Fréttablaðið - 22.05.2003, Side 12

Fréttablaðið - 22.05.2003, Side 12
AFBROT Fangi á Litla-Hrauni sem er sagður hafa haft í hótunum við fangavörð hefur verið ákærður og mál hans þingfest fyrir Héraðs- dómi Suðurlands. Ákæran var lögð fram í vikunni en þar er því lýst að fanginn hafi brotið gegn vald- stjórninni með líf- látshótun sinni. Skírskotað er til hegningarlaga. Fangavörðurinn ber að fanginn hafi haft í hótunum við sig og sagst ætla að láta drepa hann. Fanginn viðurkennir að hafa hót- að fangaverðinum en heldur því aftur á móti fram að hann hafi aldrei borið fram líflátshótun. Í framhaldi af hótuninni var fang- anum refsað innan fangelsisins með því að banna heimsóknir til hans nema öryggisgler skildi að hann og gestina. Þá fékk hann ekki að hringja úr fangelsinu í til- tekinn tíma. Foreldrar fangans vísuðu máli hans til dómsmála- ráðuneytisins þar sem fanginn hefði sannanlega verið sárveikur og borið upp hótunina í skugga þeirra þjáninga og þess að fanga- vörðurinn hefði vefengt að hann væri veikur. Ráðuneytið mildaði refsinguna. Umræddur fangi situr í fang- elsi vegna líkamsárása og hótana. Móðir hans sagði sögu hans í Fréttablaðinu þar sem fram kom að Hæstiréttur dæmdi mann til fangelsisvistar fyrir að misnota hann sem ungling um nokkurra ára skeið. Hún telur að sonur hennar þurfi að fá aðstoð geð- læknis og sálfræðings til að kom- ast yfir harmleik unglingsáranna. Ákæran á hendur fanganum kemur til viðbótar öðrum ákærum sem hljóða upp á meintar líkams- árásir og hótanir. Ásta Stefánsdóttir, fulltrúi sýslumannsins á Selfossi, rekur málið fyrir hönd ákæruvaldsins en Örn Clausen er verjandi fang- ans. Málið verður tekið fyrir eftir tvær vikur ásamt öðrum málum á hendur fanganum sem bíða með- ferðar. rt@frettabladid.is 12 22. maí 2003 FIMMTUDAGUR Í LAUSU LOFTI Rússneskur unglingspiltur stekkur hátt í loft upp á hjólabretti í garði í miðborg Moskvu. Í baksýn er aðalbygging Ríkishá- skólans. Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð Tilboð TilboðTilboðTilboðTilboðTilboð Garðverkfærin frá Black&Decker eru einstaklega hljóðhlát og umhverfisvæn. Þau eru létt og meðfærileg í notkun og jafnframt þægileg að þrífa. Losaðu þig við áhyggjur af bensíni og gangtruflunum - fáðu þér Black&Decker í garðinn! Sumardagar B&D sumardagar í Verkfæralagernum 22.-24. maí Kan t- sker i fylg ir! 20 me tra snú ra fylg ir m eð 20 metrasnúrafylgir með Rafmagnssnúra að verðmæti 2.500 kr. fylgir með! B&D GT260s verð: 11.500 kr. Tilboð aðeins: 8.900 kr. Rafmagnssnúra að verðmæti 2.500 kr. fylgir með! B&D GT250s verð: 12.900 kr. Tilboð aðeins: 9.800 kr. Kantskeri að verðmæti 4.900 kr. fylgir með í kaupunum! B&D GR385 verð: 33.600 kr. Tilboð aðeins: 24.900 kr. VERKFÆRALAGERINN Skeifunni 8, Reykjavík, s. 588 6090. opið mán.-fim. frá kl. 9-18, fös. 9-19, lau. 10-16. Tilvalin útskriftargjöf Fischersundi 3 Sími:551-4620 sogufelag.is sogufelag@sogufelag.is BJÖRGUN Leki varð í vélarrúmi sex tonna trillu frá Rifi í gær- morgun. Trillan var úti af Öndverðar- nesi og einn var um borð. Hann lét vita af lekanum og var björg- unarskip frá Rifi sent til aðstoð- ar. Þegar aðstoð barst hafði dreg- ið mjög úr lekanum og gat trillan siglt fyrir eigin vélarafli til hafn- ar í fylgd björgunarskipsins. ■ FLUGMÁL Flugmaður kennsluflug- vélarinnar sem brotlenti í Hval- firði í lok mars missti áttir í dimmu hríðaréli. Rannsóknarnefnd flugslysa seg- ir flugmanninn, 25 ára gamlan flugkennara, hafa verið átta mínút- ur á flugi með tvítugum nemanda áður en þeir hugðust snúa við vegna veðurs. Reykjavíkurflug- völlur var þá lokaður vegna élja. Þeir lentu við Stóra-Kropp í Borg- arfirði. Eftir tveggja tíma töf var haldið áleiðis til Reykjavíkur. Skyggni var þó afleitt og ákvaðu þeir að bíða af sér veðrið með því að hringsóla yfir upplýstri spennistöð í Hvalfirði. Um hálftíu um kvöldið, rúm- um hálftíma eftir brottför frá Stóra-Kroppi, skall á él sem flug- maðurinn gat ekki varast í myrkrinu. Mennirnir misstu sjónar á spennistöðinni og flug- maðurinn átti erfitt með að halda stjórn á vélinni vegna ókyrrðar. Vélin brotlenti skammt frá bænum Eystra-Miðfelli og rann 80 metra áður en hún kollsteypt- ist og gjöreyðilagðist. Eldur kom upp en mönnunum, sem voru talsvert slasaðir, tókst að forða sér. Um klukkutíma síðar fór bóndinn á Eystra-Miðfelli að at- huga eldinn og bjargaði þá mönn- unum. ■ ÖRYGGI Könnun á notkun öryggis- búnaðar fyrir börn í bílum var framkvæmd. Tuttugu og níu börn reyndust vera í hættu þar sem þau sátu í framsæti bíla með ör- yggispúða fyrir framan sætið. Þá reyndust 117 börn vera laus í bíl- um. Er það besti árangur frá því að farið var að kanna öryggi barna í bílum árið 1996, þegar 288 börn reyndust vera laus. Sigrún A. Þorsteinsdóttir hjá Slysavarn- arfélaginu Landsbjörg segir ánægjulegt að færri börn séu laus í bílum. Hins vegar sé þessi tala allt of há. „Eins kemur á óvart að 29 börn skuli vera sett í hættu með því að vera sett fyrir framan öryggispúða. Við árekstur framan á bíl á aðeins 30 km hraða þenst öryggispúðinn út. Krafturinn er slíkur að afleiðingarnar geta ver- ið börnum lífshættulegar.“ Sigrún segir ótrúlegt hversu margir foreldrar noti eingöngu öryggisbelti á börnin sín. Í könn- uninni kom í ljós að 243 börn voru eingöngu í bílbeltum eða 12%. „Börn á leikskólaaldri eru með óvarin kviðarholslífæri, sem byggir á því að mjaðmagrindin er ekki eins utarlega og hjá full- orðnum. Öryggisbelti liggja beint yfir magann og við árekstur er hætta á að innri líffæri barnanna springi.“ ■ Öryggi barna í bílum: 117 laus börn í bílum Fangi ákærður fyrir meinta líflátshótun Fangavörður á Litla-Hrauni lýsti líflátshótun í fangaklefa. Heimsókna- réttindi fangans skert og hann ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni. ■ Umræddur fangi situr í fangelsi vegna líkamsárása og hótana. LITLA-HRAUN Samskipti fanga og fangavarðar hafa nú leitt til ákæru vegna meintrar líflátshótunar. ÖRYGGI BARNA Í BÍLUM 1996-2003 Leikskólakennaranemar í KHÍ, félagsmenn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, starfs- fólk Árvekni og Umferðarstofu könnuðu ástandið í aprílmánuði síðastliðnum. Kannaður var búnaður hjá 1.995 börnum við 83 leikskóla í 39 sveitarfélögum. Landsbjörg: Trilla lak RANNSÓKNARNEFND FLUGSLYSA Frumrannsókn á flugslysinu í Hvalfirði 28. mars bendir til þess að flugkennari sem flaug með nemanda sinn í tvísýnu veðri hafi misst áttir í dimmu éli. Einstök mildi þótti að mennirnir slyppu lifandi frá brot- lendingunni. Kennsluflugvélin sem brotlenti í Hvalfirði í mars: Missti stjórn og áttir í dimmu éli FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.