Fréttablaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 8
8 22. maí 2003 FIMMTUDAGUR Sleggjudómar? Heldur hann, að ég sé þeirrar gerð- ar, að ég laumist heim til hans í einbýlishúsahverf- ið í Fossvogi á kvöldin með sleggju og leggi fimm milljón króna jeppann hans í rúst? Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor um kolllega sinn Stefán Ólafsson. DV, 21. maí. Allt á uppleið Yfirborð Kleifarvatns er að hækka. Guðmundur Sigurðsson, umsjónarmaður fólk- vangsins í Krýsuvík. DV, 21. maí. Draumórafólkið Þetta er meira eða minna alveg meinlaust fólk sem hefur bara lent illa út af brautinni. Starfsmaður í grennd við söluturninn Drauminn. Orðrétt HEILSUVERND „Þetta er söguleg stund“ sagði Gro Harlem Brundtland, yfirmaður Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar, þegar fyrsti alþjóðasáttmálinn gegn reykingum var samþykktur á ár- legri ráðstefnu aðildarríkjanna 191 í Genf. Viðræður um innihald sáttmálans höfðu staðið yfir í fjögur ár. Talið er að á þeim tíma hafi um 20 milljónir manna látist af völdum reykinga. Samningur- inn tekur gildi þegar hann hefur verið staðfestur af 40 þjóðum. Í sáttmálanum er meðal annars kveðið á um bann við auglýsingum á tóbaki. Í Bandaríkjunum og fleiri löndum verður þó aðeins um að ræða takmarkanir þar sem algert bann bryti í bága við stjórnar- skrárákvæði um tjáningarfrelsi. Tóbaksframleiðendum verður gert skylt að setja áberandi aðvaranir á vörur sínar auk þess sem gripið verður til ýmissa ráðstafana til þess að draga úr óbeinum reyking- um og smygli á tóbaki. Markmiðið með sáttmálanum er einkum að stöðva söluherferðir sem beint er gegn ungmennum og breyta viðhorfi almennings til reykinga. Lögð verður sérstök áhersla á að framfylgja ákvæðum samningsins í þróunarlöndum þar sem reykingar eru sívaxandi vandamál. ■ VIÐSKIPTI Íslenska lyfjafyrirtækið Pharmaco er meðal þeirra fyrir- tækja sem hlutu verðlaunin „Fjárfestir ársins 2002“ í Búlgar- íu. Þetta var í sjöunda sinn sem Fjárfestingaráð Búlgaríu og búlgarska efnahagsráðið veittu verðlaunin og hlaut Pharmaco þau fyrir framlag sitt til einka- væðingar. „Þessi verðlaun eru merki þess að búlgörsk yfirvöld kunna vel að meta það sem við erum að gera hér á sviði fjárfestingar í lyfjaiðnaði,“ sagði Kristján Sverrisson, sölu- og markaðsstjóri Pharmaco. ■ FJÖLMIÐLAR Hlutafé í DV hefur ekki verið aukið, en í vetur tilkynnti blaðið að von væri á nýju hlutafé í mars síðastliðnum. „Þau mál eru ekki frágengin og í raun ekkert af þeim að frétta,“ segir Örn Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri blaðsins. Aðspurður segir Örn að von sé á auknu hluta- fé, en hann segist ekki geta sagt nákvæmlega hvenær það verði. Um leið og það verði gert verði til- kynnt hverjir nýir hluthafar verði. Örn segir að engar stórkostleg- ar breytingar séu á döfinni hjá DV. Aðspurður hvort stefnt sé að því að dreifa blaðinu ókeypis segir hann: „Ég skal ekki segja hvaða viðskiptahugmyndir við erum með. Ætli við myndum ekki vilja kynna þær sjálfir.“ Samkvæmt frétt í DV átti að sameina DV og Viðskiptablaðið undir nafni útgáfufélagsins Fram- tíðarsýnar, en það hefur ekki verið gert. Örn segir að samstarf blað- anna hafi aftur á móti verið aukið verulega síðastliðinn vetur. Hvort blöðin verði gefin út af sama út- gáfufélagi sé tæknilegt atriði sem skipti í raun ekki öllu máli. ■ EGYPTALAND, AP Hryðjuverkaárás- irnar í Marokkó og Sádi-Arabíu í síðustu viku hafa vakið hörð við- brögð í Arabaheiminum ekki síð- ur en á Vesturlöndum. Fjöldi óbreyttra borgara féll í árásun- um og þrátt fyrir að markmiðið hafi verið að koma höggi á Ísrael og Vesturlönd var meirihluti fórnarlambanna múslímar og aðrir óbreyttir borgarar. Margir íslamskir trúarleiðtog- ar hafa ítrekað lýst því yfir að múslímar séu mótfallnir sjálfs- morðsárásum gegn óbreyttum borgurum. „Þarna er um að ræða unga menn sem hafa rangtúlkað hlutina og komist í kynni við hópa sem ýta þeim út í að fremja slík voðaverk,“ segir Essam El- Aryan, leiðtogi egypsku samtak- anna Bræðralag múslíma. Sér- fræðingar benda á að hingað til hafi flest vígasamtök forðast það að skaða sitt eigið fólk. Hryðju- verkasamtökin al Kaída hafi aft- ur á móti sett sér allt aðrar regl- ur og svífist einskis til þess að koma höggi á andstæðinga sína. Þó ekki liggi fyrir hvort samtök- in hafi verið viðriðin árásirnar í Riyadh og Casablanca sé ljóst að þeir sem stóðu þar að verki hafi tekið liðsmenn al Kaída sér til fyrirmyndar. ■ Alþjóðasáttmáli gegn reykingum: Tóbaksauglýsing- ar bannaðar ÓÆSKILEGAR FYRIRMYNDIR Eitt af markmiðum sáttmálans er að reyna að svipta reykingar þeim dýrðarljóma sem hefur umlukið þær um áratugaskeið. Hryðjuverkamenn rangtúlka trúarsetningar: Villuráfandi sálir sem svífast einskis FÓRNARLAMB HRYÐJUVERKAMANNA Á meðal þeirra sem særðust í hryðjuverkaárásunum í Casablanca var marokkóskur lög- reglumaður. Mohammed VI Marokkókonungur heimsótti lögreglumanninn og önnur fórn- arlömb árásanna á Averoes-sjúkrahúsið. Pharmaco í Búlgaríu: Fjárfestir ársins DV og Viðskiptablaðið: Ekkert bólar á nýju hlutafé DV OG VIÐSKIPTABLAÐIÐ Örn Valdimarsson, framkvæmdastjóri DV og Viðskiptablaðsins, segir að von sé á auknu hlutafé. Hann segist ekki geta sagt nákvæmlega hvenær það verði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.