGUR Yfirmenn norska
stórfyrirtækisins Prior
telja eina möguleika
norskra afurðafyrirtækja
bænda sameiningar, gangi
Noregur í Evrópusamband-
ið. Telja þeir að sameina
þyrfti Tine, stærsta mjólk-
ursamlagið, Norsk kjött,
stærsta fyrirtækið í rauðu
kjöti, og Prior, stærsta ali-
fuglafyrirtækið, til að mæta
aukinni samkeppni.
Að sögn Gabriel Joa,
stjórnarformanns Prior, er
full ástæða til þess að fyrir-
tækin hefji meira samstarf
sín á milli til þess að undirbúa
jarðveginn ef til inngöngu í Evr-
ópusambandið kæmi. ■
EGYPTALAND Helsti ráðgjafi Osama
bin Laden skorar á múslíma um
allan heim að gera sjálfs-
morðsárásir á vestræn sendiráð
og fyrirtæki í Arabaríkjum.
Í myndbandi sem sýnt var á
sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera
hvetur Ayman al-Zawahri múslí-
ma til þess að ráðast á Banda-
ríkjamenn Breta, Ástrala og
Norðmenn. Al-Zawahri, sem er
Egypti, ítrekar að Írakar séu ekki
einir í baráttunni gegn Bandaríkj-
unum og segist vilja hrekja fólk af
vestrænum uppruna burt frá Ar-
abíuskaganum. Svo virðist sem
upptakan hafi verið gerð í upphafi
stríðsins í Írak.
Al-Zawahri er jafnan kallaður
hægri hönd bin Laden. Á tíunda
áratugnum leiddi hann vígasveitir
sem reyndu að hrekja ríkisstjórn
Egyptalands frá völdum. Hann
hefur farið huldu höfði síðan
Bandaríkjamenn gerðu innrás í
Afganistan fyrir hálfu öðru ári.
Sérfræðingar bandarísku leyni-
þjónustunnar telja að hann haldi
til í fjallahéruðum við landamæri
Afganistan og Pakistan ásamt bin
Laden. ■
Flaska í höfuð:
Engin
refsing
DÓMSMÁL Nítján ára pilti sem sló
annan pilt ítrekað með bjórflösku
í höfuð og bak var ekki gerð refs-
ing að sinni í Héraðsdómi Vest-
fjarða.
Árásina gerði pilturinn í sept-
ember 2001 fyrir utan veitinga-
staðina Sjallann og Krúsina á Ísa-
firði. Fórnarlambið fékk glóðar-
auga og fleiri andlitsáverka en
náði sér að fullu.
Dæmdi pilturinn segist hafa
ráðist á hinn þegar sá neitaði að
biðjast afsökunar á því að hafa
sparkað í þriðja piltinn tveimur
vikum fyrr. Haldi hann sig til hlés
í tvö ár fellur refsing niður. ■
BRÁÐALUNGNABÓLGAN KOMIN
TIL AÐ VERA Tommy Thompson,
heilbrigðisráðherra Bandaríkj-
anna, telur að faraldur bráða-
lungnabólgu muni berast til Evr-
ópu og Bandaríkjanna síðar á ár-
inu. Thompson segir að sjúkdóm-
urinn sé kominn til að vera og
dauðsfalla megi vænta í öllum
heimsálfum áður en langt um líð-
ur.
AUKIN SÝKINGARHÆTTA VEGNA
FLÓÐA Talsmenn Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar segjast ótt-
ast að tilfellum bráðalungnabólgu
muni fjölga verulega samfara ár-
legum sumarflóðum í Kína. Þá
flæðir vatn inn í skólpkerfi með
þeim afleiðingum að skólp getur
borist út í umhverfið og inn á
heimili fólks. Veiran berst ekki
með vatni en getur lifað í saur.
VARAÐ VIÐ FERÐALÖGUM TIL
TAÍVANS Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unin hefur varað
almenning við því
að ferðast til
Taívans. Filipps-
eyjar hafa aftur á
móti verið teknar
út af lista stofn-
unarinnar yfir
þau landsvæði
sem ferðamönn-
um er ráðlagt að forðast.
FORSETINN Í LÆKNISSKOÐUN Hu
Jintao, forseti Kína, gekkst undir
læknisskoðun til þess að ganga úr
skugga um að hann væri ekki
smitaður af HABL-veirunni þeg-
ar hann hittir George W. Bush
Bandaríkjaforseta á fundi átta
helstu iðnríkja heims í Frakk-
landi í næsta mánuði.
Samstarfsmaður bin Laden hvetur til blóðsúthellinga:
Egnir múslíma
til mannvíga
AL-ZAWAHRI VIÐ
HÆGRI HÖND BIN LADEN
„Krossfararnir og gyðingarnir skilja aðeins
blóðsúthellingar og morð,“ sagði al-Zawahri
og hvatti múslíma til þess að taka hryðju-
verkamennina sem réðust á Bandaríkin 11.
september 2001 sér til fyrirmyndar.
Norsk afurðafyrirtæki:
Sameiningar
eini möguleikinn
PRIOR
Stærsta norska alifuglafyrirtækið
hefur nokkrar áhyggjur af samkeppnis-
stöðu sinni.
Ræddu framtíð
Ingibjargar Sólrúnar
Kvennahópur innan Samfylkingar hittist á lokuðum fundi til að
ræða stöðu kvenna í ljósi kosningaúrslita. Vilja að lausn verði fundin
varðandi Ingibjörgu Sólrúnu.
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Hópur kvenna kom saman í fyrrakvöld til að ræða stöðu hennar í ljósi kosningaúrslitanna.
„Staða
Ingibjargar
Sólrúnar var
rædd og ýms-
ar hugmyndir
ræddar.
FR
ÉT
TA
B
LA
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
■ Viðskipti
KAUPHALLIR SAMEINAST Sænska
fyrirtækið OM, sem á Kauphöllina
í Stokkhólmi, og Kauphöllin í
Helsinki munu sameinast. Kunnug-
ir segja samrunann styrkja sam-
starfsgrunn norrænu kauphallanna
sem Kauphöll Íslands er aðili að.
TVÖFALT MEIRI EFTIRSPURN Fag-
fjárfestar óskuðu eftir að kaupa 40
milljón hluti í lokuðu útboði Opinna
kerfa Group. 21 milljón hluta var í
boði og eftirspurnin því tvöföld á
við framboðið. Hlutirnir seldust á
genginu 19,5 og var andvirði við-
skiptanna 410 milljónir króna.
NÝR FORMAÐUR Friðbert
Traustason, formaður Sambands
íslenskra bankamanna, hefur ver-
ið kosinn formaður Landssam-
taka lífeyrissjóða í stað Þóris
Hermannssonar. Þórir hefur ver-
ið formaður í fjögur og hálft ár,
en gaf ekki kost á sér áfram.